Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 3

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður: Friðjón Hallgrímsson Fspigerði 2 108 Keykjavík Sími 696 6422, fridjonoggudnj@internet.is Prentvinnsla: Prentgripur Héraðsprent, Egilsstöðum, wvrnv. heradsprent. is Forsíða: Eorsíðumjndina tók Reynir Elíesersson í sumarblíðunni á Borg um verslunarmannahelgina. Meðal efnis: - Asta Soffía vann gullverðlaun - Fannahlíðarhátíðin 2018 - Harmonikudagurinn á Breiðumýri 5. maí - Harmonikuhátíðin á Borg - Sumarið 2018 hjá FHUR - Harmonikuhátíðin á Steinsstöðum - Það var lag á Borg 2018 - Frostpinnar að vestan - Viðtalið: Emil Hjartarson sóttur heim - Harmonikuhátíðin að Ydölum - Tónleikar Bodö trekkspillklubb - Lag blaðsins eftir Karl Jónatansson - Af Héraði -1 þá gömlu góðu... Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500 1/2 síða kr. 16.500 lnnsíður 1/1 síða kr. 20.500 1/2 síða kr. 12.500 1/4 síða kr. 7.500 1/8 síða kr. 5.000 Smáauglýsingar kr. 5.000 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 25. nóvember 2018. Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík S: 568-3670 / 824-7610 Varaformaður: Haraldur Konráðsson budarholl@simnet.is Sólbakka 15, 861 Hvolsvöllur S: 487-8578 / 893-4578 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/ 861-5998 Gjaldkeri: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534 / 820-8834 Meðstjórnandi: Pétur Bjarnason peturbjarna@internet.is Geitlandi 8, 108 Reykjavík S: 456-4684 / 892-0855 Varamaður: Sigurður Ólafsson sandur2s@magnavik.is Sandi 2, 641 Húsavík S: 464-3539 / 847-5406 Varamaður: Sólveig Inga Friðriksdóttir solveiginga@emax.is Bólstaðarhlíð 2, 541 Blönduós S: 452-7107/856-1187 Harmonikumót á Islandi eru haldin víða um land á sumrin. Sumarið sem nú er að kveðja skartaði sex mótum. Að þessum mótum stóðu níu félög. Það er mjög forvitnilegt að skoða umgjörð þessara móta og ekki síst þá sem þau sækja. Aðsókn að þeim er nokkuð breytileg eftir svæðum, en líklega er um þrjú til fjögur hundruð manna hópur sem sækir þau. Langflestir halda til á mótssvæðunum, meðan á mótunum stendur, en alltaf eru nokkrir sem telja ekki eftir sér aka á mótsstaðina og til baka eftir að dansleik lýkur. Vinátta fólks á mótunum er mikil og fagnaðarfundir þegar fólk hittist, stundum í fyrsta skipti síðan á síðasta ári. Veður virðist hafa sáralítil áhrif á þátttöku fólks. Það er heist að vindur komi í veg fyrir að fólk komist með hjólhýsin á áfangastað. Alltaf hefur verið talsvert um heimafólk á mótunum, þó það sé mjög misjafnt eftir svæðum. Ekki eru öll mótin steypt í sama form. Eitt það mikilvægasta er að útvega harmo- nikuleikara fyrir dansleiki sem standa í þrjá til fjóra tíma á kvöidi og reyna að sjá til þess að ekki lendi allt á sömu spilurunum. Það mót sem hefur lengsta sögu á bak við sig er Ydalamótið, sem lengst af var haldið á Breiðumýri. Heldur hefur fækkað harmo- nikuleikurum heimamanna á því móti, sem hefur í gegn um tíðina verið það best sótta. Það mót sem næst kemur í aidri er harmonikuhátíð Skagfirðinga á Steinsstöðum í Skagafirði. Fyrstu fimmtán árin var hún reyndar haldin í Húna- veri í samvinnu við Húnvetninga. Það má segja það sama um Steinsstaðamótið. Harmonikuleikurum fer fækkandi, þó ennþá bjargi Skagfirðingar sér á heimamönnum. A Laugarbakkamótinu sem er á vegum Hún- vetninga og Nikkólínu sést að Húnvetningar bjarga sér óhefðbundið með spilara, en Nikkólína sér um sinn hluta. Mjög hefur þrengt að Vestlendingum með spilara, en Fannahlíð gengur ágætlega með góðri samvinnu við aðra, hvað sem verður í framtíðinni. FHUR er ennþá sjálft sér nægt með spilara um verslunarmannahelgina, en það mót er degi iengra en hin og Rangæingar og Selfyssingar geta ennþá bjargað sér á Borg. Það sést á þessari upptalningu að staðan er nokkuð brothætt og hver harmonikuleikari dýrmætur. Það sem hins vegar er styrkur þessa þáttar í félagsstarfinu, er að innan félaganna er starfandi fólk sem neitar að gefast upp, þó á móti blási. Auk þess að útvega spilara, safnar þetta fóik happ- drættisvinningum, bakar og gerir ýmislegt fleira svo mótið megi takast sem best. Þakklæti sem það fær á móti frá þeim sem koma og njóta harmonikumótanna er hins vegar sú eina borgun sem í boði er, en vel þegin. í fréttum var þetta helst Aðalfundur SÍHU verður haldinn í Hótel Kjarnalundi á Akureyri 6. október nk. Það er Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð sem býður til fundarins, en síðast var aðalfundur á þeirra vegum haustið 2011 í Sveinbjarnargerði. Dansleikur verður um kvöldið í Lóni. Aðalfundur Félags harmonikuunnenda í Reykjavík, sem haldinn var 29. maí sl. samþykkti tillögu þess efnis að félagið haldi næsta landsmót árið 2020. Ekki verður mótið haldið í Reykjavík. Stykkishólmur er hins vegar ákjósanlegur staður, þó ekkert sé þar harmonikufélag lengur. Stjórn FHUR hefur náð góðu sambandi við bæjarstjórnina og á von á góðu samstarfi við hana um framhaldið. Flemming Viðar Valmundsson sem nú stundar nám við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn er á leið til Castelfidardo um miðjan september til að taka þátt í hinni árlegu harmonikukeppni, sem þar fer fram í 43. skipti. Meðlimir Ítríósins, þau Helga Kristbjörg og Jón Þorsteinn, sem bæði hafa lokið meistaranámi frá Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn eru í framhaldsnámi við sama skóla, svokölluðu post graduate, sem er ígildi doktorsnáms án ritgerðar. Jónas Asgeir er í sama námi, en lýkur meistaranámi sínu í leiðinni. Ásta Soffía er á leið í skiptinám til Freiburg í Þýskalandi. Er þetta liður í meistaraáfanga hennar. Harmonikufélag Þingeyinga varð 40 ára þann 5. maí sl. Af því tilefni verður afmælisárshátíð á Breiðumýri laugardaginn 27. október nk. Þá er í undirbúningi rit um sögu félagsins. Afmælisgrein um þetta næst elsta harmonikufélag landsins mun birtast í desemberblaðinu. Heiðursfélagar SÍHU Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geirmundsson, Bragi Hlíðberg og Reynir Jónasson. ___________________________________J Kt. SÍHU: 611103-4170 3

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.