Fréttablaðið - 13.11.2020, Page 6

Fréttablaðið - 13.11.2020, Page 6
Þekkirðu lyn þín? GLÆSIBÆ / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös. Sími 517 5500 / lyfsalinn@lyfsalinn.is VESTURLANDSVEGI / OPIÐ 10:00-22:00 alla daga Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is URÐARHVARFI / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös. Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is og þér líður betur Komdu eða pantaðu tíma í síma 517 5500 eða sendu póst á lyfsalinn@lyfsalinn.is Fáðu faglega aðstoð lyafræðings UMHVERFISMÁL Jón Þórir Frantz- son, forstjóri Íslensku gámaþjón- ustunnar sem gagnrýndur var í Fréttablaðinu í gær fyrir fullyrð- ingar sínar í blaðinu á miðvikudag um afdrif sorps frá fimm sveitar- félögum á Suðurlandi, er enn ekki sannfærður um að sorpið sé brennt en ekki urðað. „Ástæða fyrirspurnar minnar til þriggja sveitarfélaga á Suðurlandi um afdrif almenns úrgangs er sú að undirritaður hafði reynt að fá þessar upplýsingar frá tveimur sveitar- félögum sem treglega hafði gengið að fá,“ segir Jón Þórir. „Þegar síðan á það bættist að við- skiptavinir Íslenska Gámafélags- ins á Suðurlandi komu til okkar og sögðust geta fengið ódýrari leið til förgunar hjá samkeppnisaðila okkar með því að urða úrganginn samkvæmt verðskrá Sorpu þá vakn- aði þessi spurning, hvernig fara þeir að þessu, þar sem til dæmis verðskrá Kölku er 50 prósentum hærri fyrir þennan úrgang og lengri vegalengd á förgunarstað. Auk þess sem Kalka urðar ekki úrgang,“ segir Jón Þórir. Af þessum ástæðum kveðst Jón Þórir hafa svarað spurningu frétta- manns á þá leið að hann teldi sig vita að farið væri með úrganginn til urðunar á löggildan urðunarstað í Reykjavík, Borgarfirði eða Húna- vatnssýslu. „Ég hafði hreinlega ekki hug- myndaflug til þess að áætla að fyrir- tækið færi að borga um tíu krónur með hverju kílói til þess eins að fá viðskiptin. Sem aftur vekur upp spurninguna um samkeppnis- sjónarmið og gagnsæi til viðskipta- vinarins,“ segir forstjóri Íslensku gámaþjónustunnar. Ítrekað skal að umrædd sveitar- félög og þjónustufyrirtæki þeirra Terra höfnuðu í sameiginlegri yfir- lýsingu sem Fréttablaðið birti í gær algerlega fullyrðingum Jóns Þóris um að heimilisúrgangur frá þeim sé fluttur til förgunar á urðunarsvæði sem þau hafa ekki heimild til að nota. Úrgangurinn sé allur brennd- ur hjá Kölku á Suðurnesjum. – gar Kveður sér ekki hafa hugkvæmst að borgað væri til að fá sorpviðskipti Ég hafði hreinlega ekki hugmyndaflug til þess að áætla að fyrir- tækið færi að borga um tíu krónur með hverju kílói til þess eins að fá viðskiptin. Jón Þórir Frantz- son, forstjóri Íslensku gáma- þjónustunnar DÓM SM ÁL Sex landeigendur í Hornafirði hafa kært Vegagerðina fyrir eignarnám sem þeir telja ólög- legt. Eignarnámið var gert vegna þess að ekki tókst að semja við landeigendurna vegna breytingar á Þjóðvegi 1 í Hornafirði. Fram- kvæmdir eru stutt á veg komnar og ekki hafnar á viðkomandi jörðum. Vilja landeigendurnir stöðva þær áður en jörðunum verði raskað. Breyting á hringveginum og bygging nýrrar brúar yfir Horna- fjarðarf ljót hefur verið meira en áratug í pípunum. Nokkrir tugir landeigenda sömdu við Vegagerðina en ellefu vildu það ekki. Gert var eignarnám og ákvað matsnefnd að Vegagerðin greiddi þeim samtals 76 milljónir króna. „Mínir umbjóðendur vildu ekki semja enda töldu þeir að ekki hafi mátt velja þessa vegleið. Þeir telja vera það marga annmarka á ákvörð- uninni að það valdi ógildingu,“ segir Hlynur Jónsson lögmaður landeig- endanna sex sem þegar hafa höfðað mál. Voru þau tekin fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Í undirbúningsferlinu vor u nokkrir valkostir í boði. Í fyrra varð loks Leið 3b fyrir valinu en umræddir landeigendur vildu að Leið 1 yrði valin. „Umbjóðendur mínir telja að Vegagerðin hafi valið þessa vegleið eingöngu vegna hagsmuna sveitar- félagsins,“ segir Hlynur. „Vegagerðin valdi fyrst Leið 1 en féllst á að fara 3b eftir að sveitarfélagið bað um það.“ Leið 3b er á aðalskipulagi sveitarfélagsins Hornafjarðar en hún styttir leiðina inn á Höfn. Bendir Hlynur á að Leið 1 hefði verið talsvert ódýrari kostur fyrir Vegagerðina. Samkvæmt úttekt VSÓ frá árinu 2015 voru leiðirnar metnar á 3,4 milljarða króna ann- ars vegar en 4,2 hins vegar. Í sömu skýrslu kemur fram að Leið 3b hafi talsvert neikvæð áhrif á umhverfið en að áhrif Leiðar 1 séu óveruleg til talsvert neikvæð. Reynir Karlsson, lögmaður Vega- gerðarinnar, segir öryggi hafa skipt meira máli þegar Leið 3b var valin. „Leið 3b er öruggari umferðarlega séð, styttri, beinni og með færri vegtengingum. Vegagerðin horfir frekar til umferðaröryggis en til kostnaðar og umhverfisáhrifa þegar að þessi atriði vegast á,“ segir hann. „Við nýbyggingu vega leitast Vega- gerðin við að fækka T-tengingum því þar verða slysin helst.