Fjölrit RALA - 15.08.1994, Blaðsíða 25
23
í breskum stöðlum fyrir
lífrænan búskap með
nautgripi er kveðið á um
að hver gripur (500 kg)
þurfi að hafa 9 m2 í
stíuplássi ef um sam-
eiginlegt legusvæði er að
ræða (þá er átt við hálm-
beð) en 6 m2 ef gripimir
hafa aðgang að afmörk-
uðu legusvæði hver fyrir
sig (Parish, 1990). Þetta
er margfalt meira rými en
venja er að nota hér-
lendis.
Greinilegt er að hér er um
athyglisverðar niðurstöð-
ur að ræða. íslenskar
rannsóknir á þessu sviði
hljóta að teljast brýnar,
sérstaklega með tilliti til
umræðu um markaðs-
setningu vistvænna afurða
erlendis.
Fe/dag - FU/day
Fe/kg vaxtar - FU/kg LW Dagl. vöxtur (g) - Daily gain (g)
m2/grip - m2/animal
6. mynd. Át, fóðumýting og vöxtur gripa við mismunandi rými á grip.
Úr 194 daga rannsókn á nautum sem við upphaf tilraunar voru 250 kg
(Andersen og Ingvartsen, 1991).
Figure 6. Feed consumption, utilisation and daily gain of fattening
bulls kept in pens with different stocking density. From the study of
Andersen and Ingvartsen (1991), with 250 kg bulls, that lasted for 194
days.
Vinna_______________________________________________________________________
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á minni vinnuaflsþörf við gegningar í
lausagöngufjósum en í básafjósum. Munurinn verður meiri eftir því sem fjósin
stækka, en þegar um lítil fjós er að ræða liggur munurinn aðallega í betri
vinnuaðstæðum, sérstaklega við mjaltir. Erfitt er að yfirfæra erlendar
vinnumælingar á okkar aðstæður. Mikilvægt er að endumýja sem fyrst vitneskju
um vinnuþörf og vinnuálag við hirðingu nautgripa hér á landi.___________
Almennt. Á 7. mynd eru teknar saman tölur úr nokkrum íslenskum, dönskum, sænskum
og þýskum vinnumælingum. Vinnuþörfin í lausagöngufjósunum er að jafnaði 0,5-1,5
mín. minni á kú hvem dag en í básafjósunum. Þá er munurinn á Danmörku og íslandi
vemlegur, eða ríflega fjórar mínútur á kú og dag. í 25 kúa fjósi munar því meira en 600
klst. á ári á vinnu við hirðingu. Að vísu eru íslensku tölurnar elstar og líklegt er að afköst
hafi aukist nokkuð frá þeim tíma er rannsóknirnar voru gerðar.
Lundqvist (1988) rannsakaði vinnuálag við gegningar í fjósum í Svíþjóð. Með því að