Safnablaðið Kvistur - 2019, Síða 24

Safnablaðið Kvistur - 2019, Síða 24
Á dögunum gaf Rannsóknar-setur í safnafræðum við Há-skóla Íslands út greinasafnið Saga listasafna á Íslandi. Ritstjóri er Sigurjón Baldur Hafsteinsson. Saga flestra listasafnanna er ung og til- vist margra þeirra spannar aðeins fáeina áratugi. Bókin er engu að síður heilmikill doðrantur sem telur alls 566 blaðsíður enda um 25 greinar að ræða um jafnmörg söfn. Raunar kemur á óvart hversu víðtæk starfsemi listasafna er hér á landi og ber það vott um mikinn myndlistaráhuga um allt land. Landsfjórðungarnir eiga allir sín listasöfn þótt vissulega séu þau flest á höfuðborgarsvæðinu en þar eru einnig umsvifamestu safnastofn- anir landsins. Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur hafa raunar hvort um sig nokkur söfn innan sinna vébanda sem starfrækt eru í húsum á mismunandi stöðum í höfuðborginni. Aðeins eitt þeirra fær sérumfjöllun í bókinni, en það er Listasafn Sigurjóns Ólafssonar sem starfaði sem sjálfseignarstofnun þar til það varð hluti af Listasafni Íslands fyrir nokkrum árum. Í aðfararorðum ritstjórans kemur fram að umfjöllun um Listasafn Skagfirðinga og Listasafn Akraness (og hugsanlega fleiri) vanti í bókina þar sem ekki var vitað af tilvist þeirra fyrr en um seinan. Sú stað- reynd endurspeglar út af fyrir sig þörfina á riti sem þessu en saga flestra listasafnanna í bókinni hefur ekki áður verið skráð. Sú sem þetta ritar saknar einnig umfjöllunar um Listasafn Samúels Jónssonar í Selár- dal, eins sérstæðasta og jafnframt afskekktasta listasafns landsins. Þá kemur á óvart að ekki sé minnst einu orði á Safnahúsið við Hverfis- götu þar sem yfirstandandi er metn- aðarfull sýning á sjónrænum arfi Íslendinga í samstarfi margra safna, þar á meðal Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Hið síðar- nefnda varðveitir jafnframt stóran hluta listasögu fyrri alda á Íslandi sem og ljósmyndasögu, en Sigurjón greinir frá því að enginn hafi fengist til að rita sögu Þjóðminjasafns- ins. Fjarvera Þjóðminjasafnsins (með kirkjulistargripum sínum og annarri myndlist, þar á meðal í ljós- myndasafni stofnunarinnar) verður að teljast galli á bókinni. Þessi fjar- vera vekur einnig spurningar um skilgreiningar á íslenskri listasögu. Ánægjulegt að sjá í bókinni greinar um sögu Hönnunarsafns Íslands og Ljósmyndasafns Reykjavíkur, auk þess sem rakin er stutt saga byggingarlistadeildar Listasafns Reykjavíkur, en hvar liggja mörkin þegar sjónlistir eru annars vegar? Hvers vegna er ekki fjallað um Kvik- myndasafn Íslands? Í heild er bókin gríðarlega áhugaverð lesning, á köflum fullítarleg en á móti kemur að mikilvægt er að gera skýra grein fyrir tilurð safnanna, viðleitni til að fjármagna reksturinn og efla starfsemina. Sú saga endur- speglar á mikilvægan hátt eldmóð sem stundum byggir á örlæti, fram- tíðarsýn og starfi fárra einstaklinga, framtakssemi og þrautseigju í menn- ingarstarfi, oft við erfiðar aðstæður, og síðast en ekki síst trú á gildi listarinnar í samfélaginu. Sumar greinar eru þess eðlis að lesandinn hrífst auðveldlega með, má þar nefna ævintýralega frásögn af björg- unarstarfi Listasafns Vestmannaeyja í eldgosinu 1973 og í Sveinssafni í Krýsuvík þegar ekki var útséð um húshitun fyrir veturinn. Þessi söfn varðveita bæði merkilegar safn- eignir en starfið er mikið til unnið í sjálfboðavinnu. Gegnumgangandi í umfjöllun bókarinnar er tilfinning fyrir björgun menningararfs, þar á meðal þeim sem tengist menningar- og listasögu ákveðinna staða. Fróð- legt er að lesa sér til um söfn sem varðveita – samhliða verkum eftir þekktari listamenn þjóðarinnar – verk eftir staðbundna listamenn sem eru lítt þekktir utan heimahaganna. Safneignir geta verið samsettar á ýmsan hátt og þannig myndast áhugavert samhengi sem vinna má úr með skapandi hætti í starfi safns- ins, svo sem á sýningum, í rann- sóknum og útgáfum og í söfnunar- stefnu. Safnasafnið á Svalbarðseyri hefur þá sérstöðu að safna alþýðulist og myndlist jaðarsettra einstak- linga, auk framsækinnar myndlistar menntaðra listamanna. Auðvelt er að nálgast upplýsingar um starfsemi safnsins en það verður ekki sagt um mörg önnur söfn sem fjallað er um í bókinni og því ljóst að hún hefur mikið heimildagildi. Bókin vekur lesanda jafnframt til vitundar um fjölbreytni listasafna á Íslandi, um þau miklu menningarverðmæti sem í þeim eru fólgin, og um hin ýmsu tengsl þeirra, jafnt innanlands sem út í heim. Áherslur bókarinnar eru fyrst og fremst sagnfræðilegar. Greinarn- ar birtast í tímaröð eftir stofnun viðkomandi safns, fyrst er fjallað um Listasafn Íslands sem stofnað var 1884 og síðast um Vatnasafnið á Stykkishólmi sem opnað var árið 2007. Söfn eru stofnuð í ákveðnu þjóðfélagsrými og endurspeglar tilurð þessara tveggja safna mikl- ar breytingar í þeim skilningi, sem og í viðhorfum til hlutverks Saga listasafna á Íslandi BÓKARÝNI / Anna Jóhannsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur 24

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.