Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 8

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 8
Nu er lag á Varmalandi Harmonikuhátíðin „Nú er lag“ var haldin um verslunarmannahelgina í sjötta skipti að Varmalandi. Það stefndi í veðurblíðu sam- kvæmt veðurspá og fólk var farið að koma sér fyrir strax á miðvikudeginum. Hefðbundin dagskrá hófst þó ekki fyrr en á föstudegi. Veð- urguðirnir voru á hraðferð og duglega blés um gesti í sólinni, sem fundu sér skjól til hlés. Fyrstir á svið á föstudagskvöldinu voru þeir Ingvar Hólmgeirsson og félagar. Var vel mætt á dansleikinn og dansgleðin ríkjandi, enda vanir menn á ferð. Haukur Ingibergsson, Hreinn Vilhjálmsson og Eggert Kristinsson sáu um að takturinn væri samkvæmt uppskrift allt kvöldið og fataðist ekki. Akureyringurinn Númi Adolfsson leysti Hauk af um miðbik dansleiksins og þá fengu gestir, samkvæmt venju, meðal annars Saumakonuvals Jóns á Hvanná. Sveinn Sigurjónsson átti næstu vakt og ekki dvínaði dansáhuginn við það. Kvöldinu luku síðan Vindbelgirnir og var ekki að sjá að drægi úr áhuganum. Laugardagurinn heilsaði með hressandi köldum kveðjum úr Hrútafirðinum. Höfðu margir á orði að mik- ill væri asinn á logninu. Tónleikar sænsku gestanna hófst um tvö leytið og eftir að ríflega 140 gestir höfðu komið sér fyrir. Auðheyrt var að þar fóru vanir menn og fengu þeir hinar bestu undirtektir. Á sama tíma komu þeir sér fyrir félagarnir Einar Guðmundsson og Gunnar Kvaran með harmonikur af ýmsum gerðum. Eftir tónleikana litur gestir við á harmonikusölunni og mátti þar sjá margan íbygginn velta vöngum yfir úrvalinu og ein- hverjir endurnýjuðu hljóðfærin. Þá var margt fallegra muna til sölu á markaðnum. A meðan fóru Svíarnir í ökuferð um byggðir Borgar- fjarðar, undir öruggri leiðsögn þeirra Hilmars Hjartarsonar og Sigurðar Harðarsonar. Heill- uðust þeir mjög af því sem fyrir augu bar. Sioingað hjd Pierre ogfélögum Það er alltafvel mœtt í Stjörnupolkann Dansleikur laugardagskvöldsins hófst á til- settum tíma og reið Svenni Sigurjóns á vaðið. Þar voru kunnugleg stef, sem gestir kunnu vel að meta og fylltu dansgólfið snarlega. Garðar Olgeirsson var næstur á svið og þar var enginn byrjendabragur heldur. Veittist honum létt að halda gestum við efnið. Svíarnir Pierre og Rolf stigu næstir á svið og kvað nú við annan tón. Þeir buðu aðallega upp á swing, en minna af polkum og tilheyrandi. Haukur fékk að blása úr nös á meðan. Ekki virtist þetta hafa mikil áhrif á dansarana, sem skiptu um gír í rúman klukkutíma. Þá var komið að Einari, Gunnari og Alla Isfjörð. Ekki vafðist fyrir þeim að geðj- ast gestum sem dönsuðu af gleði til loka. Sunnudagurinn heilsaði með sól og blíðu og fljótlega fóru harmonikuhljómar að óma á svæðinu eins og hæfir á harmonikumóti, enda norðanáttin dottin niður að mestu. Eftir skemmtilegan dag hófst lokadansleikurinn með því að Erlingur Helgason hóf leik með Það var líka vals í Varmalandi

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.