Fréttablaðið - 17.11.2020, Side 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Markaðurinn er á
frettabladid.is
Markaðurinn færir þér nýjustu
viðskiptafréttirnar og greinargóða
umöllun um viðskiptalíð.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Markaðurinn er á
frettabladid.is
Markaðurinn færir þér nýjustu
viðskiptafréttirnar og greinargóða
umöllun um viðskiptalíð.
Þetta er dapurlegt en því miður kemur alltaf að því að maður verði að láta viðskiptalegu sjónarmiðin ráða,“ segir Klaus Ortlieb, eigandi
og hótelstjóri á Hlemmi Square, sem
treystir sér ekki til að halda rekstr
inum áfram í tómlegri Reykjavíkur
borg þar sem varla er lengur túrista
að sjá.
Klaus hefur áratuga reynslu af
hótelrekstri víða um heim og þótt
hann hafi aldrei upplifað annað
eins ástand og það sem nú er við að
eiga segist hann upplifa persónu
leg vonbrigði þegar hann neyðist
til þess að loka á Hlemmi eftir sjö
ár og margra mánaða úthald og
einbeittan vilja til þess að komast í
gegnum kófið.
Náðarhögg annarrar bylgju
Klaus bætir við að um mitt sumar
og fram í ágúst hafi hann verið að
vona að þetta myndi hafast. „Þang
að til þessum hertu samkomutak
mörkunum var skellt á okkur aftur.
Þá þyngdist róðurinn verulega og
síðan þá hefur þetta bara orðið
erfiðara.“
Klaus bendir á að hann hafi strax
í upphafi ákveðið að halda hótel
inu opnu og hann hafi þó haldið út
þetta lengi og segist ætla að halda
aðeins lengur í vonina um að sögu
Hlemms Square hafi ekki lokið
endanlega þegar hann skellti í lás á
sunnudaginn.
„Nú er bara að bíða og sjá hvernig
allt þróast en ég er ekki vongóður
um að neitt gerist á þessu ári. En
sjáum hvað næsta ár ber í skauti
sér,“ segir Klaus óbugaður og hljóm
ar merkilega brattur.
Spennandi tilraun
„Ég kýs að líta á þetta sem tíma
bundna lokun til þess að geta
þraukað þetta og ætla að sjá til
hvernig málin þróast í nánustu
framtíð sem enn er öllum hulin.
„Það er óheppilegt að enginn veit
hversu langan tíma þetta mun taka
og það var mjög dapurlegt að þurfa
að taka þessa ákvörðun en óhjá
kvæmilega hlaut að koma að þessu
á einhverjum tímapunkti.“
Klaus segir að um spennandi
tilraun hafi verið að ræða þegar
hann opnaði ásamt félögum sínum
Hlemm Square ofarlega á Laugaveg
inum fyrir sjö árum. „Við lögðum
upp með að skapa eitthvað ein
stakt í Reykjavík; hótel, gistiheimili,
veitingastað og bar. Allt undir sama
þaki.“
Þyngra en tárum taki
Klaus tilkynnti lokunina á
Facebook á sunnudags
kvöld og lét þess getið að
staðurinn hefði verið
bæði ferðafólki og sam
félaginu til ánægju og
yndisauka.
„Það er eiginlega yfir
þyrm andi hversu mikil
og falleg viðbrögð ég hef
fengið við tilkynningunni
um lokunina.“ Klaus bætir
við að hann sé hrærður yfir
viðbrögðunum og að hann vonist
til að geta uppfyllt óskir margra um
að hann geti opnað aftur.
„Það er þyngra en tárum taki að
Klaus hafi þurft að loka Hlemmi
Square og auðvitað heldur maður í
vonina um að þetta bjargist þegar
ferðamenn koma aftur til lands
ins,“ segir Anna Margrét Björns
son, nágranni staðarins og vinkona
Klaus.
