Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Jón Þór lætur af störfum Jón Þór Hauksson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur sagt starfi sínu lausu. Uppsögnin kemur í kjölfar uppá- komu sem varð í fagnaði liðsins í Búdapest í Ungverjalandi eftir að liðið hafði tryggt sér sæti í lokakeppni EM 2022. Jón mun hafa farið yfir strikið gagnvart nokkrum leikmönnum og látið óviðeigandi ummæli falla undir áhrifum áfengis. Ríkið áfrýjar í uppgreiðslugjaldsmáli Íslenska ríkið ætlar að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur um að uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs á árunum 2005- 2013 hafi verið ólöglegt. Í niðurstöðunni fólst að lánasjóðnum var óheimilt að krefja lánþega um uppgreiðslugjald þegar lán voru greidd upp á þessu tímabili. Töluverðir fjármunir eru undir í þessu máli enda mikill fjöldi lána sem tekinn var á þessum tímabili. Ríkisstjórnin freistar þess nú að fá málið tekið upp beint hjá Hæstarétti og sleppa millidómsstiginu, Landsrétti. Breyttar sóttvarnaaðgerðir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í vikunni nýjar sóttvarnareglur. Hægt var að opna sundlaugar fyrir gestum að nýju í gær og veitingastöðum var heimilt að taka á móti 15 einstaklingum og hafa opið til 22. Verslunum verður heimilt að hleypa inn fimm manneskjum fyrir hverja tíu fer- metra af húsnæði, mest 100 í einu. Áfram er þó almennt 10 manna samkomutakmörkun og fólk er hvatt til að velja fjöl- skyldumeðlimi og vini sem verði hægt að hitta yfir hátíðarnar. Teljast þá þeir aðilar innan jólakúlu einstaklings. Elísabet Guðmundsdóttir Elísabet Guðmundsdóttir, lýtalæknir og aktívisti gegn sótt- varnaaðgerðum, kom til landsins síðustu helgi og neitaði að fara í sýnatöku eða sóttkví. Var hún mætti skömmu eftir heimkomu á mótmæli og því ljóst að hún braut gegn sótt- varnareglum. Til umræðu hefur komið hvort Elísabet sé með læknaleyfi eða ekki. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, staðfesti að svo væri ekki, en Elísabet ætlar að stefna ríkislögreglustjóra fyrir staðfest- inguna sem og stefna þeim sem hafa látið hörð orð um hana falla í athugasemdakerfum. Zúistabræður ákærðir Bræðurnir Ágúst Árnar Ágústsson og Einar Ágústsson hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við starfsemi félagsins Zuism trúfélag. Eru þeir taldir hafa svikið úr ríkissjóði um 85 milljónir sem greiddar voru til þeirra í formi sóknargjalda. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bræðurnir hafa vakið athygli. En þeir voru áður þekktir sem Kickstar- ter-bræður eftir að þeir stóðu fyrir söfnunum í gegnum söfn- unarsíðuna Kickstarter en þeir voru báðir rannsakaðir af sér- stökum saksóknara fyrir þá starfsemi og var Einar dæmdur í fangelsi fyrir að hafa svikið tugi milljóna af einstaklingum. 92 prósent ætla í bólusetningu Mikill meirihluti Íslendinga er jákvæður gagnvart bólu- setningu við COVID-19, en samkvæmt könnun Maskínu ætlar 61 prósent svarenda ör- ugglega að láta bólusetja sig og 31 prósent ætlar líklega. Vonir standa til að bólusetningar hefjist hér á landi snemma á næsta ári. 1 Talið að ölvun og talsmáti Jóns Þórs kosti hann starfið – Niðrandi ummæli féllu fyrir framan alla Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, lét niðrandi ummæli falla um leikmenn er hann var undir áhrifum áfengis. 2 Kristján ákærður fyrir að hóta lögreglumönnum – Hlaut dóm fyrir fíkniefni, vopna- burði og árás í fyrra Kristján Einar Sigurbjörnsson var ákærður fyrir að hóta lögreglumanni lífláti. Málið er nú fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. 3 Stelpurnar hafa lengi viljað losna við Jón Þór úr starfi Sá orðrómur hefur gengið að leik- menn A-landsliðs kvenna hafi lengi viljað losna við Jón Þór Hauksson sem þjálfara. 4 Ótrúleg ástarsaga, 8 börn og fallegt líf í Grímsnesi Guðrún Helga Jóhannsdóttir og Yakhya Diop lifa mínímalísku lífi í Grímsnesinu. 5 Elísabet lýtalæknir lenti í lögreglunni á Keflavíkur- flugvelli – Var rekin fyrir rúmum mánuði af Landspítala Elísabet Guðmundsdóttir kom til landsins og fór hvorki í skimun né sóttkví. Lög- regla var kölluð til á vellinum þegar Elísabet lét í ljós ætlun sína að fara ekki eftir sóttvarnareglum. 6 Valtýr Björn um ábyrgð Borghildar í máli Jóns Þórs: „Sorrí, þetta er búið…Bless“ Val- týr Björn Valtýsson útvarpsmaður telur Borghildi Sigurðardóttur, vara- formann KSÍ, einnig bera ábyrgð á máli Jón Þórs Haukssonar. 7 Daði Freyr fór í klippingu – Sjáðu fyrir og eftir mynd- irnar Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson lét klippa hárið sem var orðið töluvert sítt. 8 Gestum trúarhátíðar brá í brún þegar þeir horfðu upp Par í ástaratlotum á hóteli í Taívan gleymdi að draga gluggatjöldin fyrir, gestir trúarhátíðar gátu því séð allt sem fram fór á milli þeirra. OnePortal er vefgátt se gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem er í g ngi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála innan fyrirtækisins og notendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú koma skjalamálunum í lag? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - R cor Mála- og skjal kerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 4 FRÉTTIR 11. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.