Harmonikublaðið - 01.09.2016, Síða 21
Bragi Hlíðberg
Tónskáldið að þessu sinni er Bragi Hlíðberg.
Hann fæddist á Bragagötunni í Reykjavík
þann 26. nóvember 1923. Gatan er reyndar
skírð eftir allt öðrum Braga. Um tíu ára aldur-
inn fór Bragi að reyna að ná lagi á harmo-
nikuna og fljótlega kom í Ijós að tónlistargáfan
var vel yfir meðallagi og áhuginn ekki minni.
Fjórtán ára tók hann Gamla bíó á leigu og
hélt tónleika fyrir fullu húsi og fimmtán ára
gamall vann hann fyrstu verðlaun í keppninni
„Besti harmonikuleikari landsins“. Það er
annars merkilegt, að á þessum fyrstu árum
tónlistarferils síns lék Bragi á þrjár gerðir af
harmonikum. Fyrst á hnappaharmoniku með
norskum gripum, því næst með sænskum
gripum, en píanóharmonikuna fór hann ekki
að leika á fyrr en um tvítugsaldurinn á stríðs-
árunum, enda erfitt á þeim árum að kaupa
hnappaharmonikur frá Evrópu. A stríðsár-
unum lék Bragi vítt og breitt fyrir dansi, þó
stundum væri meira slegist
en dansað, en menn hafa jú
löngum haft mismunandi
aðferðir við að tjá ást sína.
Það var ekki fyrr en í lok sjö-
unda áratugarins að hann fór
semja lög og eins og fyrri
daginn var ekki neinn byrj-
endabragur á því, sem þessi
meistari sendi frá sér. Það
kom sem sagt heil plata af
stórkostlegu frumsömdu
efni. Astæðan mun vera sú að honum fannst
allir hafa spilað sömu lögin svo lengi, að hann
ákvað að semja eitthvað nýtt. Þar má finna
margar perlur, svo sem Jónsmessunótt, Vorgleði,
Yfir stokka ogsteina að ógleymdum valsinum
I Húsafellsskógi, sem gæti fengið Húsafells-
helluna til að taka sporið. Eiginkona Braga
Hlíðberg er Ingrið Hlíðberg, sem aldrei er
langt frá heiðursmanninum sínum. Þau
hjónin hafa um árabil verið ómissandi hlekkur
þegar eitthvað skemmtilegt er að gerast í lífi
harmonikuunnenda. Þau hafa verið fastagestir
á flestum þeirra fjölmörgu harmonikuhátíða
í gegnum áratugina. Margir fullyrða jafnvel,
að þetta hafi heldur aukist þegar aldurinn
færðist yfir. Ritstjóri
Ný heimasíða
www.egtonar.is
Úrval af notuðum harmonikum
* BKLllUNA /® BORSINI /
d^íipa ZBRO seiiB «51*0^ Sotrt&K. POLVERINI o &(>/</<
Akureyri: Mosateig 5 Sími 462 1520 & 660 1648
Reykjavík: Álfalandi 7 Sími 568 3670 & 824 7610
Eigum einnig ólar og aukahluti.
Munið myndasíðuna á netinu: www.harmoniku-unnendui.com
21