Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 37
S pennusagnakóngurinn Arnaldur Indriða­son er Vatnsberi. Vatnsberinn er óstýri­látur og óhræddur við að ganga á skjön við aðra. Hann berst fyrir litla manninn og vill réttlæti. Vatnsberar eru þekktir fyrir að vera náttúruelskandi hippar og ekkert við þá er endilega talið hefðbundið. Hvorki fataval né lífsstíll þeirra. Þar af leiðandi eru þeir áhuga­ verðar týpur sem lita hversdagsleikann. Æðsti meyprestur Innsæi | Heilög þekking | Undirmeðvitund Þetta tiltekna spil er komið til þess að minna þig á að hlusta á og fylgja innra innsæi. Ef þig vantar svar við einhverju skalt þú leita inn á við og treysta svarinu. Oft vitum við rétta svarið en hjartað og rökhugsunin flækist fyrir. Erfið ákvörðun getur verið sú rétta. Ákvörðunin mun létta á þér – láttu til skarar skríða. Töframaðurinn Birtingarmynd | Útsjónarsemi | Kraftur | Innblástur Töframaðurinn boðar nýja tíma og ný tækifæri. Hér áttar þú þig á þínum eigin töfrum og hvernig þú getur kallað hluti til þín. Hér rætast gamlar óskir sem virðast einfald- lega flæða til þín. Við fáum öll svona tímabil í lífi okkar þar sem allt virðist ganga upp og heppnin virðist endast. Á þessum tíma er gott að gefa sér tíma í að hugsa vel hvert þú vilt stefna og sjá það skýrt. Þegar maður er skýr um hvað maður vill og af hverju, þá kemur allt heim og saman. Þristur í bikurum Hátíð | Vinátta | Sköpun | Samvinna Hér sé ég mikinn fögnuð og gleði. Það er verið að skála fyrir einhverju samstarfi þar sem þrír koma saman og láta ljós sitt skína. Þetta verður farsælt samstarf. Hér er eitthvert nýtt ástríðuverkefni og mér finnst eins og þeir sem vinna það með þér tengist þér fjölskylduböndum. Þetta ár hefur verið einmanalegt fyrir marga en þetta samstarf mun sannarlega bæta það upp. Skilaboð frá spákonunni Til þessa að tengjast innsæinu og fá svör þarf stundum að skapa ró innra með sér og þá er hug- leiðsla svarið. Mörgum finnst hugleiðsla krefjandi en hún getur verið á úmsu formi, göngutúr eða jafn- vel bakstur er mögulega þín leið. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Arnaldur Indriðason SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 11.12. – 17.12. Vitum rétta svarið en rökhugsun flækist fyrir Ástfangin jólabörn MYND/SIGTRYGGUR ARI stjörnurnarSPÁÐ Í S öngkonan Ragnheiður Gröndal og gítar­leikarinn Guðmundur Pétursson eiga bæði afmæli í jólamánuðinum mikla. DV lék forvitni að vita hvernig þessi desem­ berbörn eiga saman þegar litið er til stjörnu­ merkjanna. Ragnheiður og Guðmundur eru bæði Bog­ menn. Bogmaðurinn er eldmerki og fullur af lífi. Það er frábær tilfinning að sjá tvo Bog­ menn koma saman og ást þeirra blómstra, það er eins og að fylgjast með barni vaxa úr grasi. Ragga og Gummi, eins og þau eru kölluð, eru bæði afreksfólk í tónlist og eldmóðurinn fyrir listinni sameinar þau. Það er aldrei langt í fjörið. Þegar við hugsum um tvo Bogmenn í sambandi þá gætum við al­ veg eins hugsað um tvo unglinga sem þykir allt fyndið. Bogmaður verður auðveldlega ástfang­ inn, þeim tekst að aðlagast hvor öðrum auð­ veldlega, en eiga það til að breyta skoðunum sínum og tilfinningum sínum til hvor annars jafn auðveldlega. Samkvæmt stjörnunum er pörun tveggja Bogmanna yfirleitt ekki til langtíma, en það kemur reglulega par sem gefur skít í líkurnar og verður svo ástfangið að ekkert kemst á milli þeirra. n Ragnheiður Gröndal Bogmaður 15. desember 1984 n Örlát n Hugsjónamaður