Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 10
Traust er það sem skiptir öllu máli í þessu og ég sem neytandi vil geta treyst því að ég viti hvert úrgangurinn sem ég er að flokka fari. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auð- lindaráðherra RÚV Skóla- og frístundaráð Reykja- víkur kannaði ekki áhuga hjá öðrum sjónvarpsstöðvum en RÚV á fjórtán milljóna króna verkefni, sem það samþykkti á fundi sínum í vikunni, um að koma reykvískum börnum á skjái landsmanna.  Fulltrúar meirihlutans fögnuðu samningnum en fulltrúar Sjálf- stæðisf lokksins bókuðu að rétt hefði verið að kanna verð, og áhuga annarra sjónvarpsstöðva. Börn í Reykjavík fá að framleiða sitt eigið efni, eins og stuttmyndir, jafningjafræðslu, tískublogg og f leira og fá að fara á námskeið í tækni- og dagskrárgerð einu sinni á ári. Tuttugu reykvískum ung- mennum, ásamt jafnöldrum þeirra annars staðar af landinu, er boðið að taka þátt í því námskeiði. Ekki kemur fram hversu mörg börn utan Reykjavíkur fá að koma á námskeið- ið en skóla- og frístundasvið Reykja- víkur ákveður fyrirkomulagið. RÚV mun þróa vefsjónvarpsefni fyrir 8., 9. og 10. bekkinga, í samstarfi við Skóla- og frístundaráð. Stofn- unin mun leggja til tækja- og tækni- búnað til að streyma frá að minnsta kosti þremur unglingaviðburðum á vegum ráðsins og sýna Skrekk í beinni útsendingu auk þess að skrá- setja skólaheimsóknir og sýna vefút- sendingu frá undanúrslitunum. Milljónirnar munu skiptast niður á þrjú ár og er samningurinn settur fram sem styrkur til að treysta rekstrargrundvöll og starfsemi Ung- RÚV. Áætlað tap RÚV á árinu er um 250 milljónir samkvæmt umsögn Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fjárlagafrumvarp næsta árs. – bb Borgin vill ungmenni í sjónvarpið Atriði í Skrekk 2019. UMHVERFISMÁL „Úrvinnslusjóður þarf að geta svarað því hvert það fer sem er f lutt úr landi og hver meðhöndlunin á því er, hvort sem það er hér heima eða erlendis. Það er algjört lykilatriði sem ég hyggst taka upp við stjórn Úrvinnslu- sjóðs,“ segir Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra. „Ef að það er eitthvað í lagaum- hverfinu eða ferlum sem þarf að bæta þar þá mun ég gera það. Traust er það sem skiptir öllu máli í þessu og ég sem neytandi vil geta treyst því að ég viti hvert úrgangurinn sem ég er að flokka fari.“ Hann vinnur nú að lagabreyt- ingum sem snúa að framtíðar- fyrirkomulagi úrgangsmála. „Ég hef verið með lagabreytingar í vinnslu í ráðuneytinu síðustu tvö ár sem ég tel að muni styrkja kerfið okkar í úrgangsmálum. Við þurfum umbyltingu í úrgangsmálum því við erum ekki að standa við öll mark- miðin okkar, þó svo að sumum þeirra sé vissulega náð.“ Fram kemur í nýlegri umfjöllun Stundarinnar um plastúrgang á Íslandi að í raun sé enginn fjárhags- legur hvati fyrir íslensk fyrirtæki til að fara með plast í endurvinnslu, Guðmundur segir að skerpa þurfi á hvötum og slíkt sé í bígerð. „Það sem ég er að horfa til er að innleiða hringrásarhagkerfið, það er rauði þráðurinn í minni stefnu í úrgangsmálum. Það snýst í fyrsta lagi um að draga úr myndun úrgangs. Í öðru lagi að urða miklu minna en við gerum í dag, sérstak- lega af lífrænum úrgangi og þar með draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Í þriðja lagi að auka endurvinnslu. Það sem ég hef þegar verið að gera varðandi að draga úr myndun úrgangs er meðal annars að setja fram aðgerðaáætlun varðandi plastmengun, þar sem er bönnuð notkun burðarpoka úr plasti, og markaðssetning ákveðinna vara úr plasti líka bönnuð. Sú áætlun er í átján liðum, snýst einnig um að auka endurvinnsluna og einmitt að nota hagræna hvata til að gera það,“ segir hann.  „Aðgerðaáætlun vegna matarsó- unar er einnig á lokametrunum þar sem stefnt er að helmingi minni matarsóun árið 2030. Auk þess hefur fræðsla verið aukin til muna. Ég legg mikla áherslu á að þessar áætlanir séu fjármagnaðar þannig að við sjáum þær gerast og það eru þær einmitt.“ Guðmundur Ingi segir að vinnan nú snúi að því hvernig hvetja megi til meiri endurvinnslu hér á landi, bæði með efnahagslegum hvötum og með auknu fjármagni til mála- flokksins. „Við erum með í undir- búningi að sveitarfélög og fyrirtæki geti sótt um styrki til að hefja slíka starfsemi.“ arib@frettabladid.is Þarf fleiri hagræna hvata til að auka endurvinnslu plasts Umhverfisráðherra undirbýr lagasetningu sem snýr að framtíðarfyrirkomulagi úrgangsmála. Búa þarf til hagræna hvata til að plast verði endurunnið. Þá kemur til greina að veita fyrirtækjum styrki til að hefja endurvinnslustarfsemi. Þá er einnig stefnt að því að helminga matarsóun hérlendis fyrir árið 2030. Stór hluti plasts sem fellur til er sendur til Svíþjóðar í brennslu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI BANDARÍKIN Sjónvarpsstöðin Fox News var með flesta áhorfendur á kosninganótt, ef miðað er við áhorf- stölur úr sjónvarpi. Alls horfðu tæpar 57 milljónir Bandaríkja- manna á kosningavöku í sjónvarpi sem er umtalsvert minna en árið 2016, þegar 71 milljón horfði. Ætla má að aukið áhorf á netmiðlum hafi hér sitt að segja. Þrátt fyrir það setti Fox News met með 13,7 milljónir áhorfenda. Skýringin er mögulega sú að stöðin höfðar til íhaldsmanna sem eru frekar í eldri kantinum og síður líklegir til að horfa á netinu. Fyrir fjórum árum horfðu 11,5 milljónir á kosningarnar á Fox News en þá horfðu flestir á NBC, 12,1 milljón. Í ár hrapaði NBC niður í 5,6 millj- ónir en 9 milljónir horfðu á CNN. Alls sýndu þrett án sjónvarpsstöðv- ar frá kosningunum. – khg Fox News vann kosningarnar Bill Hemmer hefur staðið vaktina á Fox News í kosningunum. Starfsmenn hvattir til stillingar Þrátt fyrir að rólegt hafi verið um að litast utan við Hvíta húsið í Washington í gær var mikill erill inni í húsinu. Robert O’Brien, þjóðar öryggis ráð­ gjafi Hvíta hússins, bað starfsmenn ó form lega um að halda ró sinni og halda á fram að vinna sína vinnu. En margir eru nú ó ró legir yfir gangi mála í Banda ríkjunum þar sem Donald Trump, sitjandi Banda ríkja for seti, hefur neitað að játa sig sigraðan í forsetakosningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.