Harmonikublaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 17
Harmonikudagurinn haldinn
hátíðlegur á Breiðamýri 7. maí
Laugardaginn 7. maí hélt Harmonikufélag Þingeyinga harmoniku-
tónleika á Breiðumýri eins og venja er á degi harmonikunnar. Agætis
mæting var og rættist vel úr veðrinu, sem var ekki álitlegt daginn áður.
Á tónleikunum léku bæði börn og fullorðnir. Fyrstur spilaði félagi
okkar Jón Sigurjónsson. Þá komu nemendurÁrna Sigurbjarnarsonar
Tónlistarskóla Húsavíkur. Þeir voru Aron Bjarki Kristjánsson, Helgi
Jóel Jónasson Lund, Almar Orn Jónasson, Hörður Mar Jónsson,
Hilmar Bjarki Reynisson, Hermann Veigar Ragnarsson, Karitas Embla
Kristinsdóttir og Magnús Kjerúlf. Eru þau öll mjög efnilegir spilarar
og vitna um hæfileika Árna að ná fram slíkum tónum. Ennfremur
léku Jón Árni, Grímur Vilhjálmsson og Inga Hauksdóttir. Sérstök
ástæða er til að hrósa Árna hans fyrir hans hlut í að viðhalda þessari
gömlu hefð að leika á harmoniku í Þingeyjarsýslum. Næsr komu
nemendur frá Tónlistarskóla Bakkafjarðar ásamt kennara sínum,
Ragnari Jóni Grétarssyni. Eru þau systkini frá Skeggjastað, Njáll
Halldórsson lék á harmoniku, Himri Halldórsson á trommur, Þórey
Lára Halldórsdóttir á þverflauta og ukulele, og kennarinn, Ragnar
Jón Grétarsson á bassa. Fluttu þau frábærlega nokkur lög sem voru í
þeirra eigin útsetningu. Að lokum spiluðu félagar okkar, Hildur Petra
Friðriksdórtir og Vigdís Jónsdóttir, ásamt Eiríki Bóassyni á gítar. Mjög
Hermann Veigar Ragnarsson, Almar Örn Jónasson, Karítas Embla Kristinsdóttir og
Magnús Karl Kjerúlf. Þingeyingar hafa löngum verið iðnir við að unga út harmo-
nikuleikurum
flottir spilarar. Þá var öllum boðið í kaffihlaðborð. Eins og hefð er
fyrir hjá félaginu lauk samkomunni á samspili, var spilað í nærri
hálftíma öllum til ánægju og tóku flestir þátt.
Sigurður Olafsson, texti og myndir
Tónlistarsystkinin frá Skeggjastað. Njáll Halldórsson á harmoniku,
Himri Halldórsson trommur, Þórey Lára Halldórsdóttir þverflauta
og kennarinn, Ragnar Jón Grétarsson á bassa
Árni Sigurbjarnarson kennari, Aron Bjarki Kristjánsson, Helgi Jóel Jónasson Lund, Hermann Veigar
Ragnarsson, Almar Örn Jónasson, HörðurMar Jónsson, Hilmar Bjarki Reynisson, Karitas Embla Kristinsdóttir
og Magnús Kjerúlf. Vonir okkar harmonikuunnenda
17