Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 12
Harmonikufélag Reykjavíkur 30 ára
Harmonikufélag Reykjavíkur hélt upp á 30
ára afmæli sitt með tónleikum í Ráðhúsi
Reykjavíkur og dansleik í Fóstbræðraheim-
ilinu, laugardaginn 28. maí sl.
Olafur Briem formaður félagsins bauð tón-
leikagesti í Ráðhúsinu velkomna klukkan
fjögur. Einar Friðgeir Björnsson fór yfir sögu
félagsins í stórum dráttum áður en léttsveit
félagsins hóf leik. Hún byrjaði á Vals moder-
ato eftir meistara Magnús Pétursson. I kjölfarið
fylgdi Shadow ofyour smile og When Irish eyes
are smiling og að lokum Bíllinn minn og ég.
Fékk hljómsveitin hressilegt klapp að vonum.
I kjölfarið komu þeir Sigurður Alfonsson og
Einar Friðgeir Björnsson og léku franska vals-
inn Ciel D'Anjou og síðan Skógarblómin af
mikilli fagmennsku. Næstur á sviðið kom
Grétar Geirsson og flutti Krossanesminni og
Bóndavalsinn eftir Karl Jónatansson, en lauk
sinni þátttöku á Bldjjallapolka eftir Braga Hlíð-
berg. Ekki var að heyra að þar færi maður fast
að áttræðu. Garðar Olgeirsson flutti tvö lög,
Wiggen polka og Meiraför eftir Bjarna Böðv-
arsson. Var nú farið að léttast vel yfir tón-
leikagestum, sem buðu næst velkomnar kven-
legasta dúett landsins, þær Hildi Petru og
Vigdísi Jónsdóttur. Þær buðu upp á Dans pá
Sunnanö eftir Evert Taube og Amerikansk
Traskopolka við mikinn og verðskuldaðan
fögnuð. Þá var komið að einu brosandi harmo-
nikuhljómsveit landsins. Hún heitir Combo
Smárinn og hana skipa þau Guðný Kristín,
Ólafur Briem og Eyrún Isold. Þau byrjuðu á
Daníel eftir Karl Jónatansson. Því var fylgt
eftir með I 'm gonna live till Idie og Sway. Nú
var farið að síga á seinni hlutann. Hin magn-
aða Margrét Arnardóttir bauð upp á H moll
vals eftir Chopin, Olívublóm Frosinis og La
Noyee eftir Yann Tierse, sérlega ljúft lagaval
hjá Margréti. Næst mættu til sögunnar Hekla
Stórsveitin lauk tónleikunum í Ráðhúsinu með ghesibrag undir stjórn Einars Friðgeirs
Como Smárinn tók lagið á ballinu. „Papa jass “ ogjónas Pétur sáu um að takturinn vœri réttur
Eiríksdóttir og Sigurður Alfons-
son. Nú fengu gestir Selju litlu
eftir Jón Jónsson frá Hvanná,
Suður um höfin og Hvíslað yfiir
hafið eftir Gylfa Ægisson. Nú
var aðeins eftir stórsveitin. Sá
kunnuglegi Snjóvals hljómaði
fyrst, síðan Bye Bye Blackbird og
einkar viðeigandi í lokin var
Bærinn okkar, eftir stofnanda
Harmonikufélags Reykjavíkur
Karl Jónatansson. Þeir sem sáu
um undirleik voru þeir Edvin
Kaaber og Jón Guðmundsson á
gítar, Jónas Pétur Bjarnason á
bassa, Eggert Kristinsson og
Guðmundur „Papa jass“ á
trommur. Þeir ríflega 150 áheyr-
endur sem notið höfðu tónleik-
anna yfirgáfu ráðhúsið léttir í bragði, eftir
ágætlega heppnaða tónleika. Var nú komið að
dansleik.
Aður en dansleikurinn hófst í Fóstbræðraheim-
ilinu var hljóðfæraleikurum og skipuleggj-
endum afmælisins boðið til kvöldverðar. Einar
Friðgeir Björnsson formaður afmælisnefndar
bauð gesti velkomna og rifjaði upp þætti úr
sögu félagsins. Rúsínan í pylsuendanum var
upptaka RUV á hljóðfæraleik HR á fyrsta
starfsári félagsins. Atriðið var tekið upp í
verslunarmiðstöðinni Eiðistorgi á Sel-
tjarnarnesi árið 1987. Fyrir utan ljómandi
góðan tónlistarflutning í útsetningu Karls
Jónatanssonar, var eftir því tekið hve fjölmenn
sveitin var og glæsilega búin einkennisfatnaði
og hljóðfærum. Að sjálfsögðu var Karl fremstur
í flokki og stjórnaði sveitinni af fumlausri festu