Harmonikublaðið - 01.09.2018, Qupperneq 2
Ágæti harmonikuunnandi
Nú kveðjum við brátt sumarið sem hefur
verið eins og önnur sumur með
harmonikumót félaganna innan raða S.I.H.U.
Eg varð þess aðnjótandi að vera á nokkrum
af þessum mótum og verð ég að segja að ekki
virðist aðsókn að mótunum hafa farið
minnkandi. Mikill fjöldi harmonikuunnenda
sótti Ydali heim og man ég ekki eftir jafn
miklu fjölmenni á neinu móti, fyrir utan
síðustu Landsmót. Sama var að segja með
aðsóknina að móti FHUR á Borg í Grímsnesi.
Þetta segir mér eitt, harmonikan er ekki á
undanhaldi og verður ekki ef aðildarfélög
SIHU halda áfram sínu frábæra starfí við að
kynna og efla þetta fallega hljóðfæri. Við
eigum í dag innan okkar raða, frábæra
harmonikuleikara og ekki má gleyma að
minnast á unga fólkið okkar sem sótt hefur
sér menntun erlendis með frábærum árangri.
Mér finnst sérstök ástæða til að minnast á
heimsókn norska harmonikufélagsins frá
Bodö, sem dvaldi á Borg í Grímsnesi um
verslunarmannahelgina og setti mjög
skemmtilegan svip á mótið. FHUR á sérstakar
þakkir skildar fyrir metnaðinn og framtakið,
en félagið hefur á undanförnum tíu árum
yfirleitt boðið upp á mjög glæsilega tónleika
á sínum sumarmótum. Nú styttist í að
vetrarstarfið hefjist innan félaganna, hljóm-
sveitaræfmgar hefjast og ýmsar uppákomur
sem félögin efna til. Það er mín ósk að sem
flest félög nýti veturinn sem best og reyni að
laða að sér ungt og efnilegt fólk sem hefur
brennandi áhuga á harmonikuspili. Þetta er
gömul klisja og ný, efla verður starf innan
félaganna og fá unga fólkið til að ganga í
félögin.
Stjórn sambandsins hefur haldið reglulega
stjórnarfundi og hefur aðal efni þessa funda
snúist um að finna félag til að halda næsta
landsmót árið 2020. Einnig hefur stjórnin
lagt sig fram um að leysa þau mál sem upp
hafa komið. Nú styttist í aðalfund
sambandsins, en hann verður haldinn í boði
FHUE í Kjarnaskógi á Akureyri dagana 5.
— 7. október. Oll fundargögn verða send
formönnum aðildarfélaganna í tíma. Ég vil
hvetja formann og fulltrúa hvers félags að
vera frjóa í hugsun
og umræðu, þannig
að þessi fundur verði
sem málefnalegastur.
Þetta verður síðasti
aðalfundur sem ég
mun sitja sem for-
maður sambands-
ins, þar sem ég gef
ekki kost á mér í
embætti formanns.
Þau ár sem ég hef verið í forsvari fyrir
sambandið hafa verið skemmtileg og ýmislegt
sem maður hefur lært á þessum árum. Allt
þetta góða fólk sem ég hef starfað með innan
stjórnar sambandsins hefur verið mér
ómetanlegt og vonandi á ég vináttu þeirra
um ókomin ár. Ég er þeirrar skoðunar að ég
sé búinn að vera of lengi sem formaður
sambandsins og það sé tími kominn á að nýr
formaður taki við, með ferskar og góðar
hugmyndir til handa SlHU. Að lokum vil
ég þakka öllu því góða fólki innan stjórnar
sambandsins og ekki síður stjórnum
aðildarfélaga sambandsins fyrir frábær kynni
og samstarf í gegn um árin. Hlakka til að
hitta ykkur sem flest á komandi aðalfundi.
Gunnar Kvaran, formaður
lverðlaun
ía van
Norska meistarmótið í harmonikuleik
fór fram á Storefjell hótelinu í
Buskerud, dagana 27.- 30. júní sl.
Mótið fer fram í mörgum flokkum.
Yngstu keppendurnir er ellefu ára og
yngri. Næsta flokk skipa keppendur 12
til 14 ára. Þá kemur flokkur 15 til 17
ára. Loks er flokkur 18 ára og eldri.
Einnig er keppt á diatoniskar (tvöfaldar)
harmonikur með sömu aldurskiptingu.
Ennfremur er keppni í dúettum í sömu
aldursflokkum. Þá keppa hljómsveitir
í gömlu dansa flokki, kammer-
músikflokki og danstónlistarflokki. Það
eru því margir keppendur á hverju ári
sem taka þátt.
1 ár var einn Islendingur meðal kepp-
enda. Það er Þingeyingurinn Ásta
Soffía Þorgeirsdóttir sem keppti í elsta
flokknum bæði í einleikaraflokki og
2
dúettflokki. Hún gerði sér lítið fyrir
og sigraði í báðum flokkunum. Með
henni í dúettinum lék Kristina F.
Björdal.
I einleikskeppninni lékÁsta Soffía fjóra
kafla úr Franskri svítu í G dúr eftir J.
S. Bach, Like a waterbuffalo, eftirYuji
Takhashi og Nephilim song eftir 0rjan
Matre. Þær Kristina léku þrjá kafla úr
Holberg svítu eftir Edvard Grieg og
Svenneprova eftir Jo Asgeir Lie.
Blaðið óskar Ástu Soffíu til hamingju
með þennan glæsilega árangur.
íslendingur hefur ekki hampað slíkum
titli síðan Hríseyingurinn, Lýður
Sigtryggsson varð Norðurlandameistari
1946.
PH Gullverðlaunahafmn