Fjölrit RALA - 15.08.1994, Blaðsíða 5
3
FORMÁLI
Tildrög þess ritverks sem hér birtist eru þau að á fundi Verkefnaráðs í bútækni sem
haldinn var í maí 1992, kom fram að nauðsynlegt væri að taka til endurskoðunar innra
skipulag og aðbúnað í gripahúsum. í þessu sambandi var einkum fjallað um byggingar
fyrir mjólkur- og nautakjötsframleiðslu. Slíkt endurmat er nauðsynlegt í ljósi gjör-
breyttrar tækni við fóðuröflun, breyttra viðhorfa er snerta kröfur um aðbúnað við
mjólkurframleiðslu og nú eru uppi aðrar áherslur varðandi geymslu og nýtingu
búfjáráburðar. f framhaldi af þeirri umræðu var gerð framkvæmdaáætlun um þetta verk
en hún er í þremur meginköflum. í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir gagnaöflun úr erlendum
og innlendum heimildum. Einkum var ætlunin að leggja áherslu á samanburð ólíkra
húsagerða með tilliti til ofangreindra þátta. Til að framkvæma þetta verkefni var sótt um
fjárhagsaðstoð til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og hefur mestur hluti þessa verks verið
styrktur af honum.
Þær niðurstöður sem hér eru lagðar fram mynda mikilvægan grunn að áframhaldandi
þróunarvinnu varðandi hagkvæmni við gerð og skipulag húsakosts við mjólkur- og
nautakjötsframleiðslu. Verk þetta er unnið af Torfa Jóhannessyni, en hann hefur jafnhliða
unnið að námskeiðum sem tengjast gæðastjórnun við mjólkurframleiðslu í samvinnu við
Bændaskólann á Hvanneyri og Embætti yfirdýralæknis. Einnig hafa verið lögð drög að
öðrum áfanga verkefnisins en með honum er ætlunin að gera bæði tæknilegan og
kostnaðarlegan samanburð á ýmsum byggingagerðum og innra skipulagi. í lokaáfanga
verkefnisins er gert ráð fyrir að nauðsynlegt reynist að gera beinar tilraunir með einstaka
þætti til að aðlaga ýmis tæknileg atriði aðstæðum hérlendis.
Bútæknideild, júlí 1994
Grétar Einarsson