Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Page 12
12 FRÉTTIR 23. OKTÓBER 2020 DV sé ekki fyrir alla enda komi gróft ofbeldi þar við sögu. Bókin fékk fljótt mikið lof og var strax byrjað að ræða hversu myndræn hún væri og fram komu hugmyndir um að hún yrði að kvikmynd eða sjónvarpsþætti. „Ég sagði jafnvel fólki að vera ekkert að lesa hana til að byrja með. Hélt að þetta væri kannski of mikið. En maður má ekki hugsa það þegar maður skrif- ar. Hvort þetta sé of mikið fyrir fólkið í kringum mann. Þá er maður búinn að missa það.“ Stefán játar því að það sé til umræðu að kvikmynda Nautið og bækurnar um Hörð Gríms- son. „Þetta tekur allt svo langan tíma. Það liðu níu ár frá því að Svartur á leik kom út þar til að hún var frum- sýnd sem kvikmynd. Hlut- irnir gerast ekki hratt í kvik- myndaheiminum en þetta var rosalega skemmtilegt og það á meira eftir að gerast,“ segir Stefán og dregur seiminn. Eins og til að minna sjálfan sig á að allt tekur tíma – eða til að kenna mér þolinmæði. Kannski hvort tveggja. Aðspurður hvort hann ætli sér ekki að skrifa fyrir sjón- varp, eins og eina skandinav- íska glæpaseríu, þá lifnar yfir honum. „Jú, það væri eitthvað sem ég þarf að skoða. Skrifa það í samvinnu við gott fólk.“ Þarna skín það í gegn. Tregðan til að trana sér fram. Hugsanlega tæmdist fram- færnin á níunda áratugnum þegar hann á þrautseigjunni einni seldi fyrstu bækurnar með handafli. „Ég kannski skoða það.“ Hugrekkið má ekki yfir- gefa þig þó að þér finnist gott að vera einn. Þú getur unnið með fólki þó að þú sért eins og þú ert? „Já já. Að vinna með fólki er ekkert mál.“ En hvað? „Það er meira í stórum hóp- um sem ég vil geta komið mér undan. Komið mér burt þegar ég fæ nóg. Betra að vera gest- ur en að vera með gesti.“ Ástin og heitu pottarnir Á þessum nótum verður breyt- ingin á honum allt í einu ljós. Hafandi fylgst með Stefáni Mána í næstum áratug er ljóst að það er ein stór umbreyting. Hingað til hefur hann blómstr- að upp undir vegg, svörtum blómum með blóðugum þyrn- um sem gefa lítið af sér nema einn veglegan knúpp á ári. Í fyrsta skipti í áratug er spennuvargurinn í sambúð. Hann er ástfanginn – og það upp fyrir haus af Önnu Lilju Jóhönnudóttur. Alls ekki í stíl við reiða glæpasagnahöf- undinn. „Við erum búin að vera saman í eitt og hálft ár og búa saman í sjö mánuði.“ Tónlistarmenn semja oft allt öðruvísi í ástarvímu. Skrifar þú öðruvísi hamingju- samur? „Nei, það er alltaf eins.“ Þú gafst út fyrstu ástar- söguna þína í sumar, Mörgæs með brostið hjarta. Bókin er tileinkuð Önnu Lilju – heims- endaástinni þinni? „Ég skrifaði þá bók reyndar 2017 en góður punktur samt! Ætli ástin hafi ekki blundað innra með mér, svo fann ég hana. Heimsendaástina mína – sálufélaga minn. Heimsenda- ást. Það er þema í mörgæsa- bókinni. Tvær manneskjur eftir á jörðinni. Hún er heims- endaástin hans, og öfugt.“ Það eru 19 ár á milli Stefáns Mána og Önnu Lilju en það skiptir engu máli. Þau eiga ákaflega vel saman, kannski eins vel og mörgæsir sem velja sér maka fyrir lífstíð. Hvað er það f lippaðasta sem þið gerið um helgar? Hann hlær. „Flippaðasta? Við erum oft að gera eitthvað skemmtilegt. Förum mikið út á land, göngum á fjöll og bara eitthvað. Við erum furðu lík. Tveir einfarar.