Fréttablaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 2 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.mitsubishi.is
VELDU TRAUST
OG GAGNSÆI
*m.v. bílalán í reiknivél Arion banka, 07.10.2020, 20% útborgun 1.078.000 kr. eða í formi uppítökubíls og láns til 84 mánaða
Mitsubishi Outlander PHEV Invite+
Tilboðsverð! 5.190.000 kr. *Mánaðargreiðslur frá 61.770 kr.
VETRARPAKKI AÐ VERÐMÆTI
370.000 KR. FYLGIR!
Gráum og vindasömum gærdeginum tókst ekki að standa í vegi fyrir Gróttumönnum sem drifu sig í takkaskó og tilheyrandi búnað á fótboltaæfingu á Seltjarnarnesi í gær. Heilbrigðis-
yfirvöld hafa leyft æfingar á ný, en með ströngum skilyrðum – allir þurfa að virða tveggja metra regluna og sótthreinsa þarf boltann á milli allra æfinga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
IÐNAÐUR Starfsfólki hefur fækkað
í öllum þremur megingreinum
iðnaðarins frá því að COVID-19
heimsfaraldurinn hófst samkvæmt
nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins
(SI). Það er í mannvirkjagerð, fram-
leiðsluiðnaði og hugverkaiðnaði.
Höggið er þó minna í mann-
virkjagerðinni nú en í fyrri niður-
sveif lum vegna viðbragða stjórn-
valda. Verði rétt á spöðunum haldið
getur iðnaðurinn orðið einn helsti
drifkraftur viðspyrnu eftir COVID
líkt og hann var eftir bankahrunið.
„Verði samkeppnishæfnin tryggð
getum við séð næstu ár drifin áfram
að stórum hluta vegna vaxtar í
iðnaði,“ segir Ingólfur Bender, aðal-
hagfræðingur SI. „Við höfum lagt
áherslu á nýsköpun og erum ánægð
með að sjá þær breytingar sem hafa
átt sér stað í starfsumhverfi hennar
hér á landi, sem skilar sér inn í
reksturinn og dreifist víðs vegar um
hagkerfið.“
Greiningin var gerð á störfum
á síðasta áratug. Stóri efnahags-
vandinn nú sé töpuð störf í einka-
geiranum, en störfum hjá hinu
opinbera hefur fjölgað að hluta til
vegna átaksverkefna stjórnvalda.
Þeim sem starfa í einkageiranum
hefur fækkað um 19 þúsund á tólf
mánuðum fram til ágúst á þessu
ári og birtist það meðal annars í
því að 9 prósent vinnufærra eru
atvinnulaus, og fer að öllum líkind-
um fjölgandi í vetur. Leggst þetta
mjög mishart á greinarnar, fækkun
starfsfólks í ferðaþjónustu er 35
prósent en aðeins tæp 4 í sjávar-
útvegi. Heildarfækkun í greinum
iðnaðarins er 7 prósent, sem eru
3.400 töpuð störf.
Samkvæmt greiningunni fjölg-
aði störfum hlutfallslega meira í
iðnaði en f lestum öðrum greinum
atvinnulífsins í síðustu efnahags-
uppsveif lu. Árið 2019 störfuðu 44
þúsund manns í iðnaði, 10 þúsund
fleiri en árið 2010. Sem sagt, eitt af
hverjum fjórum störfum sem urðu
til á þessum tíma.
– khg / sjá síðu 6
Minna högg en í fyrri sveiflu
Starfsfólki hefur fækkað í öllum þremur megingreinum iðnaðarins síðan faraldurinn hófst samkvæmt
nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins. Hagfræðingur segir að næstu ár gætu orðið drifin af vexti í iðnaði.
Verði samkeppnis-
hæfnin tryggð
getum við séð næstu ár
drifin áfram að stórum
hluta vegna vaxtar í iðnaði.
Ingólfur Bender,
aðalhagfræð-
ingur SI
REYK JAVÍK Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri segir það koma skýrt
fram í áliti reikningsskila- og upp-
lýsinganefndar sveitarfélaga að
borginni sé heimilt að taka upp-
gjör Félagsbústaða inn í samstæðu-
reikning borgarinnar.
Engar blikur séu á lofti um eigin-
fjárstöðu borgarinnar. „Öllum er
það ljóst að gangverð gefur mun
betri upplýsingar um raunverulegt
verðmæti eignar heldur en afskrifað
kostnaðarverð, miðað við aðstæð-
ur á Íslandi. Ef það yrði ekki gert
myndi gagnsæið minnka og miklar
duldar eignir vera í bókum borgar-
innar. Eitt af grundvallarhugtökum
reikningsskila er að þau gefi sem
gleggsta mynd af öllum stærðum,
þar á meðal eignum, skuldum og
eigin fé.“ – thg / sjá síðu 4
Engar blikur á
lofti um stöðu
eigin fjár borgar