Fréttablaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 26
Kostir CAT D6 XE eru fjölda-margir. Til að mynda stór bætt eldsneytisnýting
og lægri viðhaldskostnaður en
á eldri gerðum. Um er að ræða
fyrstu rafdrifnu jarðýtu í heimi
með drifhjólin uppi. Hefðbundin
dísilvél, CAT C9.3B, knýr rafalinn
sem framleiðir raforku fyrir raf-
mótorinn sem knýr drifhjólin.
Búnaðurinn í CAT D6 XE er með
allt að 90% færri hreyfanlega hluti
en í hefðbundinni skiptingu og eru
hraðabreytingarnar stiglausar.
Snjöll, sparneytin og
umhverfisvæn hönnun
Snorri Árnason hjá Kletti er að
vonum ánægður með þessa nýjung
á markaðnum. „D6 XE jarðýtan er
frábær viðbót við þá breiðu línu
vinnuvéla sem við bjóðum upp á
enda umhverfisvænni, sem gerir
hana að jákvæðu skrefi í átt að
umhverfisvænni framkvæmdum.
Hún er sparneytin og öflug á
sama tíma og ekki spillir fyrir að
viðhaldskostnaðurinn er miklu
minni, eða allt að 12% lægri sem er
vissulega eitthvað sem menn eru
að horfa í þegar fjárfest er í stærri
vélum.“
Rýmra og þægilegra starfs-
umhverfi fyrir tækjastjóra
Með tilkomu CAT D6 XE jarð-
ýtunnar býðst nú valkostur sem
veitir ökumanninum þægilegra
starfsumhverfi, en markmiðið með
endurhönnun ökumannshússins
var að setja algjörlega ný viðmið
hvað varðar útsýni og hvers konar
þægindi. Rýmra er um ökumann-
inn, meira pláss fyrir farangur auk
þess sem gluggaflöturinn er 15%
stærri en í eldri gerðum. Miðstöðin
er einnig sérstaklega útbúin til
að hreyfing sé á loftinu í öku-
mannshúsinu og kemur þannig í
veg fyrir móðu og frost á gluggum
sem kemur sér sérstaklega vel við
íslenskar aðstæður. Eins ber að
nefna bætta hljóðeinangrun um
þrjú desíbel og öfluga dempara sem
minnka hristing um borð, en hvort
tveggja gefur ökumanninum aukna
vellíðan í starfi.
Öryggi og afköst í forgrunni
Snertiskjár með notendavænu
viðmóti er til staðar í CAT D6 XE og
með forritinu getur ökumaðurinn
vistað þær stillingar sem henta best
við verkið. Háskerpu baksýnis-
myndavél og Bluetooth-tenging
við farsíma ökumannsins eru
meðal þeirra eiginleika sem snúa
að öryggi en fjölmargar öryggisút-
færslur prýða heildarhönnunina.
Til að mynda eru handföng upp við
þakið báðum megin á ökumanns-
húsinu auk fallvarnarbúnaðar sem
hvort tveggja er til þess gert að auka
öryggi ökumannsins.
„Ég hvet þá sem eru að huga að
því að uppfæra að kynna sér kosti
CAT D6 XE. Þetta er lipur jarðýta
þar sem horft hefur verið í hvert
smáatriði við hönnunina. Hún er
einstaklega kraftmikil og ýmsar
snjallar útfærslur til staðar sem
hámarka afkastagetu hennar.
Öryggisatriðin eru upp á tíu og
vellíðan ökumannsins og almenn
þægindi höfð að leiðarljósi. Við
hjá Kletti gefum þessari vél hæstu
einkunn og erum stolt af því að
kynna hana til leiks á íslenskum
vinnuvélamarkaði,“ segir Snorri að
lokum.
Við hjá Kletti
gefum þessari vél
hæstu einkunn og erum
stolt af því að kynna
hana til leiks á íslensk-
um vinnuvélamarkaði.
Ný og spennandi jarðýta frá CAT
Nýja CAT D6 XE rafdrifna jarðýtan er nú fáanleg hjá Kletti. Fulltrúar Kletts fengu tækifæri til að
prófa vélina í Danmörku fyrr á árinu og var það niðurstaða þeirra að hún stæðist allar væntingar
og gott betur. Í kjölfarið festi Suðurverk kaup á slíkri vél sem var afhent nú á dögunum.
Páll Theódórs-
son frá Kletti,
Dofri Eysteins-
son, forstjóri
Suðurverks, og
Snorri Árnason
frá Kletti við
afhendinguna á
vélinni.
MYND/AÐSEND
Klettur kynnir nýju
SCANIA V8 línuna
530 590 660 770
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
12 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR