Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 13.11.2020, Qupperneq 30
BUBBI ER EINN FÆRASTI LAGA- SMIÐUR SEM VIÐ HÖFUM ÁTT, EF EKKI SÁ FÆRASTI, OG FLOTTUR SÖNGVARI EN TEXTA- GERÐ HANS ER ÞAÐ MERKASTA. BÆKUR Káinn, fæddur til að fækka tárum Jón Hjaltason Útgefandi: Völuspá Fjöldi síðna: 360 Þetta haustið fær Káinn, sem upp- haf lega mun hafa merkt ljóð sín K.N., verðskuldaða athygli. Fyrir utan bókina sem hér er til umfjöll- unar, gaf hljómsveitin Baggalútur út ellefu laga plötu, Sólskinið í Dakóta, í haust við ljóð Vestur-Íslendinga, þar af eru níu eftir Káin. Það leynir sér ekki við lestur bókar- innar um Káin að höfundur hennar, Jón Hjaltason sagn- fræðingur, hefur haft gaman af verkefninu. Textinn er leiftrandi af kímni enda hæfir það vel umfjöllunar- efninu, „fyrsta og eina kímniskáldi Íslend- inga“ eins og segir á bókarkápu. Um leið og sögð er saga Kristjáns Níelsar Jónssonar, Káins, er sögð saga þjóð- ar og lýst aðstæðum sem hún bjó við á síðari hluta 19. aldar, örbirgð og vesæld. Káinn lifði á þeim tímum þegar stór hópur Íslendinga tók sig upp og f lutti vestur um haf í leit að betra lífi. Nítján ára fluttist hann til Vesturheims og settist að í Winnipeg í Manitóba og svo síðar í Norður-Dakóta. Fyrir okkur sem nú erum uppi er frásögnin af líf inu á A k urey r i, he i m a b æ s k á l d s i n s , framandleg þó ráma megi í sambærilegar lýsingar úr sögu- tímum. Þær voru þó, í minningunni að minnsta kosti, fremur almenns eðlis. Frásögnin af lífinu á Akureyri á þessum árum er áhrifamikil og sýnir vel hversu erfitt uppdráttar blásnautt fólk átti á þeim tíma. Þótt tilvera þessa fólks hafi verið erfið og harðdræg virðist alltaf hafa verið stutt í kímnina sem einkenndi mest af skáldskap Káins. Káinn var einn þeirra fjölmörgu sem fluttust frá landinu og til Vesturheims. Þó vonin hafi verið sterk um bærilegri vist vestra þurfti einnig mikið að hafa fyrir lífinu þar. Saga Káins í Vesturheimi er einnig saga þeirra landa hans sem þangað f luttu og þeirra ástæðna sem að baki bjuggu. Þannig er bók Jóns Hjaltasonar saga skáldsins en einnig sagnfræðileg heimild um líf horfinna tíma bæði hér og ytra. Jóni tekst vel upp og afrakstur- inn er leiftrandi skemmtileg bók þar sem stórmerkum tíma Íslands- sögunnar eru gerð skil. Jafnframt er í bókinni birtur fjöldi ljóða skálds- ins sem sum hver eru þekkt og önnur síður. Umbrot og frágangur bókarinnar er til fyrirmyndar og vel vandað til verka. Jón Þórisson NIÐURSTAÐA: Eiguleg bók sem lýsir vel aðstæðum í tveimur heimum á nítjándu öldinni. Um leið og ævi ölkærs skálds er rakin er dreginn fram merkur hluti sögu Íslendinga þegar þeir fluttust unn- vörpum vestur til að freista gæfunnar. Leiftrandi bók um fyrsta kímniskáldið Bubbi Morthens – Fer-illinn í fjörutíu ár er bók um tónlistarferil Bubba Morthens eftir Á r n a M at t h ía s s on blaðamann. „Í bókinni rek ég uppruna Bubba, segir frá umhverfinu sem hann kemur úr og skýri hvers vegna hann hefur brunnið svo fyrir því að berjast fyrir réttindum smæl- ingja. Svo byrjar sagan með látum 1980 þegar tvær lykilplötur hans, Geislavirkir og Ísbjarnarblús, koma út og breyttu rokksögunni. Í kjöl- farið varð Bubbi Morthens á allra vörum og hefur verið þar síðan, óhemju af kastamikill og vinsæll tónlistarmaður og sjónvarpsmaður, umdeildur og dáður,“ segir Árni. Spurður hvort hann hafi leitað til Bubba við vinnslu bókarinnar segir hann: „Ég leitaði til Bubba þegar mér fannst tímasetningar stangast á eða atburðarás óljós, en annars byggir bókin á heimildasöfnun og viðtölum við fjölmarga sem unnið hafa með Bubba í gegnum árin og þekkja hann vel. Ég fékk Bubba svo til að segja mér frá nokkrum lykil- lögum frá ferlinum.