Harmonikublaðið - 01.09.2015, Síða 12

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Síða 12
hittist á harmonikumóti. Minnir í raun meira á ættarmót. Þá er mikið faðmað og kysst, eins og sagði í kvæðinu. Hefðbundin dagskrá hófst upp úr níu á föstu- dagskvöldið þegar fyrstu hljóðfæraleikararnir stigu á svið, en það voru þeir Erlingur Helga- son harmonikuleikari, Helgi E. Kristjánsson gítarleikari, Hreinn Vilhjálmsson á bassa og Eggert Kristinsson á trommur. Sveinn Sigur- jónsson leysti Erling af um ellefuleytið og Garðar Olgeirsson lauk síðan ballinu klukkan eitt. Vel var tekið undir í dansinum, enda vanir menn á sviðinu. Laugardagurinn heilsaði með blíðu og eftir vel útilátinn morgunverð hófst undirbúningur fyrir tónleika dagsins. Það er handleggur að stilla upp stólum fyrir 150 manns, en margar hendur vinna létt verk. Magnus Jonsson hóf leikinn á slaginu tvö með Hálsningfrán Söder eftir Andrew Walter. Honum til fulltingis voru þeir Helgi Kristjánsson á bassa og Fróði Oddsson á gítar. Var ekki að heyra að ein og hálf æfing lægi að baki. I kjölfarið kom síðan hver gullmolinn af öðrum, Schottisakrobatik eftir Ottar Akre, Valse brilliante eftir Egill Hauge. Tangóinn ódauðlegi Love smiles eftir Frosini var á sínum stað og sömuleiðis Jolly Cabalero. Ekki má gleyma stórgóðum lögum eftir Magnus, en tónleikunum iauk hann á franska standardinum Indijferance eftir Tony Murena. Þetta er smá sýnishorn því sem fram- reitt var þarna af stakri snilld. Lagavalið þaul- hugsað og undirtektir eftir því. Af mörgum góðum harmonikuleikurum sem heimsótt hafa FHUR í gegnum tíðina, er Magnus Jons- son án efa einn af þeim bestu. Að tónleik- unum loknum fóru gestir niður og skoðuðu nikkur hjá EG tónum og endurnýjuðu nokkrir hljóðfærin. Um kvöldið var síðan sameiginlegur kvöldverður í félagsheimilinu og tóku tæplega sextíu manns þátt í honum. Sveinn Sigurjónsson var fyrstur á svið um kvöldið. Magnus Jonsson tókvið afhonum. Hann hafði reyndar sagt að dansmúsik væri ekki á hans sviði. Ekki var það að heyra, því gestir voru hæstánægðir með taktinn og tempóið. Ekki tóku neinir aukvisar við af Magnusi, þegar þeir Einar Guðmundsson, Gunnar Kvaran og Aðalsteinn Isfjörð, keyrðu allt á fulla ferð. Ballinu lauk svo með því að Vindbelgirnir léku sína gömlu dansa til klukkan eitt við ágætar undirtektir. Sunnudagurinn heilsaði með sól og nú var farið að leika um svæðið, enda aðstæður upp á það besta. Varð hin besta skemmtun við söng og spil, auk þess sem EG tónar stóðu vaktina í húsinu. Hilmar Hjartarson tók Magnus og frú með sér í bíltúr um Borgar- fjörðinn og sýndi þeim undir leiðsögn helstu sögustaði svæðisins. Nú var komið að loka- kvöldinu. Að afloknum kvöldverði og samspili tóku Vindbelgirnir upp þráðinn frá laugar- Þá var lag á Varmalandi Hin árlega harmonikuhátíð „Nú er Iag“, fór fram á Varmalandi um verslunarmannahelg- ina. Sérstakur gestur hátíðarinnar var Magnus Jonsson, 37 ára Svíi, sem síðast lék hér á 15 ára afmælistónleikum blaðsins Harmonik- unnar í Langholtskirkju, árið 2001. Að vanda fóru fyrstu gestirnir að tínast að á miðviku- deginum og strax á fimmtudegi var kominn dágóður hópur á svæðið, sem var nú í allt öðru og betra ástandi en á síðasta ári, þegar allt var á floti vegna langvarandi rigninga. Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með þegar fólk Harmonikuunnendur í öllum stærúurn Kokkurinn á Varmalandi SniLlingar að leik 12

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.