Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Á meðan efnahags- óvissan varir er mikilvægt að peninga- málayfir- völd veiti skýra leiðsögn um vaxtaþróun- ina. Við getum lagt enn meira af mörkum á sviði lofts- lagsmála, til dæmis með samvinnu á sviði haf- rannsókna og útflutningi á grænum lausnum. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM LANDS- HLUTUM SKILYRÐISLAUST Orkan – Ódýrt fyrir alla Öryggisumhverfi okkar hefur gjörbreyst síðast-liðinn áratug. Þannig þýða loftslagsbreytingar og fjölþáttaógnir á borð við netárásir og upp- lýsingaóreiðu að sá stöðugleiki sem við höfum búið við er ekki lengur sjálfsagður. Við eigum allt okkar undir því að verjast þessum ógnum, og það getum við ekki ein. Í þessu samhengi hafði ég frumkvæði að því að Birni Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra og alþingis- manni, skyldi á vettvangi norrænnar samvinnu falið að gera nýjar tillögur um hvernig Norðurlöndin gætu aukið samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála, með sérstakri áherslu á ofangreindar ógnir. Skýrslan sem kom út í sumar hefur nú verið þýdd á íslensku og birt á vef Stjórnarráðsins. Það er samdóma álit utanríkisráðherra Norðurlandanna að skýrslan marki tímamót í norrænni samvinnu. Í ljósi þeirra áskorana sem við okkur blasa í dag má með sanni segja að hún hafi komið á hárréttum tíma. Úrvinnsla tillagnanna fjórtán er hafin og innleiðing nokkurra í farvegi. Í skýrslunni er áréttað að á meðan ekkert ríki getur eitt og sér varist þeim nýju ógnum sem við blasa verður hvert og eitt að leggja sitt af mörkum. Það hefur Ísland gert m.a. með því að tala hátt og skýrt fyrir alþjóða- lögum, fyrir algildi mannréttinda, fyrir kvenréttindum og réttindum minnihlutahópa en einnig með framlagi til starfsemi og sameiginlegra varna Atlantshafsbanda- lagsins. Við getum lagt enn meira af mörkum á sviði loftslagsmála, t.d. með samvinnu á sviði hafrannsókna og útflutningi á grænum lausnum. Við eigum verk fyrir höndum við að byggja upp varn- ir gegn fjölþáttaógnum og þau mál verður að taka föst- um tökum. Það gerum við bæði í ráðuneytinu og innan stjórnsýslunnar en líka í samstarfi við alþjóða stofn anir og önnur ríki. Þar skiptir ekki síst máli samvinna við þær þjóðir sem okkur standa næst og aðhyllast svipuð gildi. Skýrsla Björns Bjarnasonar er þýðingarmikið inn- legg í samstarf Norðurlandanna í þessum mikilvæga málaflokki um fyrirsjáanlega framtíð. Norrænar lausnir á nýjum ógnum Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra Útlit er fyrir að bóluefni gegn veirunni sem allt er að drepa verði tiltækt fyrr en áður voru bundnar vonir við. Það hefur aukið mjög á bjartsýni, sem endurspeglast í verð-hækkunum á mörkuðum og gefur fyrirheit um viðspyrnu í efnahagslífinu á vor- mánuðum – og þar mun ferðaþjónustan skipta lykilmáli. Núverandi skipan, þar sem öllum er gert að fara í tvöfalda skimun og sóttkví á milli, þýðir í reynd að landamærin eru lokuð og verði svo áfram er útséð með að ferðamenn komi til landsins svo einhverju nemi. Mikilvægt er að farin verði skynsamleg leið til breytingar á þeim ráðstöfunum, sem eru einar þær ströngustu í Evrópu, sem miði að því að minnka flækjustigið og auka sem fyrst fyrirsjáanleika þeirra ef við ætlum að eygja von um að ferðaþjónustu- fyrirtæki geti tekið á móti ferðamönnum næstkomandi sumar. Það er mikið í húfi en forsendur fjárlaga gera ráð fyrir meira en 900 þúsund ferðamönnum á árinu 2021. Væntingar um bóluefni breyta samt ekki því að það er frostavetur