“ Árni kynntist Bubba í Vest- mannaeyjum árið 1974. „Ég var þá að fara á humarbát og við urðum miklir vinir. Við vorum tveir bess erwisserar og örugglega alveg óþolandi, étandi sveppi og reykjandi hass. Bubbi var alltaf með gítarinn og báðir höfðum við áhuga á amerískum þjóðlagasöng og kassagítarblús. Bubbi er mjög klár, fólk gleymir því oft af því per- sónan sjálf er svo yfirþyrmandi. Hann er vel lesinn og fólk sem les mikið veit mikið.“ Merk textagerð Spurður hvað geri Bubba að svo merkilegum tónlistarmanni segir Árni: „Bubbi er einn færasti laga- smiður sem við höfum átt, ef ekki sá færasti, og f lottur söngvari en textagerð hans er það merkasta. Ég held því fram að hann sé þjóðskáld okkar í dag. Allir þekkja hann, allir hafa skoðun á honum og fólk kann lög hans. Ég held til dæmis að nánast allir Íslendingar kunni Stál og hníf. Í textunum hefur hann veitt Þjóðskáld okkar í dag og líka samviska þjóðar Árni Matthíasson er höfundur bókar um tónlistarferil Bubba Morthens. Hann segir Bubba vera einn fær- asta lagasmið sem við höfum átt en textagerðin sé það merkasta. Segir Bubba súmmera upp íslenska þjóð. Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu, fjallar um fjörutíu ára feril Bubba Morthens í nýútkominni bók sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bubbi Morth­ ens hefur alltaf verið eins og við. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is aðgang að sínum innri manni og einkalífi og hefur verið ótrúlega duglegur að tala um alls kyns mál sem fólk talar almennt ekki um, eins og til dæmis sjálfsvíg, bága stöðu kvenna og of beldi. Hann samdi frábært lag um mann sem átti barn sem varð morðingi. Hann hefur verið þjóðskáldið okkar en líka samviska þjóðarinnar.“ Alltaf verið trúbador Bubbi hefur verið afkastamikill og ekki slakað á síðustu ár og væntan- leg er 34. sólóplata hans. „Ef við teljum með plöturnar sem hann hefur gert með hljómsveitum þá eru þetta orðnar 44 plötur,“ segir Árni og bætir við: „Hann hefur líka gefið út frábærar ljóðabækur en þar hefur hann meðal annars ort um kynferðislegt of beldi sem hann varð fyrir og þrengingar og erfið- leika vegna neyslu.“ Spurður hvort hann sjái ákveðna þróun á hinum langa ferli Bubba segir Árni: „Bubbi hefur gert alls konar hluti í gegnum tíðina og spilað alls konar tónlist, meðal ann- ars gefið út plötur með miklu rokki og haft gríðarleg áhrif hvað það varðar. Lili Marlene er rokkplata en þar kemur hann fram sem trúbador með rokkundirleik. Hann hefur allt- af verið trúbador, Bubbi Morthens með kassagítarinn.“ Eins og við Á tímabili varð Bubbi fyrir allnokk- urri gagnrýni þar sem hann þótti verða orðinn full borgaralegur. Um þetta tímabil segir Árni: „Móðir þeirra bræðra innrætti þeim að standa með smælingjanum og það hefur verið rauður þráður í gegnum líf Bubba. En þegar hann fór í með- ferð í annað sinn og náði tökum á neyslunni þá langaði hann til að lifa smáborgaralegu lífi, vakna á morgnana með börnunum og vera heima þegar þau kæmu heim úr skólanum. Á þeim tíma heillaðist hann af þeim draumi, sem margir voru uppteknir af, að það væri frá- bært að vera ríkur og það væri gott að græða. Hann færðist svo langt til hægri að hann sagði í viðtali að hann væri Sjálfstæðismaður. Svo kom í ljós að hann var það ekki. Það sem ég held að fólk sé mjög hrifið af er að Bubbi hefur alltaf verið eins og við. Hann talar til okkar af því að hann er við, hann súmmerar upp hina íslensku þjóð.“ 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.