Safnablaðið Kvistur - 2019, Qupperneq 31

Safnablaðið Kvistur - 2019, Qupperneq 31
31 Flest söfn fara nú þegar eina eða fleiri af þessum leiðum. Sum hafa tekið græna skrefið1 sem snýr að rekstrarhluta stofnananna. Víða um heim eru söfn hvött til að reikna út kolefnispor2 sín og finna leiðir til að kolefnisjafna þau.3 ICOM vinnuhópur um sjálfbærni mun kynna í haust nýjar leiðbeiningar til að hjálpa söfnum að ná þessu markmiði.4 Sjálfbærni og langtímavarðveisla eiga margt sameiginlegt. Í báðum tilfellum er horft til framtíðar á tíma- tengdan og hagkvæman hátt og tekið mið af því hvað ákvörðunin gæti haft í för með sér, til lengri eða skemmri tíma.5 Sjálfbær varðveisla miðar að jafnvægi á milli kröfunnar um að uppfylla bestu skilyrði fyrir varðveislu menningarfs og kröfunnar um hagkvæmni í rekstri safna hvað varðar t.d. efnis– og orkunotkun.6 Til að ná árangri verður að vera samspil á milli eftirtaldra þátta: Þekkingar um hrörnun safnkosts og varðveisluskilyrði hans, túlkun varðveislustaðla, efnisval m.t.t. umbúða, hagsýni og endurvinnslu. Umbúðir fyrir safngripi Umbúðir verja gripina fyrir ljósi, ryki, mengun, snertingu, hnjaski og draga úr áhrifum umhverfis- breytinga, sérstaklega raka- breytinga. Endurnýjun umbúða er mikilvægur liður í forvörslu gripa af ýmsum gerðum gripa. Sem dæmi má nefna umbúðaskipti ljósmynda/filma sem getur verið viðamikið verkefni. Söfn þurfa að reikna kostnað við að skipta um um- búðir (vinnutíma, efniskostnað) og hversu langur tími mun líða áður en nauðsynlegt verður að skipta um þær á nýjan leik (10–30 ár eða lengur?). Val umbúða byggist á efnastöð- ugleika þeirra ásamt því hversu vel þær eru tilþess fallnar að bæta varðveisluskilyrði gripa. Þær geta einnig orðið til þess að bæta aðgengi að safngripunum (t.d. gegnsæjar plastmöppur versus ógegnsæ pappírs- umslög). Í þessu tilfelli væri sjálfbært að velja umbúðir sem endast lengst (efnafræðilega stöðugar) – en væri það pappírinn eða plastið? Hvort efnanna verður hægt að endurvinna eftir 30–50 ár? Gæði efna í umbúðum hefur áhrif á líftíma þeirra en umhverfisskilyrði í geymslunum þar sem umbúðirnar og safngripirnir eru varðveittir (hita–og rakastig, mengun) hafa einnig áhrif á efnasamskipti þeirra á milli. Því verður að taka tillit til þessara atriða þegar nýjar umbúðir verða fyrir valinu. Til að auka sjálfbærni í varð- veislu safngripa er nauðsynlegt að skoða fyrst umhverfisskilyrði þeirra. Til dæmis ef hitastigið er of hátt (segjum yfir 20 gráður að meðaltali) í ljósmyndageymslum verða efnahvörf meiri og líftími gripa og umbúða því styttri. Umhverfisskilyrði fyrir safngripi og orkunotkun Síðustu 50 árin hafa forverðir veitt söfnum ráðgjöf um umhverfisskilyrði sem byggist á vísindarannsóknum sem stærstu safnarannsóknastofur heims hafa stundað á niðurbroti safngripa. Nákvæmir staðlar hafa verið gefnir út varðandi hita og hlutfallslegt rakastig fyrir alla efnis- flokka í þeim tilgangi að fyrirbyggja skemmdir og hægja á niðurbroti safngripa. Söfnin hafa verið hvött til að bæta umhverfisskilyrði gripa bæði í sýningarsölum og í geymslum, t.d. með því að setja upp loftræstikerfi og forðast raka– og hitasveiflur. Orkunotkun hefur aukist í samræmi við þessar úrbætur með þeim af- leiðingum að rafmagnskostnaður er orðinn stór liður í útgjöldum safna. Frekari rannsóknir hafa leitt í ljós að hægt er að endurskoða staðlana og gefa önnur viðmið.7 Í staðinn fyrir að mæla með æskilegu rakastigi (+/–5%), er frekar mælst til þess að söfnin leitist við að forðast öfgar. Sem dæmi má nefna að ásættanlegar sveiflur í rakastigi, þegar um lífræn efni8 er að ræða, geta verið á milli 45% og 60%, en ef þær fara yfir 65%, er hætta á myglu. Skalinn fyrir sveiflur í þessu tilfelli er þá 15 %. 9 Í öllum tilfellum verður hvert safn að skoða árstíða- sveiflur, tegund og ástand safnskosts og húsnæðis til að geta fundið bestu mögulegu varðveisluskilyrðin. Reglulegar mælingar og söfnun gagna eru ómissandi þáttur í að hrinda í framkvæmd áætlun um sjálfbæra varðveislu og það getur tekið nokkur ár að finna þær lausnir sem henta hverju safni fyrir sig. Leiðbeiningar til sjálfbærrar varðveislu Stærstu varðveislustofnanir heims hafa hafist handa við að gefa út leiðbeiningar eða leiðarvísa til að hjálpa söfnum við að innleiða sjálfbæra varðveislu. Flest þessara rita eru aðgengileg á netinu. Meðal þeirra má nefna tvær handbækur sem bandaríska rannsóknastofan, Image Permanent Institute, gaf út: IPI’s Guide to Sustainable Pres- ervation Practices for Managing Storage Environments (2012) og IPI’s Methodology for Implementing Sustainable Energy-Saving Strategies for Collections Environments (2017). Stofnunin heldur auk þess út heima-

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.