Harmonikublaðið - 01.09.2015, Side 6

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Side 6
Fjölskylduhátíð FHS á nýjum stað Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda í Skagafirði var að venju um Jónsmessuhelg- ina 19.-21. júní, en að þessu sinni var hún haldin að Steinsstöðum í Lýtingsstaðar- hreppi hinum forna í Skagafirði. A Steinsstöðum er góð aðstaða, fallegt gisti- heimili sem rúmar 40-45 manns og félags- heimilið Árgarður, sem er virkilega snyrtilegt A Steinsstöðum var stiginn vals..... og rúmgott hús sem hentar vel fyrir svona samkomu. Svæðið er enda eftirsótt af ferða- fólki, fyrir ættarmót og hverskyns samkomur. Því þurfa þeir sem hugsa sér að nota aðstöðu þarna yfir fjölskylduhelgina að panta með góðum fyrirvara. Gott tjaldstæði er staðsett fyrir neðan félagsheimilið með fallegt útsýni að Mælifellshnjúk. Þar er líka góð þjónusta fyrir húsbíla, hjólhýsi, tjaldvagna og þess- háttar. Þá er rafmagn, salernislosun, heitt og kalt vatn og þvottaplan. Við tjaldsvæði er einnig þjónustuhús með eldunaraðstöðu og aðstöðu til að borða inni. Einnig er fín sund- laug með heitum potti og lítill 9 holu golf- völlur á svæðinu. Gestir hátíðarinnar streymdu að á föstudeg- inum og komu sér fyrir. Veður var viðunandi, en veðurútlit nokkuð vafasamt. Menn voru þó vongóðir, það er jú aðalsmerki harmo- nikuunnenda. Upphitunardansleikur var haldinn frá níu til miðnættis um kvöldið og var mikið dansað. Spilarar voru Elín Jóhann- esdóttir og Hermann Jónsson og svo Jón St. Gíslason og Sigurður Leósson. Laugardagsmorguninn heilsaði með sólskini og blíðu og Mývetningnum Friðriki Stein- grímssyni varð að orði þegar hann kom út: Hér er allt með elegans og augaS gleSur. ÞaS erjjör ogfjöldi manns ogfallegt veSur. En dag skal að kveldi lofa og mey að morgni, eins og þar stendur. Þetta reyndist svikaglenna og ekki leið á löngu en veðurguðirnir gripu til fólskubragða og kuldanepja lagðist yfir svæðið. Þá bætti Friðrik við: Himinhvolfin skýjum skarta, skuggaleg má hljóSin heyra. En þaS er engin þörfaS kvarta, þegar ekki snjóar meira. Á laugardeginum setti formaður dagskána kl. 13:30 með stuttu ávarpi, minntist meðal annarra á fráfallinn félaga Kristján Þór Han- sen málararmeistara, sem lék lengi á trommur með hljómsveitum félagsins og var auk þess lengi gjaldkeri félagsins. Bað hann samkomu- gesti að rísa úr sætum. Jón St. Gislason kynnti til leiks fimm unga skagfirska harmonikuleikara, þá Arnar Frey Guðmundsson 12 ára, Finn Héðinn Eiríksson 10 ára, Guðmund Ingvar Ásgeirsson 22ja ára, Guðmund Smára Guðmundsson 12 ára og Jón Hjálmar Ingimarsson 12 ára, spiluðu þeir hver og einn en auk þess spilaði Guðmundur Ingvar nokkur lög með Jóni St. Gíslasyni. Voru þeim færð viðurkenningarskjöl og borð- fáni félagsins að gjöf fyrir spilamennskuna. Næstur á svið var harmonikuleikarinn Friðjón Hallgrímson með sína litlu tvöföldu harmon- iku. Spilaði hann nokkur lög og útskýrði á milli laga hvernig spila ætti á hana. Þetta var fróðleg og skemmtileg stund hjá Friðjóni, sérstaklega fyrir þá sem aldrei hafa séð eða heyrt í þessum harmonikum. Það má skjóta því að hérna að Jóni Hjálmari einum af ungu harmonikuleikurunum leist svo vel á þessa harmoniku að þegar hann fór í heimsókn til frændfólks í Svíþjóð stuttu eftir þessa uppákomu kom hann til baka með eina svona tvöfalda harmoniku og kemur hann til með að sýna okkur hana á næsta móti. Þá var komið að pistlahöfundi Birni Björnssyni sem fór á kostum með gamansögur af ýmsu tagi. Gunnar Rögnvaldsson lauk svo þessari dagskrá með gamanmáli í tali og tónum. Að dagskrá lokinni bauð Kvenfélag Lýtings- staðarhrepps kaffihlaðborð, þar sem hver og einn gat keypt sér miðdegiskaffi á vægu verði. Kl. 18:00 var svo búið að hita kolin á grillinu og gat hver sem vildi grillað þar kvöldmatinn. Dansleikur hófst svo klukkan níu og stóð til eitt um nóttina. Þar léku saman á harmonikur þau Elín Jóhannesdóttir og Hermann Jónsson og síðan Jón St. Gíslason ogjóhannes Jónsson frá Akureyri sem var gestaspilari ásamt Jóhanni Friðrikssyni trommuleikara. Spiluðu þessar grúppur til skiptis á dansleiknum. Um kl. 23:00 var gert hlé á dansleiknum og dregið í happdrætti. Eftir hlé bættist Gunnar Rögn- valdsson við spilamennskuna með Jóni, Jóhannesi og Jóhanni, lék hann á gítar og söng. Lagavalið var þessi gömlu góðu dægur- lög, sem allir kunna og var duglega tekið undir sönginn af samkomugestum. Á sunnudeginum tók svo fólk saman pjönkur sínar, skrapp í sund og kvaddi vini og kunn- ingja. 6

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.