Fréttablaðið - 13.11.2020, Page 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.
geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Við erum til staðar
Leysum málin
Við hvetjum þig til þess
að hafa samband í gegnum
rafrænar þjónustuleiðir okkar.
Nánari upplýsingar
á vodafone.is
Netspjall vodafone@vodafone.isPanta símtal Mínar síður
Fljúgðu burt dúfa kom til mín í nokkrum mis-munandi myndum og er fyrsti singúll af plötu sem mig langar til að gefa út árið 2021,“ segir tón-
listarmaðurinn Auður um nýtt lag
sem hann sendir frá sér í dag.
Auður segir að dúfan sú hafi fyrst
komið til hans í Mývatnssveit þar
sem hann hefur á þessu ári eytt
drjúgum tíma við tónsmíðar. „Fyrst
var þetta kassagítarlag á Mývatni,
síðan endurútsett með hipphopp-
pródúksjóni og 808 bassa í Reykja-
vík og loksins strípað niður í ekkert
nema píanó og söng í Ártúninu.“
Nakið og berskjaldað
Auður segist síðan í raun einfaldlega
hafa slökkt á öllum rásunum þar
til ekkert var eftir nema feltpíanó-
leikur Magnúsar Jóhanns Ragnars-
sonar.
„Eftir var Maggi minn á feltpíanói
og þegar maður tekur upp svona
feltpíanó þá heyrast brak og brestir
á hljómborði hljóðfærisins, ruggið
í stólnum og andardrátturinn í
tónlistarmanninum. Berskjaldað
og nakið,“ segir Auður og bætir við
að „vandvirki engillinn“ Styrmir
Hauks hafi mixað lagið.
„Þegar ég gaf út Afsakanir fékk ég
mikið lof fyrir textana mína. Fólk
sem þekkti mig ekki hrósaði mér
fyrir að vera opinskár og tilfinn-
ingalega hreinskilinn,“ segir Auður
um sína aðra plötu sem hann sendi
frá sér síðla árs 2018.
Afsakanir á erfiðum stað
„Þetta var að gerast á sama tíma og
ég strögglaði mjög mikið með það
að opna mig gagnvart fólki í kring-
um mig. Ég var á erfiðum stað and-
lega og fannst skrítið að fá einlæg
skilaboð um að ég væri að hjálpa
ungum strákum og stelpum þegar
ég átti erfitt með að hjálpa sjálfum
mér.“
Að baki tónlistarmanninum Auði
er Auðunn Lúthersson sem gefur
sjaldan á sér færi og er annálaður
fyrir að forðast fjölmiðla og viðtöl.
„Ég hef bara farið í eitt almennilegt
viðtal og af þakkað mörg góð boð
hjá fjölmiðlafólki sem vinnur mikil-
væga vinnu.
Hundsar utanaðkomandi
greiningar
Ég finn fyrir löngun til þess að
aðskilja einkalíf mitt og atvinnu en
ég gæti samt ekki hugsað mér annað
en að semja út frá eigin tilfinn-
ingum, upplifunum og umhverfi,“
segir Auður og víkur að óhjákvæmi-
legum afleiðingum sinnar persónu-
legu aðskilnaðarstefnu.
„Fyrir vikið hef ég verið til
umræðu í f jölmiðlum og sam-
félagsmiðlum sem ýmist einlægur
geðsjúklingur, dópaður snillingur,
kynóður poppari og síðan femín-
ísk fyrirmynd. Það er ekki mitt að
segja og ég held ég sé frekar góður
í að hunsa þessar utanaðkomandi
greiningar. Ég veit aðeins það eitt að
ég er tónlistarmaður og að listin á
hug minn og hjarta.“
Töfrar Mývatns
Örlögin og þá aðallega veiran
bölvuð urðu til þess að í stað þess
að láta sig hverfa til Los Angeles í
Bandaríkjunum í vor endaði Auður
í Mývatnssveit þar sem hann hefur
dvalið með hléum og samið tónlist
í rómaðri náttúrufegurðinni. Eða
eins og hann orðaði það sjálfur á
Instagram í apríl:
„Lífið er skrítið lítið ferðalag. Ég
átti one way ticket til LA á morgun,
ætlaði að flytja og koma heim til að
spila á þjóðhátíð og Airwaves.“
Hann tók þannig ástfóstri við
Mývatn og þar varð, eins og áður
segir, frumútgáfa nýja lagsins til
ásamt efni í tvær plötur, eftir því
sem næst verður komist.
benediktboas@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Auður hunsar kjaftasögurnar enda
hvorki dópaður né kynóður poppari
Tónlistarmaðurinn Auður gefur í dag út lagið Fljúgðu burt dúfa og fékk vængi við Mývatn. Hann vonar að þetta
lag verði aðeins forsmekkurinn að nýrri plötu sem hann langar að gefa út á næsta ári. Hann stendur vörð um
einkalíf sitt og forðast viðtöl þótt það geti kallað yfir hann alls konar kjaftasögur sem hann lætur ekki trufla sig.
Haustlitir Mývatns falla vel að Auði sem nýtur sín svo vel í sveitinni að þar hefur hann verið tíður gestur á þessu ári
og samið ósköpin öll af nýrri tónlist. Þar á meðal það sem fær vængi á streymisveitum í dag. MYND/TJÖRVI JÓNS
ÉG VEIT AÐEINS ÞAÐ
EITT AÐ ÉG ER
TÓNLISTARMAÐUR OG AÐ
LISTIN Á HUG MINN OG HJARTA.
ÉG VAR Á ERFIÐUM
STAÐ ANDLEGA OG
FANNST SKRÍTIÐ AÐ FÁ EINLÆG
SKILABOÐ UM AÐ ÉG VÆRI AÐ
HJÁLPA UNGUM STRÁKUM OG
STELPUM ÞEGAR ÉG ÁTTI
ERFITT MEÐ AÐ HJÁLPA
SJÁLFUM MÉR.
1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð