Harmonikublaðið - 01.09.2015, Page 21

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Page 21
Steingrímur Sigfusson Tónskáldið sem á lagið í blaðinu að þessu sinni er Steingrímur Sigfússon. Lagið er til í tveimur útgáfum. Fyrri upptakan er frá 1960, en þar syngur Sigurður Olafsson lagið með hljómsveit Jónatans Ólafssonar. Sú upptaka er til á geisladisknum Utvarpsperlur, sem kom út árið 2002 á vegum Ríkisútvarpsins. Hin upptakan er frá 1971, af plötu með feðgin- unum Sigurði Ólafssyni og Þuríði Sigurðar- dóttur. Steingrímur var fæddur að bænum Stóru Hvalsá í Hrútafirði þann 12. júní 1919. Á fjórða ári fór Steingrímur að Bæ í Hrútafirði og þar ólst hann upp. I Bæ var orgel og á þetta hljóðfæri lærði hann undirstöðuatriði í tónlist hjá Ragnhildi Finnsdóttur sem þar bjó. Hún hefur að öllum líkindum áttað sig fljótt á því, að í þessum unga dreng bjó tónlistargáfa. Svo mikið er víst að átta ára gamall var hann farinn að leika á orgelið. Ekki er ólíklegt að einhvers staðar hafi leynst harmonika en nokkur af systkinum Steingríms léku á hljóð- færi, en þar lék Steingrímur á sínum fyrstu dansleikjum ásamt Hans bróður sínum. Milli fermingar og tvítugs fór Steingrímur í Reykja- skóla og þar bætti hann við tónlistarkunn- áttuna, undir leiðsögn Áskels Jónssonar frá Mýri í Breiðdal. Þar má segja að lokið hafi tónlistarnámi Steingríms Sigfússonar. Það segir sitt um álit manna á tónlistarhæfi- leikum Steingríms, að tæplega tvítugur að aldri var hann ráðinn kirkjuorganisti og tón- listarkennari til Patreksfjarðar. Þar var starfs- vettvangur hans næstu tvo áratugina. Frá þessum árum eru einnig flest þeirra laga sem urðu vinsæl á árunum um og eftir 1950. Hann vann til margra verðlauna í danslagakeppni S.K.T. sem hófst 1951. Lög eins og Síldar- valsinn, Mikið var gaman að því, Til þín, Litla stúlkan og mörg fleiri hljómuðu í óskalaga- þáttum útvarpsins. Flesta textana samdi Stein- grímur en hann var ágætis hagyrðingur. Text- arnir lýsa höfundinum ágætlega. Margir eru þeir fullir af gáska og lífsfjöri en á milli trega- fullir. Steingrímur var að eðlisfari léttur og kátur, en hann háði lengi harða glímu við þann óvægna Bakkus, sem átti eftir að velgja honum löngum. Rétt eftir 1960 yfirgaf Steingrímur Patreks- fjörð og tóku nú við nokkur ár þar sem hann var á Suðurlandi við tónlistarkennslu og kór- þjálfun á vegum þjóðkirkjunnar. Hann var í Vestmannaeyjum, Hvolsvelli, Hafnarfirði og nokkur ár á Fáskrúðsfirði. Það var svo 1970, að Steingrímur Sigfússon var ráðinn sem organisti og skóiastjóri tónlistarskólans á Húsavík. Þar starfaði hann til æviloka og hafði veruleg áhrif á tónlistarþróun á Húsavík. Frá þeim tíma liggur eftir hann mikið af kirkju- tónlist, sönglögum sem sungin voru af kórum af svæðinu. En nú var tekið að hausta í lífi listamannsins frá Stóru Hvalsá. Hann hafði lifað hratt og hvergi hlíft sér þegar gleði var annars vegar þó stundum væri gleðin sú beiskju blandin. Hann lést 20. apríl 1976. Steingrímur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Hlín Þórarinsdóttir sem lést í blóma lífsins 1959. Síðari kona hans var Guð- björg Þorbjarnardóttir. Friðjón Hallgrímsson Skemmtanir Félags harmonikuunnenda í Reykjavík veturinn 2015-2016: 10. október 21.nóvember 9.janúar 13.febrúar 19.mars ló.apríl 7.febrúar 7. maí 8. maí Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Laugardagur Árshátíð og Þorrablót í Breiðfirðingabúð Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Sunnudagur Tónleikar í Iðnó Laugardagur Harmonikudagurinn Sunnudagur Tónleikar í Iðnó 21

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.