Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 22
Haukur hefur verið virkur þátttakandi í að byggja upp frumkvöðlaumhverfið á
Íslandi og kenndi sitt fyrsta nám
skeið í stofnun fyrirtækja árið
2009 en núna er hann í fullu starfi
við námskeiðahald.
„Þetta var ekki úthugsað hjá
mér þegar ég byrjaði. Það var nei
kvæðni í samfélaginu á þessum
tíma, en ég tel mig vera frumkvöð
ul og eitt helsta einkenni frum
kvöðla er að hugsa í lausnum,
ég setti þess vegna saman frítt
námskeið til að hjálpa fólki að
skapa sín eigin störf. Það voru 250
manns sem komu á það. Fimm
tán fyrirtæki voru stofnuð í beinu
framhaldi og ennþá fleiri á næstu
mánuðum og árum á eftir. Það var
upphafið hjá mér að því að byrja
að kenna en það var aldrei planið
hjá mér,“ segir hann.
Haukur heldur úti vefsíðunni
frumkvodlar.is þar sem hann
bloggar reglulega um frumkvöðla
starf. Nýlega gerði hann óform
lega könnun á Facebookhópnum
Íslenskir frumkvöðlar til að fá
innsýn í það hvað kemur helst í
veg fyrir að fólk láti drauma sína
rætast og stofna fyrirtæki.
Haukur skrifar á bloggið að við
fyrstu sýn virðist hindranirnar
vera nokkuð fjölbreyttar en þegar
betur er skoðað megi sjá að þær
snúast allar um ótta og skort á
réttu auðlindunum. Efst á lista
yfir þær hindranir sem fólk nefndi
var skortur á fjármagni, næst kom
að erfitt væri að taka skrefið úr
öruggu starfi yfir í eigin rekstur,
því næst kom óvissa með næsta
skref, ótti um að mistakast og
skortur á tíma. Haukur segir að
lausnir á þessum vandamálum
séu yfirleitt ekki f lóknar en hann
fer yfir þær á blogginu og skrifar
meðal annars:
„Algengasta hindrunin er
skortur á fjármagni. Þetta er
afsökun sem heyrist alls staðar
í umhverfi frumkvöðla, en stað
reyndin er sú að það þarf ekki
mikið fjármagn til að fara af stað.
Það að vera frumkvöðull er ekki
bara að setja upp excelskjal með
viðskiptaáætlun og afkomuspá
næstu ára. Það að vera frum
kvöðull er að koma sér af stað með
litlum tilkostnaði með hugmynd
sem svo vex og dafnar í það sem
þú vilt að hún verði, en það tekur
tíma. Þú þarft að finna lausnir
óháð því hvaða takmörkunum þú
ert háð/ur, hugsa út fyrir kassann.
Besta leiðin til að fjármagna fyrir
tæki er að byrja strax á því að selja
vöruna eða þjónustuna sem fyrir
tækið býður upp á. Það er hægt
að gera með litlum tilkostnaði,
jafnvel á netinu, þú þarft ekki
skrifstofuhúsnæði, f lotta heima
síðu, nafnspjöld eða sérhannað
logo til að byrja.“
Aðspurður segir Haukur að
niðurstöður könnunarinnar hafi í
sjálfu sér ekki komið á óvart.
„Þetta eru sömu ástæður og
ég hef heyrt hjá fólki á nám
skeiðunum hjá mér. En þetta eru
yfirstíganlegar hindranir. Lang
stærsta hindrunin er þessi andlega
hindrun. Fólki finnst þetta svo
stórt og f lókið. En þetta er ekkert
svo f lókið. Það þarf ekki að vera
vísindamaður til að finna úr út
þessu. Ég verð oft var við það á
námskeiðunum að þá kviknar á
perunni hjá fólki, það fær yfirsýn
yfir hvernig ferillinn er og þá
verður þetta allt miklu auðveld
ara,“ segir Haukur.
Hann segist hafa kynnst því
sjálfur þegar hann stofnaði sitt
eigið fyrirtæki að það var erfitt að
fá skýr svör og lítið var um fræðslu
um fyrirtækjarekstur.
„Þegar ég var í námi var þessi
möguleiki lítið kynntur fyrir
mér. Og mér finnst almennt mjög
mikilvægt að þetta sé möguleiki.
Sérstaklega í svona ástandi eins og
er núna, fólk er að missa vinnuna
og það er ekkert auðvelt að fá
vinnu. Af hverju þá ekki að búa sér
til vinnu með því að stofna fyrir
tæki?“ segir Haukur og bætir við:
„Auðvitað er þetta mikil lær
dómskúrfa, þegar fólk er að fara út
í eitthvað sem það hefur ekki gert
áður. En það er til fullt af aðgengi
legu efni til að fá upplýsingar.
Ég hef verið að skrifa mikið af
greinum og búa til myndbönd þar
sem ég tala við aðra frumkvöðla.
Fólk getur aflað sér mikið af upp
lýsingum í dag svo þetta ætti ekki
að vera svo óyfirstíganlegt lengur.“
Haukur segir að hann sjálfur
hafi ákveðið fyrir um það bil
tveimur og hálfu ári að breyta til
og fá sér venjulega vinnu. Hann
var nýbúinn að selja fyrirtækið
sitt og hann og konan hans voru
að stofna fjölskyldu. Hann hugsaði
með sér að þá væri kannski örugg
ara að starfa fyrir einhvern annan.
„En svo þegar COVID kom þá
var ég látinn fara. En þá var það
frumkvöðlaeðli mitt og reynsla
mín af því að reka fyrirtæki sem
bjargaði mér. Ég þurfti ekki aftur
í það að fara að leita að vinnu,
sérstaklega út af þessu ástandi,
heldur gat ég nýtt mér þá þekk
ingu sem ég hafði og stofnaði
fyrirtæki og ég starfa á fullu við
það. Þetta er líka það sem ég hef
mest gaman af svo þetta var full
komin lausn fyrir mig.
Andlega hindrunin er stærst
Haukur Guðjónsson er frumkvöðull með langa reynslu af fyrirtækjarekstri og námskeiðahaldi.
Nýlega gerði hann óformlega könnun á því hvað hindrar fólk í að stofna eigið fyrirtæki.
Haukur segist
vera frumkvöð-
ull í eðli sínu.
MYND/AÐSEND
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R