Harmonikublaðið - 01.09.2015, Side 10

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Side 10
Sumarhátíð F.H.U.E. og H.F.Þ. 2015 Árleg sumarhátíð FHUE og HFÞ haldin að Breiðumýri í Reykjadal 24. - 26. júlí 2015. Hátíðin byrjaði með hefðbundnu sniði, stóra tjaldið var sett upp um hádegisbil á fimmtudag og skrautljósin hengd upp í garðinum. Um kvöldmatarleytið voru komnir nokkuð margir gestir en Breiðumýrarhá- tíðin hefur ætíð dregið að sér harmonikuunnendur víðsvegar að af land- inu og hafa veðurspár sáralítil ef nokkur áhrif. Föstudagurinn hjá okkur vinnudýrum fór í undirbúning fyrir helgina einnig þurfti að skrifa auglýsingar m.a. um hljóðfæraleikarana og setja utan á húsið og margt fleira. Mótið byrjaði svo á föstudagskvöld með ávarpi Þórhildar Sigurðardóttur formanns H.F.Þ. Að því loknu brast á með dansi, enda margir farnir að bryðja mélin í óþreyju. Eftir það var dansað bæði úti í tjaldinu og inni til klukkan tvö um nóttina. I tjaldinu byrjuðu Norðfirðingarnir Omar Skarphéðinsson og Guðmundur Skúlason. Einnig söng dótturdóttir Ómars, Máney Sól með þeim félögum. Aðalsteinn Isfjörð frá Sauðárkróki Það varþétt setinn Svarfaðardalurinn d tónleikunum Málin rtzdd í rómantísku andrúmslofii tók við af honum og Akureyringarnir og hjónin Valberg Kristjánsson og Steinunn Einarsdóttir tóku ásamt Pálma Björnssyni o.fl. næstsíðustu törnina áður en Héraðsbúarnir Jón Sigfússon og Sigurður Eymundsson luku ballinu. Inni í húsi byrjaði hljómsveitin Braz frá Akureyri sem afhenti síðan stuðið til Reykdælingsins Asgeirs Stefánssonar. Jón Arni Sigfússon Mývetningur tók við af Asgeiri áður en Strákabandið lauk kvöldinu. A laugardaginn voru tónleikar og þar komu fram þeir Jón Arni Sigfússon, Mývatnssveit, Katrín Sigurðardóttir og Rúnar Hannesson Húsavík, Gunnar Kvaran Reykjavík, Hafliði Ólafsson Akureyri, Baðstofubandið Vestfjörðum og Einar Guðmundsson Akureyri. Auk þeirra léku þau saman dúett, Sigríður Indriðadóttir frá Akranesi á þverflautu og Helgi E. Kristjánsson frá Selfossi á gítar. Arlegt happdrætti var og margt góðra vinninga og sáu þeir Pétur og Rúnar um sölu miðanna og vöktu þeir óskipta athygli fyrir klæðaburð. Síðdegis var svo kveikt upp í stóra grillinu og grilluðu þar margir saman og snæddu svo kvöldverðinn inni í húsinu. Var þá kátt á hjalla samkvæmt venju. Um kvöldið var svo dansleikur frá tíu til þrjú um nóttina. I tjaldinu byrjaði Strákabandið, en Dansbandið leysti þá af. Þá var komið að Guð- 10 manni Jóhannssyni, en tjald- ballinu lauk síðan harmo- nikudúettinn Við ogVið, sem eru þær Hildur Petra Friðriks- dóttir og Vigdís Jónsdóttir einn dásamlegur bræðingur af Eyfirðingum og Gaflara. Inni í húsi hófu leikinn þeir Sig- urður Leósson, Aðalsteinn Isfjörð og Einar Guðmunds- son. Þessu fýlgdu eftir Akur- eyringarnir Kristján Þórðarson og Guðmundur Sigurpálsson. Aðalsteinn Isfjörð tók næstu vakt og þá var komið að Sveini Sigurjónssyni. Það kom svo í hlut Dansbandsins að ljúka Hver getur sagt nei takk við svona happdratt- þessari Breiðumýrarhátíð 2015 issölumenn um þrjú leytið. Var dansgleðin ósvikin og mikil. Ekki dugar að tefla aðeins fram harmonikuleikurum og því komu margir fleiri hljóðfæraleikarar að dansleikjunum. Þar má nefna m.a. frændurna Jóhann og Gunnar Möller, gítar og bassa Arna Ketil, Magnús Kristinsson trommur, Pálma Björnsson og Hermann Arason gítar og söngur, Helga E. Kristjánsson gítar, Finn Finnsson, Grím Vilhjálmsson, og Pétur Ingólfsson bassa, Arna Ólafsson harmonikku í BRAZ, Ingólf Jóhanns- son hljómborð og Ragnheiði Júlíusdóttir söngkonu í Dansbandinu. Af þessari upptalningu sést að enginn skortur er á áhugasömu tónlistar- fólki sem góðfúslega vill leika á dansleikjum og ber að þakka sérstaklega fýrir þeirra framlag. Veðrið þessa helgina var nú ekki sem best, enda vart hægt að tala um sumar þetta árið. Kalt var en þurrt að mestu en sólin lét samt sjá sig af og til. Því voru því ekki margir sem treystu sér að leika úti undir beru lofti, en þeir alhörðustu létu sig þó hafa það og skemmtu sér og öðrum nærstöddum með söng og hljóðfæraleik. Mæting á mótið var með besta móti og voru um 200 manns samankomin og skemmtu sér hið besta. Aðstandendur þakka öllum sem komu fram á tónleikum, léku fyrir dansi, og aðstoðuðu við framkvæmd mótsins, svo og öllum þeim sem komu til að dansa og skemmta sér í góðra vina hópi. Þá er það von okkar að þessi árlegi viðburður megi endurtaka sig um ókomin ár. Bestu kveðjur, Filippía og Valberg. MyndirtValbergKristjánsson Sirrý og Helgi d tónleikunum

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.