Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 4

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 4
Breiðumýrarhátíð 2016 Strákabandið í tjaldinu. Frá vinstri Pálmi Björnsson ágítar, Magnús Kristinsson trommur, Rúnar Hannesson, Jóel Friðbjarnarson, Kristján Þórðarson og Jóhann Möller á gítar Að venju héldu Félag hamonikuunnenda við Eyjafjörð og Harmonikufélag Þingeyinga hina árlegu útileguhátíð á Breiðumýri, sem að þessu sinni bar upp á helgina 23. - 25. júlí. Undirbúningur hófst á fimmtudeginum, en þá var tjaldið reist og daginn eftir voru tól og tæki sett upp. Töluvert kom af fólki strax á fimmtudeginum og fjölgaði svo verulega á föstudeginum og laugardeginum. Ágætis mæting í heildina og góð stemning og veður. Spilað var bæði inni og úti í tjaldi og mikið dansað á báðum stöðum frá kl. tíu. Valin- kunnir harmonikuleikarar léku fyrir dans- inum. Á föstudagskvöldið hóf Jón Árni leikinn í salnum, meðan Omar Skarphéðinsson byrj- aði í tjaldinu. Kristján Þórðarson tók við af Mývetningnum meðan Strákabandið fór í Birgir Hartmannsson, honum Jipaðist ekki Jrekar en Jyrri daginn tjaldið. Gunnar Kvaran og Einar Guðmunds- son tóku við af Kristjáni og Héraðsbúarnir Jón Sigfússon, Gylfi Björnsson og Sveinn Vilhjálmsson fóru í tjaldið. A laugardeg- inum voru svo tón- leikar milli tvö og fjögur. Fyrst spilaði Sérsveit Eyfirðinga og svo Katrín Sigurðar- dóttir og Rúnar Hannesson frá HFÞ. Þá lék Birgir Hartmannsson og fórst vel úr hendi þrátt fyrir háan aldur. Þá komu upp systkinin frá Skeggjastað á Bakkafirði ásamt móður sinni, auk kennara þeirra. Þau heita Njáll, Himri, Þórey Lára og Guðrún Margrét Hall- dórsbörn og svo móðir þeirra Brynhildur Óladóttir og einnig Ragnar Grétarsson tón- listarkennari þeirra. Voru þau öll alveg frábær. Þá lék Hafliði Ólafsson nokkur lög og að endingu hljómsveitin Braz. Voru þetta góðir tónleikar og voru allir flytjendur mjög góðir. Um kvöldið var dregið í happdrætti áður en ballið byrjaði klukkan tíu og var dansað á báðum stöðum af miklu fjöri. A laugardags- kvöldið léku þeir Aðalsteinn Isfjörð og Sig- urður Leósson, Braz, Jón Sigfússon og Gylfi Björnsson. Þá fengu gestir að njóta Stráka- bandsins í salnum. I tjaldinu létu þeir Ijós sitt skína, þeir Aðalsteinn Isfjörð, Valberg Krist- jánsson og Ómar Skarphéðinsson. Um undir- Valberg Kristjánsson kynnir til sögunnar Sérsveitina frá Akureyri, f.v Arni Ólafsson, Hörður Kristinsson, Ævar Ragnarsson ogAgnes Harpa Jósavinsdóttir ÆJi í sumarblíðu Jyrir kvöldið. Ómar Skarphéðinsson ogfélagar leik á Breiðamýri sáu þeir gítarleikararnir Pálmi Björnsson, Hreinn Vilhjálmsson, Númi Adólfsson og Jóhann Möller og Gylfi Björnsson. Bassaleikarar voru þeir Grímur Vilhjálmsson, Gunnar Möller og Lárus Gunnlaugsson. Trommuleikarar á svæðinu voru þeir Magnús Kristins- son og Asgeir Ingvason. Söngkonurnar Steinunn Einarsdóttir og Inga Magnúsdóttir lífguðu upp á samkomuna. Texti: Sigurður Ólafsson /Vilberg Kristjánsson / Filippía Sigurjónsdóttir / Ritstjóri. Myndir: Sigurður Ólafsson / Filippta Sigurjónsdóttir /Vilberg Kristjánsson Áætlun dansleikja 2016 og 2017 Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Miðvikudagur Laugardagur 1. október 2016 22. október 2016 12. nóvember 2016 7. janúar 2017 4. febrúar 2017 4. mars 2017 1. apríl 2017 19. apríl 2017 6. maí 2017 Fyrsti vetrardagur Síðasti vetrardagur Harmonikudagurinn 4

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.