Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.10.2020, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 28.10.2020, Qupperneq 40
Okkar ástkæri bróðir, Halldór Agnar Jónasson sjómaður frá Skálavík, lést miðvikudaginn 21. október á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Útförin fer fram frá Hólskirkju, laugardaginn 31. október klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þorbjörg Maggý Jónasdóttir Gylfi Jónasson og fjölskyldur þeirra. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jakob Jakobsson fiskifræðingur, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 22. október. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 29. október, klukkan 15. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á YouTube (https://youtu.be/dmW4ostWU-U) undir Útför Jakobs Jakobssonar. Þeim sem vilja minnast Jakobs er bent á Hjálparstofnun kirkjunnar. Margrét Elísabet Jónsdóttir Sólveig Jakobsdóttir Jón Jóhannes Jónsson Oddur S. Jakobsson Hólmfríður Friðjónsdóttir Auðbjörg Jakobsdóttir Sigurður Á. Sigurbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur frændi okkar og vinur, Stefán G. Stefánsson frá Kalastöðum, lést þriðjudaginn 20. október á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 13.00. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir, en athöfninni verður streymt frá Akraneskirkju á slóðinni www.akraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða. Aðstandendur. Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Randver Gunnar Karlesson Norðurgötu 35, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, fimmtudaginn 5. nóvember, klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður steymt á Facebook-síðu: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - Beinar útsendingar Elísabet Randversdóttir Ólafur Steinarsson Karles Randversson Kristbjörg Egilsdóttir Inga Randversdóttir Sævar Björnsson Arnbjörn Randversson Þorgerður Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Valdimar Jónsson skipasmiður og fv. yfirlögregluþjónn, lést í faðmi ástvina sinna á heimili sínu í Hafnarfirði, föstudaginn 23. október 2020. Útförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Halldórsdóttir Jóhanna Valdimarsdóttir Grétar Örn Marteinsson Anna Valdimarsdóttir Guðmundur Örn Jónsson Halldóra Klara Valdimarsdóttir Jónatan Guðnason Margrét Guðrún Valdimarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ólafur Guðmundsson Hrafnistu, Laugarási, lést þann 22. október síðastliðinn. Arngrímur Fr. Ólafsson Ásta Ólafsdóttir Vignir Jónsson Einar Ólafsson Gunnhildur Stefánsdóttir Sveinn Ólafsson og barnabörn. Okkar ástkæri Róbert Trausti Árnason fv. sendiherra og forsetaritari, lést á líknardeild Landspítalans, föstudaginn 23. október síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar. Klara Hilmarsdóttir Kristján Þórðarson Soffía Rúna Jensdóttir Hilmar Þórðarson Rannveig Jóhannsdóttir Klara Rún Hilmarsdóttir Friðrik Þór Hjálmarsson Baldur Freyr Hilmarsson Embla Rós Friðriksdóttir Bíddu aðeins, ég ætla að fá mér kaffibolla meðan ég spjalla við þig,“ segir Finnur Sigurbjörnsson, skipstjóri á togaranum Múlabergi SI 22 og hellir upp á. Hann er í haustralli fyrir Hafrannsóknastofnun, staddur út af Faxaf lóa – í kaldaskít – þegar hann svarar símanum. Um borð eru tuttugu manns, þar af sjö frá Hafró, að rannsaka hvað fiski- stofnarnir hafa af fæðu á grunnslóð og hvernig nýliðun reiðir af. „Það er skoðað í kviðinn á þessum kvikindum, þar er ekki alltaf mikið,“ lýsir Finnur. „En smá- vegis var af loðnu úti fyrir Norðvestur- landi, sums staðar voru þorskseiði og svo síld og rækja. Við fáum náttúrlega allar tegundir, það er svo smár möskvi sem við notum. Við toguðum fyrir utan Reykjavík og einn um borð taldi að þar myndi ekkert koma upp nema spraut- unálar og bíldekk.“ Dróguð þið ekki upp eldgamlan planka austur í Fáskrúðsfirði? „Jú, Albert Eiríksson matgæðingur var í sambandi við mig í gær og fullyrðir að stykkið sé úr annarri hvorri skútunni sem fórust þarna 8. maí 1910. Við erum með þennan forngrip um borð, hann verður sendur austur þegar við komum í land.“ Voru á leið í Staðarskála Eins og sjá má á vefnum skip.hafro.is hefur Múlabergið meðal annars farið inn í þrönga firði eins og Hrútafjörð. Þegar ég hef orð á því hlær Finnur og segir. „Já, við vorum bara á leið í Staðar- skála. Fórum líka inn í Mjóafjörð fyrir austan, skruppum þar inn að Eyri. Það er dálítið sérstakt að vera í svona fjöru- ferðum! Ég er búinn að fara í nokkur vorröll, þetta er enn skemmtilegra. Svo höfum við farið langt út á milli, vorum 107 mílur austur af Reykjanesinu í fyrradag, ekki veit ég hvort það á teljast grunnslóð.“ Vindur fór í 34 metra Ferðin byrjað í heimabænum Siglufirði 10. október, þaðan var stímt vestur fyrir Horn og svo austur með ströndinni, að sögn Finns. „Það gekk rosa vel fyrstu vikuna, sól og blíða alla daga. Við höfum verið heppin með veður nema einn sól- arhring í grennd við Vestmannaeyjar, þegar vindur fór í 34 metra.“ Nú sér Finnur fyrir endann á túrnum í vikulokin, ef veður leyfir. Síðasta stöð af 180 er inni í Jökulfjörðum. Þaðan verður siglt til Siglufjarðar aftur. En hvað þá tekur við? „Það er planið að fara aftur á djúprækju í nokkar vikur, svo er bara bolfiskur í troll eftir það fram að páskum,“ svarar hann. „Nema við förum á vorrall í febrúarlok.“ gun@frettabladid.is Dálítið sérstakt að vera í svona fjöruferðum Finnur Sigurbjörnsson er í brúnni á togaranum Múlabergi SI 22 frá Siglufirði, sem er í haustralli fyrir Hafrannsóknastofnun, ýmist á rúmsjó eða uppi í landsteinum. Auk þess að stjórna skipinu fylgist hann með smáfiskum og fornminjum dregnum úr djúpunum. Við toguðum fyrir utan Reykja- vík og einn um borð taldi að þar myndi ekkert koma upp nema sprautunálar og bíldekk. „Ég er búinn að fara í nokkur vorröll, þetta er enn skemmtilegra,“ segir Finnur skipstjóri á Múlabergi. MYND/AÐSEND 2 8 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.