í vændum. Efnahagshorfurnar eru að óbreyttu þær hinar sömu, sem þýðir áfram mikið og vaxandi atvinnuleysi, og hætt er við því að halli á rekstri ríkissjóðs, sem er áætlaður rúmlega 260 milljarðar í ár, eigi eftir að reynast enn meiri. Hver á að kaupa allar þær skuldir? Það er stóra spurningin sem fjárfestar á skuldabréfamarkaði spyrja sig um þessar mundir. Að undanförnu hefur allt lagst á eitt við að þrýsta upp ávöxtunarkröfunni á ríkis- bréfum – hún er núna á svipuðum slóðum og í byrjun ársins þegar vextir Seðlabankans voru þrjú prósent – sem hefur um leið hækkað til muna fjármögnunarkjör bankanna á markaði. Það á eftir að hafa þau fyrirsjáan- legu áhrif að fastir vextir á íbúða lánum munu þurfa að hækka nokkuð á næstunni. Ástæður þessarar vaxtaþróunar eru vel þekktar. Það hefur verið viðvarandi óvissa – að óþörfu – um hvernig standa eigi að fjármögnun á 900 milljarða hallarekstri ríkissjóðs á komandi árum. Íslenskir lífeyrissjóðir, helstu fjármagnseigendur landsins, hafa verið nettó seljendur á ríkisbréfum og stærsti erlendi eigandi ríkisverðbréfa í krónum hefur að sama skapi selt öll bréf sín fyrir nærri 50 milljarða á þremur mánuðum. Á sama tíma hefur íhlutun Seðlabankans á skuldabréfamarkaði, með beinum kaup- um á ríkisskuldabréfum, verið í engu samræmi við yfir- lýsingar hans frá því í mars þegar bankinn boðaði skulda- bréfakaup fyrir allt að 150 milljarða – og það hefur því miður skaðað trúverðugleikann. Seðlabankanum hlýtur að vera í mun að snúa við þessari þróun – og aðgerðir hans á markaði síðustu daga hafa gefið það til kynna – svo þær aðstæður skapist á markaði að ríkissjóður geti fjármagnað sig til lengri tíma á sem hagstæðustum kjörum. Því er ekki fyrir að fara í dag. Áhrifa farsóttarinnar mun gæta langt inn í næsta ár. Á meðan óvissan varir er mikilvægt að peningamálayfir- völd, rétt eins og í öðrum þróuðum ríkjum, veiti fyrir- tækjum og heimilum skýra leiðsögn um vaxtaþróunina og reyni að tryggja að fjármögnunarkjör haldist lág þar til hagkerfið hefur náð vopnum sínum á ný. Á vaxtaákvörð- unarfundi í komandi viku, einum þeim mikilvægasta frá því að nýr seðlabankastjóri tók við embætti, mun bank- anum gefast færi á því að rétta við kúrsinn. Óþörf óvissa  Kosningaloforð Þú veist að það styttist í kosn- ingar þegar talið berst að nýjum þjóðarleikvangi. Þá er talið að ekki sé hagkvæmt að gera við þann sem er nú í Laugardalnum, betra sé að byggja nýjan. Sam- kvæmt áætlun borgarinnar verð- ur farið í fýsileikamat á að koma honum fyrir í Hvassahrauni. Þá verði flugvöllurinn færður niður í Laugardal og Laugardalsvöllur færist yfir á Kleppsveg og Kyn- lífshjálpartækjabúð Reykjavíkur fer í Vatnsmýrina þar sem hún mun einnig nýtast sem mathöll. Samkvæmt greiningu verktak- ans sem á að sjá um þetta verður hagrænn ábati til ársins 2069 minnst 26 milljarðar í spöruðum desíbelum. Peningarnir gufa upp Heilbrigðisráðherra, hefur stært sig af auknum framlögum til heilbrigðismála. Því ber vissu- lega að fagna en þá aðeins ef peningarnir nýtast almennilega. Ný skýrsla ráðuneytisins virðist benda til þess að á meðan starfs- fólki hefur verið fjölgað um ríf- lega 20 prósent hafi framleiðni minnkað um rúm 5 prósent á sama tíma. Það skyldi þó ekki vera að í stað þess að ráða starfsfólk til þess að hlúa að og annast sjúkl- inga hafi skrifstofufólki sem aldrei kemur nálægt sjúklingum fjölgað hlutfallslega mest. Það gefa tölurnar í skyn en virðist ógjörningur að sannreyna. 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.