n Húmoristi n Framtakssöm n Óþolinmóð n Heiðvirð Guðmundur Pétursson Bogmaður 6. desember 1972 n Örlátur n Hugsjónamaður n Húmoristi n Framtakssamur n Óþolinmóður n Heiðvirður MYND/STEFÁN KARLSSON Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Óvenju erilsöm vika er fram undan hjá Hrútnum og þér gætu fallist hendur. Nú reynir á sköpunarkraft þinn til þess að gera dagleg verk skemmtilegri. Hvernig getur þú brotið daginn upp? Skapaðu ævintýri í hvers- dagsleikanum! Naut 20.04. – 20.05. Nautið þarf að endurskoða ein- hver mál í vikunni. Mögulega þarftu að taka erfiða ákvörðun um eitthvert samband eða sam- starf. Það eina sem skiptir máli er að velja rétt fyrir þig en ekki hugsa hvað er best fyrir aðra. Öllu illu er best aflokið. Tvíburi 21.05. – 21.06. Tvíburinn hugsar oft ekki áður en hann talar sem er oftast skemmtilega skoplegt. En þessa vikuna gæti hann þurft að leið- rétta einhvern misskilning eða vanda orð sín betur svo einhver verði ekki særður. Krabbi 22.06. – 22.07. Þessa vikuna er Krabbinn í við- skiptaham. Þú ert að velta fyrir þér hvernig þú getur fjármagnað næstu framkvæmdir og drauma. Aldrei of seint í rassinn gripið, þessi undirbúningur mun koma sér vel fyrir komandi ár. Ljón 23.07. – 22.08. Heimurinn er nógu krefjandi eins og hann er án þess að þú bætir álagið með því gera lítið úr sjálfum þér. Anda inn anda út … og sleppa tökum á því sem þú getur ekki breytt. Þú ert að gera þitt besta og það er meira en nóg. Við mælum með að þú bakir piparkökur! Meyja 23.08. – 22.09. Rómantíkin er í loftinu og gott betur! Meyjan svífur um á bleiku skýi með fiðrildi í maganum. Hvort sem þetta er sjálfsást, endur- goldin ást eða ný ást þá erum við afskaplega ánægð fyrir þína hönd. Það er svo gott að elska! Vog 23.09. – 22.10. Þú ert skemmtilega kærulaus þessa vikuna, það þarf mjög lítið til þess að þú breytir plani þínu eða hættir við skipulagið til þess að hafa aðeins meira gaman eða til þess að vinna aðeins minna. Lífið er núna, njóttu þín! Sporðdreki 23.10. – 21.11. Megi kosmósið gefa þér æðru- leysi til að sætta þig við það sem þú færð ekki breytt, kjark til að breyta því sem þú getur breytt og visku til að greina þar á milli. Ef þú ferð eftir þessu þá muna komandi dagar ganga mun betur. Bogmaður 22.11. – 21.12. Þú ert eins og jólasveinninn sjálfur með langan lista og tékkar á honum tvisvar til þess að allt batteríið gangi upp. Mikið að gera en skipulagið gengur ótrú- lega vel, þú nýtur þess að stroka út af listanum og sérð komandi jólafrí í hillingum! Steingeit 22.12. – 19.01. Vertu ófeimin við að biðja um hjálp, við erum öll hérna fyrir þig og, vá, hvað þú er mikið elskuð! Gleymdi því aldrei! Farðu í sund og hristu þennan þunga vetur af þér og íhugaðu hvernig þínir nánustu geta hjálpað þér eða mögulega hvaða utan að komandi hjálp væri best fyrir þig núna. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þú ert tilbúinn til þess að fara dýpra inn í sambandið. Þú finnur sterkar tengingar til einhvers ákveðins, tilfinningu sem þú hefur ekki áður fundið. Hver veit nema fjölskyldan fái að hitta þessa einstöku persónu í næsta zoom- jólaboði. Fiskur 19.02. – 20.03. Fiskurinn borðar aðeins of mikið af konfektmolum þessa vikuna og skammast sín bara ekki neitt! Enda hef ég aldrei hitt Fisk sem fer á ketó. En meginmálið er að þú trítar þig vel þessa vikuna eins og sannkallaður kósí-kisi. FÓKUS 37DV 11. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.