Harmonikublaðið - 01.09.2015, Page 11
IÞA GOMLU GOÐU
Gamla greinin er úr blaðinu Harmonikan frá því í maí 1993. Hún greinir
frá Hátíð harmonikuunar á Hótel Islandi. Þetta var svo sannarlega engin
smá hátíð. Þess háttar heyrir því miður fortíðinni til.
iv vi / /H \ \ \ \ / Birt með góðfúslegu leyfi ritstjóra Harmonikunnar.
F\^>X//fí\\\y\\ u wsV'jlw/ / / o \ \ \
Hátíð harmoníkunnar,
metnaðarfull samkoma
Einleikarar og boðsgestir sem fram komu á hátíðinni-frá v. Sveinn Rúnar. Crettir Björnsson. Sigmund Delili, Aðalsteiim ísfjörð,
Reynir Jónasson og Karí Jónaiansson. Jónu Einarsdóttm vantar á myndina, hluti stórsveitarinnar bakvið.
Það þarf djörfung og dug ásamt
tröllatm á málefnið þegar farið er út
í svo yfirgripsmikið verkefni sem
hátíð harmoníkunnar hjá Harm-
oníkufélagi Reykjavíkur á Hótel Is-
landi sjöunda maí síðastliðinn. Ég
hygg að ekki þurft að líta mörg ár til
baka og ímynda sér raddir sem
hefðu sagt að ekkert þýddi að fara
út í harmoníkusamkomu af slíkri
stærðargráðu. Mér hættir eflaust til
að vera nokkuð yfirlýsingaglaður á
stundum en sannleikurinn er sagna
bestur. Hvað mig varðar hoppaði
hjarta mitt af ánægju og stemning-
artilfinningu meðan á hátfðinni stóð
og ég læt mér ekki til hugar koma
að agnúast út í einhver smáatriði
tónlistar- eða skipulagsleg fyrir það
að í heildina hafði samkoman yfir
sér sterkan metnaðarblæ og var út-
varpað í beinni útsendingu í ríkisút-
varpinu að hluta. Kynnir var for-
maður H.R. Örn Arason. Ég get
ekki þagað yfir fyrirbæri hins er-
lenda boðsgests, Sigmund Dehli, að
nota Midi búnað eins og poppari í
klassískum stykkjum á borð við
Bffluguna og það án harmoníku-
hijóða, heldur hárrísandi rafmagns-
spenning. Sigmund er toppspilari
og í írska laginu Whisky í morgun-
mat og norsku þjóðlegu lagi
gleymdist rafmagnið fljótt og hinn
eini og sanni Sigmund Dehli lék
eins og honum einum er lagiö,
næmleikinn, líftð og gleðin.
íslenskir einleikarar spjöruðu sig
líka vel, Jóna Einarsdóttir var
fmgralipur og Sveinn Rúnar. Grettir
Björnsson og Reynir Jónasson
gerðu góða hluti
eins og vænta mátti og yljuðu
notalega til innstu hjartaróta. Gesta-
spilarinn var Aðalsteinn ísfjörð frá
Húsavtk og ekkert sjáanlegt um að
taugakerfið færi úr skorðum við að
spila fyrir allan þennan manntjölda.
Kvartett “ Gleraugnakvartettinn “
með þeim Erni Arasyni, Sveini
Rúnari. Einari Friðgeir og Karli
Jónatanssyni lék Norðannepjuna
eftir Karl J. og fjölntargt fleira var
boðið uppá. t.d. léku ungir nemend-
ur Karls Jónatanssonar í upphafi að
ógleymdri stórsveitinni með ein-
leikurum í bland á tónleikum
kvöldsins.
Sigmund Dehlí kom einnig fram
með bakröddum þeirra H.R. manna;
trommum, gítar og bassa ásamt að
spila með danshljómsveitinni um
kvöldið. Keppnislag vegna lands-
mótslagakeppninnar var gert heyr-
um kunnugt, vinningshafi reyndist
vera ungur harmoníkuleikari, Einar
Friðgeir Björnsson. Reynir Jónas-
son lék vinningslagið og stóð höf-
undurinn vtð hlið spilarans á með-
an. í lagakeppninni vann Örlygur
Eyþórsson önnur verðlaun og Helgi
V Karlsson þriðju. Sitthvað ileira
gerðist þarna en hér læt ég staðar
numið. Eftir ábyggilegunt heimild-
unt hef ég að hátíðin hafi staðið
undir sér fjárhagslega og 400 að-
göngumiðar hafi selst. Að auki voru
hljómsveitarmeðlimir og fleiri á
vegum félagsins nálægt 100 manns.
Félagsmenn og fleiri gestir komu
síðan saman á Kringlukránni sunnu-
dagskvöldið 9. maí þar sém tekið
var hressilega í belginn og fengu
þar ýmsir að spreyta sig tneð Sig-
ntund Dehli í tali og tónum.
Til hamingju H.R.
H.H.
19