Fréttablaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 20
Við fengum Sigríði Björk Bragadóttur matgæðing með meiru og annan eiganda að
Salt Eldhúsi, sem er að öllu jöfnu
kölluð Sirrý, til svipta hulunni
af sínum uppáhalds vetrarrétti
sem á vel við þessa dagana. „Ég á
mjög marga uppáhaldsrétti sem
ég elda reglulega. Íslensk kjöt-
súpa er reglulega á borðum um
vetrarmánuðina og er ég þá með
mismunandi útfærslu á henni eftir
skapi og stemningu. Grísakóte-
lettur í raspi eins og amma gerði
eru oft á borðum á veturna þegar
öll fjölskyldan er í mat og þá með
heimalöguðum rauðrófum og epla-
salati.“
Kjarnmikill, kryddaður
og spennandi réttur
„Reyndar er Chili con carne sá
réttur sem mér datt samt fyrst í hug
og kannski af því ég er stöðugt að
þróa þann rétt og finnst gaman að
elda hann og síðan er þetta kjarn-
mikill réttur, kryddaður og spenn-
andi. Einfaldur en samt flókinn því
hann er eins og allt annað sem við
matreiðum jafn góður og hráefnið
sem fer í hann. Við grínumst oft
með það á heimilinu hvaða mat
við myndum velja að borða ef við
ættum bara eftir að borða eina
máltíð í þessu lífi. Þegar best tekst
til við að elda chili-ið hefur þessi
réttur gjarnan verið minn.“
Skvetta af rauðvíni
og dökkt súkkulaði
„Ég byrjaði að kaupa nautakjöt
beint frá bónda fyrir nokkrum
árum, grasfóðrað holdanaut frá
Hálsi í Kjós. Ég keypti nautahakk
hjá þeim og fann hvernig allir
nautakjöts- og hakkréttir sem ég
hafði gert áður urðu svo miklu
betri og þá fór chilirétturinn minn
að þróast í það sem hann er í dag.
Splæsti í hann góðri skvettu af
rauðvíni og keypti mjög dökkt
súkkulaði (77% eða 85%) til að setja
út í hann síðast. Í Suður-Ameríku
er dökkt súkkulaði notað í kjötrétti
en þá er það ósætt súkkulaði sem
fæst þar. Ég kaupi það stundum á
ferðalögum en dökka súkkulaðið
sameinar svo skemmtilega kryddin
og kjarnann í réttinum. Ofnsteiktir
kartöflubátar, sýrður rjómi og
lárperusneiðar er allt sem þarf sem
meðlæti. Ég hita líka nachos stutta
stund í ofninum og ber fram með
en þær mega ekki vera með osta-
bragði eða kryddaðar, bara „natur“.
Gott að „kósa“ sig með chili
Aðspurð segir Sirrý að elda-
mennskan á hennar heimili
Súkkulaðið toppar réttinn
Matur er manns megin sagði skáldið og það eru svo sannarlega orð að sönnu. Það má líka gera
ráð fyrir að eldamennskan og áherslan í matargerðinni breytist eftir árstíðum, veðri og vindum.
Sigríður Bragadóttir rekur matreiðsluskólann Salt Eldhús. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Chili con carne með rauðvíni og súkkulaði.
Sjöfn
Þórðardóttir
Matarást
Sjafnar
breytist þegar veturinn skellur á
og súpurnar skipi þá meira hlut-
verk. „Eldamennskan breytist svo
sannarlega þegar veturinn knýr á
dyr, þá er kryddaðri matur, kjarn-
miklir pottréttir og súpur í for-
grunni. Þegar ég bjó í Frakklandi
borðuðum við gjarnan matar-
miklar súpur á kvöldin, þar er ekki
kynt í húsum eins og hér því þar er
kynding dýr, þar er max 18°C inni
í húsum og súpur hlýja kroppinn
svo vel. Sem betur fer getum við
hér á landi hitað húsin vel en þegar
slydda og slagveður er úti er nota-
legt að „kósa“ sig með gott chili.“
Chili con carne
að hætti Sirrýjar
3 msk. olía
2 laukar, saxaðir mjög smátt
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 rauður chili-pipar, saxaður eða
½ tsk. chiliflögur
600 g gæða nautahakk
1 kúfuð tsk. kumminduft
1 kúfuð tsk. reykt paprika,
(smoked paprika)
1 dl rauðvín (má aðeins vera
meira eða um 1½ dl ef þið eigið)
1 dós góðir saxaðir tómatar,
(nota tómata og safa) eða smá-
tómata í dós
1 msk. tómatpúra (tomatpuré)
1 dl vatn
1 dós nýrnabaunir, safi sigtaður
frá og þær skolaðar
15-20 g súkkulaði 85% (kannski
minna, smakka til) fæst í heilsu-
deildum verslana
Salt og nýmalaður pipar og nauta-
kraftur ef þarf
Byrjið á því að skera laukinn
smátt og steikja hann í olíunni við
vægan hita þar til laukurinn fer
að verða glær, gott er að gefa þessi
svolítinn tíma. Notið rúmgóðan
pott eða pönnu með loki. Bætið
söxuðum hvítlauk og chili-pipar í
síðustu mínúturnar. Bætið nauta-
hakkinu í pottinn (eða pönnuna)
og steikið með lauknum þar til
það er vel brúnað. Setjið kummin
og papriku út í og steikið með
í 1 mínútu. Bætið rauðvíni út í
og látið malla í nokkar mínútur.
Bætið þá tómötum, tómatmauki
og vatni í pottinn og hrærið
saman við. Látið þetta allt malla
við vægan hita undir loki í 40
mínútur. Bætið nýrnabaunum í í
lok suðutímans, þær eru soðnar en
þurfa að hitna vel í gegn. Brjótið
súkkulaði í litla bita, setjið út í og
látið bráðna saman við. Smakkið
til með salti og pipar og bætið ef
til vill chilif lögum og nautakrafti
út í ef ykkur finnst rétturinn megi
vera sterkari. Ef tómatpúran er
súr, fer eftir tegund, er ráð að bæta
örlitlum púðursykri í og það gildir
alltaf þegar hún er notuð. Borðið
með heitum nachosflögum,
sýrðum rjóma og lárperumauki.
Njótið vel.
NÝ HÁRLÍNA FRÁ LAVERA
NÝTT
Sölustaðir: heilsuverslanir, Hagkaup, Heimkaup.is og valin apótek.
Fylgdu okkur:
„Lavera Íslandi“
• Einstök formúla sem þykkir og mýkir.
• Sjö nýjar tegundir af sjampói og næringu.
• Lífrænt vottað og sílikon frítt í endurunnum umbúðum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R