Ekki bara hótel
„Hlemmur Square er nefnilega
miklu meira en bara eitthvert hótel
eða bar. Hlemmur Square blés lífi
og sál í þetta hverfi og var virkilega
mikil lyftistöng fyrir mannlífið,“
heldur Anna áfram en þeim Klaus
varð f ljótt vel til vina þegar hún
fór að venja komur sínar á hverfis
hótelbarinn.
„Klaus er í raun maðurinn sem
lyfti þessu hverfi öllu á hærra plan
og gerði það skemmtilegt og þetta
er mikill missir fyrir Reykjavík og
menningarlíf borgarinnar,“ segir
Anna og bendir á að Klaus hafi stutt
við ýmsa menningarstarfsemi og
hátíðir á borð við Stockfish, RIFF
og Reykjavik Fringe Festival. „Klaus
er sjálfur svo örlátur og yndis
legur gestgjafi að fastakúnnar úr
nágrenninu elska hann.“
Fer ekki strax
Sjálfur kolféll Klaus ungur fyrir
Íslandi og löngu síðar heillaðist
hann af litadýrð húsanna og and
anum í hverf inu á ofanverðri
Hverfisgötu og Laugavegi
og ákvað að hasla sér
þar völl.
„Ég verð hérna
eitthvað aðeins
áfram og sé til
hver nig þet t a
fer allt saman og
get kannski farið
fram og til baka
eins og venjulega,“
seg ir K lau s sem
hefur verið með annan
fótinn við Hlemm síðustu
sjö ár en þess á milli á f lakki milli
landa. Ekki síst í tengslum við hótel
rekstur sinn.
„Kannski endar þetta bara með
því að ég geti tekið smá vetrarfrí
til tilbreytingar,“ segir Klaus og
hlær dátt þrátt fyrir óvissuna og
framtíðina sem enn er hulin þoku
heimsfaraldursins.
toti@frettabladid.is
Klaus heldur í vonina
um líf á Hlemmtorgi
Klaus Ortlieb lokar Hlemmi Square með sorg í hjarta og segir það
persónuleg vonbrigði að þurfa að loka eftir sjö lífleg ár og margra
mánaða COVID-hark en vonar að þetta sé ekki fyrir fullt og allt.
Klaus Ortlieb hefur gefist upp fyrir kófinu eftir sjö ár á Hlemmi Square en lifir þó enn í voninni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞAÐ VAR MJÖG
DAPURLEGT AÐ ÞURFA
AÐ TAKA ÞESSA ÁKVÖRÐUN EN
ÓHJÁKVÆMILEGA HLAUT AÐ
KOMA AÐ ÞESSU Á EINHVERJUM
TÍMAPUNKTI.
Klaus Ortlieb
Anna syrgir
Hlemm Square.
DORMA HOME sængurföt
Sængurfötin frá Dorma Home eru ofin úr 300 gsm bómullarþræði sem
gefur frábæra endingu, viðkomu og mýkt. Þau eru með OEKO-TEX®
vottun um að þau séu framleidd án allra skaðlegra efna. Sængurfötin
koma í nokkrum mismunandi mynstrum/litum og fást í 3 stærðum.
ROMA svefnsófi
Aðeins 74.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
Heima er best
>> Jólin 2020 <<
Gerðu góð kaup i verslunum okkar eða
á dorma.is og við sendum allar vörur frítt
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Vel bólstraður og mjúkur click-clack svefnsófi í sterku áklæði sem fæst
í 5 mildum, fallegum litum. Hægt er að lyfta höfða- eða fótahluta. Bak
er tvískipt; hægt er að leggja annan eða báða hluta niður. Hæð sófa í
svefnstöðu er 50 cm og svefnpláss er 120x200 cm.
Fullt verð: 99.900 kr.
Fullt verð
140 x 200 cm: 9.990 kr.
Aðeins: 7.992 kr.
Fullt verð
140 x 220 cm: 11.990 kr.
Aðeins:9.592 kr.
Fullt verð
200 x 200 cm: 16.990 kr.
Aðeins: 13.592 kr.
20%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
DORMA HOME sængurföt
1 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð