Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 25
Þ ann 30. desember árið 2010 giftust þau Michaela McAreavey og
John McAreavey á Írlandi.
Þau höfðu verið saman frá
því árið 2005 en þau kynnt
ust þegar þau voru bæði í há
skólanámi. Eftir brúðkaupið
var komið að brúðkaupsferð
inni sem hófst með viku í
Dúbaí. Þar nutu hjónakornin
lífsins en eftir það var för
inni heitið til eyjunnar Mári
tíus í Afríku. Þau hefðu betur
haldið sig í Dúbaí.
Það var Michaela sem hafði
valið að fara til Máritíus. Eft
ir að þau John höfðu grand
skoðað öll hótelin ákváðu þau
að velja Legendshótelið sem
var 5 stjörnu hótel með góðar
umsagnir. Þegar Michaela og
John mættu í móttöku hótels
ins, þann 8. janúar árið 2011,
spurðu þau hvort það væri
hægt að uppfæra bókunina
þeirra. Það var hægt, nýgiftu
hjónin fengu því lúxusher
bergi.
Tveimur dögum eftir að
hjónin höfðu mætt á hótelið,
þann 10. janúar, fóru hjónin
saman niður í morgunmat.
Eftir morgunmatinn fór
John í golf á meðan Micha
ela skellti sér í sólbað. Þegar
John kom til baka eftir golfið
fengu þau sér hádegismat
saman. Eftir hádegismat
inn ákvað Michaela að ná í
súkkulaði sem þau voru með
í herberginu. John ákvað að
bíða og taka nokkrar myndir
á meðan Michaela fór upp á
herbergi. John gerði sér ekki
grein fyrir því þarna en hann
átti aldrei eftir að sjá eigin
konu sína á lífi aftur.
Fannst látin í baðkarinu
Þegar John var búinn að
bíða eftir því að Michaela
kæmi aftur í þó nokkurn
tíma ákvað hann að fara upp
og kíkja á hana. Þegar John
gekk inn á hótelherbergið sá
hann eiginkonu sína í baðkar
inu. Hún var köld og varirnar
voru bláar. John reyndi hvað
hann gat til að vekja hana.
Hann reyndi að beita skyndi
hjálp en allt kom fyrir ekki.
Michaela var dáin.
Hringt var í lögregluna á
svæðinu sem kom að vörmu
spori. Lögreglunni hafði
verið sagt að einhver hefði
drukknað á hótelinu. Þegar
lögregluþjónarnir komu inn í
herbergið grunaði þá strax að
morð hefði átt sér stað. Her
bergið var í óreiðu og Mich
aela var marin á hálsinum.
Við krufningu kom í ljós að
hún hafði dáið vegna súrefn
isskorts. Plastpoki hafði verið
settur yfir höfuðið á henni og
hún síðan kyrkt.
Þrír menn handteknir
Morðið var tekið mjög al
varlega og mikið áfall fyrir
Máritíus þar sem landið
reiðir sig sérstaklega mikið
á tekjur frá ferðamönnum.
Það var þess vegna ákaflega
mikilvægt að málið væri
leyst hratt og örugglega. Það
virtist ætla að ganga þegar
þrír menn voru handteknir
vegna morðsins, einungis
degi eftir að það var framið.
Mennirnir þrír, Avinash
Treebhoowoon, Sandip Mo
neea og Raj Theekoy, sem
voru handteknir, voru allir
starfsmenn á hótelinu. Raj
var látinn laus fljótlega eftir
handtökuna en hann vissi þó
sitthvað um málið. Eftir að
Raj sagði frá því sem hann
vissi var annar starfsmaður
hótelsins handtekinn, ör
yggisvörðurinn Dassen Nara
yanen. Hann var sakaður um
að hafa gefið þeim Sandip og
Avinash lykil til að komast
inn í herbergi McAreavey
hjónanna.
Dassen játaði sína sök í
málinu en þeir Avinash og
Sandip héldu því fram að þeir
væru saklausir. Málið fór því
fyrir dóm.
Fyrir dómstólnum sagði
saksóknarinn í málinu að
Michaela hefði farið upp á
herbergið sitt og staðið þá
Avinash og Sandip að þjófn
aði. Þá sagði saksóknarinn
að þeir Avinash og Sandip
hefðu ákveðið að kyrkja
Michaelu svo hún gæti ekki
borið kennsl á þá. Avinash og
Sandip höfðu báðir aðgang
að herbergi hjónanna þar
sem Dassen hafði látið þá fá
lykilinn.
Þá sagði saksóknarinn að
Raj hefði verið fyrir utan her
bergið og heyrt í „konu sem
kvaldist“. Eftir það sá hann
Avinash og Sandip fara út úr
herberginu. Hann spurði þá
hvað hefði gengið á. „Ekkert
gerðist, ekki segja neitt. Ef
þú segir eitthvað þá gerum
við þig meðsekan,“ sögðu
Avinash og Sandip við Raj.
Fyrir dómi var sagt að
Avinash hefði játað sök sína
í morðinu. Hann játaði sök
ina í yfirheyrslum lögreglu.
Avinash sagði að Michaela
hefði gengið inn á þjófana
og því hefðu þeir myrt hana.
Þeir hefðu síðan sett hana í
baðkarið til að þrífa ummerki
sín af líkinu.
Saklausir blórabögglar
Lögmenn sakborninganna
héldu því fram að þeir Avin
ash og Sandip væru saklausir
blórabögglar. Lögmennirnir
vildu meina að rannsókn
málsins hefði verið léleg,
ekki allt á vettvangi morðs
ins hefði verið skoðað gaum
gæfilega. Til að mynda var
herberginu ekki lokað af al
mennilega, en auk þess voru
aðrir gestir hótelsins ekki
yfirheyrðir. Þá fannst ekkert
erfðaefni á vettvangi morðs
ins. Avinash og Sandip voru
sagðir hafa tekið peninga úr
veski, en þrátt fyrir það voru
engin sýni tekin af veskinu.
Eftir þetta voru sýni af
SAKAMÁL
Máni Snær
Þorláksson
manisnaer@dv.is
líki Michaelu send til Bret
lands til rannsóknar. Hvorki
erfðaefni úr Avinash né
Sandip fannst við þá rann
sókn. Það eina sem fannst í
rannsókninni var mögulegt
erfðaefni Sandip á lyklinum
sem notaður var til að opna
herbergið og á skúffu í her
berginu. Sérfræðingurinn
sem fór fyrir rannsókninni
sagði þó að lögreglan hefði
ekki staðið sig nógu vel í að
loka vettvang glæpsins af og
því væri ekki hægt að full
yrða hvort Sandip hefði verið
viðriðinn morðið.
Ældi blóði
Málið var að leysast upp í
höndum saksóknarans. Das
sen, sá sem sagðist hafa lát
ið Sandip hafa lykilinn, dró
játningu sína til baka. Hann
vildi meina að lögreglan
hefði neytt sig til að segja
það sem hann sagði með því
að miða á hann byssu. Lög
reglan neitaði því.
Þá dró Avinash sína játn
ingu líka til baka. Hann vildi
meina að hann hefði einnig
verið neyddur til að skrifa
undir játninguna eftir lög
regluofbeldi. Hann sagðist
hafa verið pyndaður, meðal
annars með vatnspyndingu
sem endaði með því að hann
ældi blóði.
Lögmenn sakborninganna
lögðu fram enn fleiri sönn
unargögn sem gáfu í skyn
að hvorki Avinash né Sandip
hefðu framið morðið. Til að
mynda var Sandip með fjar
vistarsönnun eftir að starfs
maður hótelsins sagði hann
hafa verið með sér þegar
morðið var framið.
Málið ennþá óleyst
Í fyrstu virtist sem málinu
yrði lokað á tveimur vikum,
en það endaði á að dragast í
tæpa tvo mánuði. Að lokum
ákvað kviðdómurinn að þeir
Avinash og Sandip væru sak
lausir. Rannsóknin á morðinu
var því opnuð á ný en ekkert
kom út úr því. Málið var
opnað á ný árið 2017 en aftur
fannst ekkert merkilegt. Í
ár var rannsókninni lokað
endanlega og málið er því
enn þann dag í dag óleyst.
Fjölskyldur hjónanna
kærðu Legendshótelið eftir
málið og vildu fá 1,6 millj
ónir evra, um 245 milljónir
íslenskra króna, í skaða
bætur. Málið var leyst utan
dóms en ekki er vitað hversu
mikið hótelið greiddi fjöl
skyldunum. Nafni hótelsins
var breytt eftir málið en það
heitir í dag Lux Hotel. n
BRÚÐKAUPSFERÐ FRÁ HELVÍTI
Nýgift, uppfull af eftirvæntingu fyrir framtíðinni, héldu McAreavey hjónin til Máritíus
í brúðkaupsferð. Það sem byrjaði sem draumur endaði í martröð sem er enn í gangi.
McAreavey-
hjónin á brúð-
kaupsdaginn
MYND/
IRISH NEWS/
PA WIRE
Avinash Treebhoowoon og Sandip Moneea. MYND/AÐSEND
FÓKUS 25DV 11. DESEMBER 2020