“ Segir hann sættir fullreyndar í málinu. Vegagerðin krefst sýknu og krefst þess að eignarnáms- bæturnar verði lækkaðar með gagnsök. „Vegagerðin telur það landsvæði sem matsnefnd eignar- námsbóta taldi falla í verði vegna vegalagningarinnar vera allt of stórt og hátt metið,“ segir Reynir. „Einn- ig er stofnunin ósátt við þær bætur sem nefndin ákvað vegna rasks og ónæðis af framkvæmdum. Í mörg- um tilfellum eru framkvæmdirnar langt frá bæjunum sjálfum.“ Aðalmeðferð í málinu hefst í febrúar og verður sakarefninu skipt. Fyrst verður dæmt um lögmæti eignarnámsins og ef það verður staðfest verður bótafjárhæðin tekin fyrir. Að óbreyttu hefjast vegafram- kvæmdirnar að nýju á næsta ári. kristinnhaukur@frettabladid.is Landeigendur fóru í mál við Vegagerðina út af eignarnámi Í gær voru tekin fyrir mál sex landeigenda í Hornafirði gegn Vegagerðinni. Verið er að breyta Þjóðvegi 1 þannig að hann færist nær Höfn en ekki náðust samningar við landeigendurna sem telja ákvörðun um vegleið ólöglega. Vegagerðin hefur stefnt landeigendunum til baka og vill lækka eignarnámsbæturnar. Höfn í Hornafirði séð frá fjallinu Vestrahorni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við horfum frekar til umferðaröryggis en til kostnaðar og umhverf- isáhrifa þegar vafaatriði koma upp. Reynir Karlsson, lögmaður Vegagerðarinnar VIÐSKIPTI Að mati Samtaka iðn- aðarins er það grafalvarleg staða að langtímavextir hafi hækkað hratt undanfarna mánuði og eru nú á svipuðum slóðum og fyrir kóróna veirufaraldurinn. Mikil- vægt sé að Seðlabanki Íslands snúi þeirri óheillaþróun við og beiti til þess  þeim hagstjórnartækjum sem bankinn býr yfir. Eins og Markaðurinn fjallaði um í gær hafa vextir á ríkisskuldabréf- um og sértryggðum skuldabréfum farið hækkandi á síðustu þremur mánuðum. Nemur hækkunin um einu prósentustigi. Að sögn Ingólfs Bender, aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, er þessi umtalsverða hækkun langtímavaxta andstætt markmiðum hagstjórnar sem er að skapa kröftuga viðspyrnu fyrir efnahagslífið. „Vaxtahækkunin á sér stað á sama tíma og fyrirtæki og heimili landsins eru að takast á við einn dýpsta og snarpasta samdrátt í íslenskri efnahagssögu. Hækkun langtímavaxta dregur enn frekar úr innlendri eftirspurn, eykur dýpt niðursveif lunnar og ýtir undir fækkun starfa,“ segir Ingólfur. Að hans mati er tvennt sem hefur valdið hækkun langtímavaxta und- anfarið. Í fyrsta lagi kallar umtals- vert aukinn halli á hinu opinbera á auknar lántökur. Væntingar um slíkt hafi þau áhrif að langtíma- vextir hækka. Í öðru lagi boðaði Seðlabankinn að hann ætli að vinna á móti þessu með uppkaupum á ríkisbréfum fyrir allt að 150 milljarða króna, svokölluð magnbundin íhlutun. Hins vegar hefur lítið sem ekkert verið um efndir af hálfu bankans hvað þetta varðar. Aftur hafa vænt- ingar áhrif en lítil kaup bankans grafa undan trú fjárfesta á að hann ætli að fylgja eftir orðum sínum með aðgerðum. „Það er mikilvægt að þessu sé snúið við því töf er kostnaður fyrir fyrirtæki og heimili í land- inu og kemur ekki síst fram í því að atvinnuleysi heldur áfram að aukast. Með skjótum aðgerðum af hálfu bankans má hins vegar tryggja lækkun langtímavaxta og milda þannig þessa djúpu niður- sveiflu,“ segir Ingólfur. – bþ Hækkun vaxta er grafalvarleg Ingólfur Bender SAMFÉLAG Sendiherra Póllands, Ger- ard Pokruszynski, sakar talsmenn kvenréttindasamtakanna  Dzie- wuchy Islandia um að fara með ósannindi í viðtölum sínum við íslenska fjölmiðla. Kvenréttinda- samtökin hafa staðið fyrir hörðum mótmælum í kjölfar þess að hertar reglur um þungunarrof voru sam- þykktar  af stjórnarskrárdómstól Póllands. Meðal annars var settur upp mótmælaborði á móti húsi sendiherrans. Var því haldið fram að hringt hefði verið á lögreglu og farið fram á að borðinn yrði fjarlægður. Í yfirlýsingu segir Pokruszynski að það sé ekki rétt. Hann myndi ekki vega að tjáningarfrelsi með slíkum hætti. „Lögreglan var kölluð á stað- inn í tengslum við ágengni á svæði sendiherrabústaðarins,“ segir Pok- ruszynski. Einkaheimili sendierind- reka eigi að njóta sömu friðhelgi og verndar sem sendiráðssvæðið. – bþ Segir mótmælendur hafa farið með ósannindi 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.