Fréttablaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 31
BÆKUR
Skógurinn
Hildur Knútsdóttir
Útgefandi: JPV
Fjöldi síðna: 311
M a r g i r
hafa ef laust
beðið þess
með mikilli
e f t i r v æ n t-
ingu að fá í
hendur og
hu g lok a-
h l u t a n n
í þ r í l e i k
H i l d a r
K n ú t s -
dóttur sem
hófst með
s k á l d s ö g -
unni Ljónið
sem kom út 2018 og var fylgt eftir
með framtíðartryllinum Nornin
sem kom út í fyrra. Sú fyrrnefnda
segir frá unglingsstúlkunni Kríu í
okkar samtíma, fyrstu ástinni og
dularfullum atburðum sem tengj-
ast skáp í húsi á Skólastrætinu í
hjarta Reykjavíkur. Í annarri bók-
inni kynnumst við Ölmu, dóttur-
dóttur Kríu, árið 2099 og þeirri
Reykjavík sem loftslagsbreytingar
hafa fært komandi kynslóðum
og einnig þar verður skápurinn
í Skólastræti miðpunktur dular-
fullra og óskiljanlegra atburða.
Titlar bókanna eru vitnun í ann-
arsheimsfantasíu breska rithöf-
undarins CS Lewis sem kom út árið
1950 og ber heitið Ljónið, nornin og
skápurinn. Þar er skápur hlið inn
í annan og gerólíkan heim, ekki
ósvipað því sem gerist í þessum þrí-
leik nema hvað nafn þriðju bókar-
innar er ekki Skápurinn heldur
vísar í það sem býr handan hans,
sem er Skógurinn.
Í bókinni fylgjumst við með Kríu
fóta sig í heiminum handan skáps-
ins sem er í senn alveg framandi en
samt að einhverju leyti líkur okkar
heimi, þar er líf, vatn og gróður en
allt er þetta þó ólíkt því sem gerist
okkar megin.
Kría reynir að leysa ráðgátuna
um sjálfa sig, húsið og hinn fagra
og hættulega Davíð og jafnframt að
skilja þennan nýja heim sem hún er
skyndilega föst í. Og lesendur eru
með henni í uppgötvun á nýjum
heimi og leit að svörum við gátum
hins gamla.
Hildur Knútsdóttir er höfundur
með óvenjulegt og ríkulegt ímynd-
unaraf l og nær betri tökum á stíl-
brögðum og orðfimi með hverri
bók. Þessi bók heldur lesanda vel
við efnið og heimurinn sem hún
skapar er sannferðugur og vel hugs-
aður.
Í fyrri tveimur bókunum er
daðrað við hið yfirskilvitlega en í
Skóginum er fantasían eða jafnvel
vísindaskáldskapur allsráðandi.
Kría notar eðlisfræðilögmál til að
reyna að skilja það sem hún upp-
lifir og löngu máli er varið í að
kynna og skýra þennan nýja heim
sem við blasir, hvort sem lýtur að
samfélagsuppbyggingu og vistkerfi,
veðurfari eða stöðu himintungla.
Aðeins minna og eiginlega of
litlu púðri er hins vegar eytt í að
tengja saman lausa þræði úr fyrri
bókunum og skýra það sem þar
gerist. Sem gæti valdið einhverjum
lesendum ákveðnum vonbrigðum
þar sem heilmikil spenna hefur
fengið að byggjast upp á tveimur
árum sem ekki fær þá lausn sem
lokabókin í æsispennandi þríleik
þarf helst að bjóða upp á. Áherslan
er of mikil á skóginn á kostnað
skápsins. Nema fjórða bókin sé í
farvatninu.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og áhuga-
verð fantasía sem nær samt ekki alveg
að ljúka því verki sem hafið var.
Skápurinn
3 online g jör ningad ag sk r á Sunday Seven-hópsins fer fram í dag, föstudaginn 13. nóvem-
ber. Útsending hefst klukkan 20.00
og verður streymt í gegnum Artz-
ine. is. Einnig er hægt að sjá við-
burðinn frá viðburðasíðu hópsins
sem ber heitið „Sunday 7 live on
Friday the 13th“.
Gjörningalistamennirnir koma
fram í þessari tímaröð að íslenskum
tíma:
n 20.00 – Styrmir Örn Guðmunds-
son + Agata Mickiewicz
n 20.20 – Ásta Fanney Sigurðar-
dóttir
n 20.40 – Magnús Logi Kristinsson
n 21.00 – Snorri Ásmundsson
n 21.20 – Sigtryggur Berg Sigmars-
son
n 21.40 – Ingibjörg Magnadóttir
n 22.00 – Darri Lorenzen
Gjörningadagskrá Sunday Seven
Snorri Ásmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÚTSENDING HEFST KL 20.00
OG VERÐUR STREYMTÍ GEGN UM
ARTZINE.IS
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„ÞETTA ER
STÓRVIRKI.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
„Eins og varða í íslenskum
barna- og unglingabókmenntum.“
Egill Helgason / Kiljan
Skógurinn er æsispennandi og
dularfull framtíðarsaga eftir
verðlaunahöfundinn Hildi
Knútsdóttur. Lokabindið í
þríleiknum um Kríu.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F Ö S T U D A G U R 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0