Harmonikublaðið - 01.09.2015, Síða 8

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Síða 8
Verkalýðs- og sjómannafélag Álftfirðinga kaupir harmoniku Karítas Pdlsdóttir formaður Harmonikufélags Vestfjarða sendi blaðinu pessa fróðlegu grein. Þriðja bindi sögu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum eftir Sigurð Pétursson sagnfrœðing kemur útsíðar ápessu ári. Nefnistpað Vindur í seglum III og segir firá verkalýðsfélögum á Isafirði og við Isafiarðardjúp á árum mikilla samfélagsbreytinga áranna 1931-1970. Það er Alpýðusamband Vestfiarða sem gefur út sögu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfiörðum. Hér birtist kafli úr sögu Verkalýðs- og sjó- mannafélags Aljtfirðinga, sem fiallað er um í bókinni. Verkalýðsfélagið stóð jyrir byggingu samkomuhúss í Súðavík sumarið 1930 ásamt fleiri félögum, en pegar tímar liðu varðpað eini eigandi hússins. Félagsmenn vildu koma upp kvikmyndasýningum í húsinu ogpað varjleira sem verkafólk ogsjómenn í Súðavík studdu við til að auka menningu í heimabyggð sinni. Markús Kristjánsson sat lengi í húsnefnd Sam- komuhússins í Súðavík. Vorið 1947 var til- kynnt um lát hans á félagsfundi, en skömmu áður hafði hann stungið upp á því að félagið beitti sér fyrir kaupum á kvikmyndasýningar- vél fyrir samkomuhúsið. Nefnd sem kosin var í málið gerði grein fyrir athugun sinni sama haust. Nefndin hafði leitað til Hannibals Valdimarssonar, sem hafði reynslu af kaupum á kvikmyndavélum og bíósýningum í Alþýðu- húsinu á Isafirði. Hannibal var á fundi í sept- ember og sagði að sýningavél fyrir mjófilmur væri ódýrari og heppilegri kostur fyrir Súð- Súðvísk stemming víkinga. Til væri úrval af fræðslu- og skemmti- efni til sýninga og auk þess væru breiðfilmur mjög eldfimar. Hannibal var þökkuð „sú velvild sem hann bæri til félagsins og byggð- arlagsins.“ Arið 1948 barst sú frétt að hægt væri að fá sýningarvél fyrir 17 þúsund krónur. Það fannst félögunum í Súðavík of hátt verð, engir peningar væru til í sjóðum og því rétt að „láta þetta líða“. Það má til sanns vegar færa að sjóðirnir voru ekki digrir. Tveimur árum síðar kom fram að í kvikmyndavélarsjóði væru 836 krónur, en hússjóðurinn átti á sama tíma 9.428 krónur. Áhuginn var enn til staðar og ný hugmynd kom fram árið 1953. Þá fór Verkalýðs- og sjómannafélagið fram á að hreppurinn gæfi eftir skemmtanaskatt á skemmtunum félagsins, en hann yrði í staðinn látinn renna til kaupa á sýningarvél. Upplýst var að sýningarvél fyrir breiðfilmu kostaði 30-40 þúsund krónur. Hreppsnefnd hafnaði þessari hugmynd, en ákvað í staðinn að kaupa sýningarvél fyrir skóla þorpsins fyrir 5 þúsund krónur. Félagsfundur óskaði eftir því að sýn- ingarvélin fengist jafnframt til afnota fyrir almenning. Verkalýðsfélagið eignaðist helm- inginn í vélinni á móti skólanum. Lítil sýn- ingarvél kom að takmörkuðum notum. Hægt var að fá lánaðar fræðslu- og skemmtimyndir frá myndasafni Fræðslumálaskrifstofunnar, en alvöru kvikmyndir á breiðtjaldi var það sem fólkið vildi. Súðvíkingar urðu enn um sinn að gera sér ferð í Isafjarðarbíó til að sjá stjörnurnar á hvíta tjaldinu. Félag verkamanna og sjómanna í Álftafirði eignaðist óvænt annað tæki til menningar- auka. Það var á aðalfundi félagsins árið 1952 sem ákveðið var að styrkja Guðmund Pálma- son til kaupa á harmoniku. Guðmundur var kosinn fjármálaritari félagsins á sama fundi, en hlutverk hans var að sjá um innheimtu félagsgjalda. Með honum í stjórn voru Albert Kristjánsson formaður, Jónatan Sigurðsson varaformaður, Jörundur Engilbertsson ritari og Bjarni Hjaltason gjaldkeri. Árið eftir tók Guðmundur við starfi gjaldkera og skömmu síðar var samþykkt að lána honum 1.000 krónur úr félagssjóði til kaupa á harmoniku og bæta við öðru eins, ef með þyrfti. Onnur tillaga um að láta baráttusjóð félagsins, en verkfallssjóðurinn hét því nafni, lána Guð- mundi og hann greiddi lánið til baka með hljóðfæraleik á skemmtunum félagsins, var hinsvegar felld. Næstu misseri liðu væntanlega við hugljúfa harmonikutóna, meðal annars þegar 25 ára afmælis félagsins var minnst vorið 1953. En á fyrsta fundi ársins 1954 dró til tíðinda. Guðmundur Pálmason tilkynnti úrsögn úr félaginu og Albert formaður sagði frá því að sú ásökun hefði komið fram innan félagsins að Guðmundur hafi tekið sér fjármuni úr sjóðum félagsins og formaðurinn hylmt yfir með honum. Við athugun kom í ljós að ásökunin var tilhæfulaus. Félagsfundur sam- þykkti traustsyfirlýsingu til Guðmundar Pálmasonar. Aðalfundur félagsins 1954 sam- þykkti auk þess vítur á Bjarna Hjaltason vegna ummæla hans um Albert formann og Guð- mund gjaldkera. Guðmundur flutti burt af Samkomuhúsið í Súðavík

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.