“ Hann segir félagsþörf þeirra beggja vera mjög takmarkaða auk þess sem COVID-ástand- ið hefur haft sín áhrif. „Það er ekki eins og maður megi stunda félagslíf eða fara á mannamót hvort eð er. Það er helst að maður fari í bíó, leik- hús eða út að borða. Það er lítið um það núna.“ Þú færð venjulega útrás fyrir félagsþörfina í sundi? „Nei, ég tala ekki við neinn í sundi. Nema um daginn. Þá kom strákur um þrítugt til mín í heita pottinum. Hann bar það dálítið með sér að hafa verið mikið í ræktinni en var orðinn aðeins svona mjúkur. Dálítill bangsi. Hann gæti hafa verið að koma af Hrauninu. Ég fékk það á tilfinninguna. Hann spurði hvort ég tryði á Jesú. Við vorum bara tveir í pott- inum. Ég sagði já. Þá spurði hann hvort hann mætti blessa mig. Og ég sagði já. Þá lagði hann svona hendur á höfuðið á mér og bringuna og fór með einhverjar bænir. Ég bara slakaði á og leyfði honum að blessa mig. Og svo bara fór hann. Ég hugsaði bara „fokk it“. Ég var alveg sultuslakur. Þetta voru falleg samskipti. Ég er búinn að gleyma hvað hann heitir.“ En annars talar þú ekki við neinn í heita pottinum? „Nei.“ Nærveran truflar Stefán Máni er góðu heilli ekki eins og fólk er flest. Ör- lítið á skjön, jafnvel mikið. Aldrei óþægilegur, frekar óút- skýrður. Er ljótt að fylgja megin- straumnum? „Nei, það er bara fallegt. Ég geri bara það sem mig langar. Ef mig myndi langa í partí eða út að dansa myndi ég gera það. En það bara hvarflar ekki að mér. Ég verð að geta sloppið í burtu. Ef ég meika ekki meira.“ Hann pírir augun. „Þú skilur þetta ekki. Á ákveðnum tímapunkti fara raddir og nærverur að trufla mann. Þá verður maður að geta farið. Ég get fengið óþol fyrir fólki. Mjög auðveld- lega.“ Hans besti vinur er tröll- vaxinn, með ryðrautt hár, einrænn, svartklæddur frá toppi til táar með gott hjarta og býr innra með honum. Hann heitir Hörður Gríms- son og er aðalsögupersóna átta bóka hans. Stefán Máni kynnti Hörð fyrir lesendum sínum árið 2009 í bókinni Hyldýpi en Dauðabókin er áttunda bókin um þennan sérlundaða lögreglumann. Það er ekki að undra að ein- fari eins og Stefán búi sér til vini sem hægt er að taka upp og leggja frá sér þegar óþolið gerir vart við sig. Samband Stefáns Mána og Harðar er einlæg vinátta en skilin eru þó ekki alltaf skýr. „Hann er inni í hausnum á mér þessi maður. Hann er bara til. Þegar ég er leiðin- legastur þá er hann búinn að taka yfir. Ég veit alltaf hvað honum finnst. Ég get verið andsetinn af honum. Ég ótt- ast að ég hætti að skrifa og verði búin að breytast í hann, skapvondan fúlan karl.“ Það gerist ekki. Þú ert ást- fanginn! Heldurðu að þú eignist kannski fleiri börn? „Það er bara aldrei að vita,“ segir Stefán Máni með hlýju. Skapvondi, fúli karlinn er nefnilega svo helvíti nota- legur. n Stefán er meira sjarmerandi en hann kærir sig um. MYND/SIGTRYGGUR ARI Það er meira í stórum hópum sem ég vil geta komið mér undan. Komið mér burt þeg- ar ég fæ nóg. Betra að vera gestur en að vera með gesti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.