Harmonikublaðið - 01.09.2018, Qupperneq 4

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Qupperneq 4
Það var þéttsetinn Svarfaðardalurinn d fóstudaginn í Fannahlíð Valsinn stiginn Þrátt fyrir háan aldur stjórnarmanna og fleiri vandkvæði tókst að halda harmonikumótið í Fannahlíð í eitt skipti enn. Það var aðallega fyrir orð Svenna Sigurjóns og Sigga Harðar að hægt var að hóa til harmonikuhelgar á þessum vinsæla stað, sem þrátt fyrir ýmsa annmarka, hefur ætíð dregið að sér harmonikuunnendur víðs vegar að. Þar hefur td. aldrei verið hægt að komast í rafmagn. Þegar Geir á Kjaransstöðum og félagar hans í Harmonikuunnendum Vesturlands heyrðu Skottísinn þykir ómissandi á harmonikuböllum áhuga Svenna og Sigga ákváðu þeir að slá til einu sinni enn. A næsta ári verða þeir félagar hins vegar einir á báti, en þeir munu vera búnir að tryggja sér aðstoð frá félögum sínum í FHUR, sem er oft aflögufært með mannskap. Þrátt fyrir einhverja mestu rigningartíð sem sögur fara af, tók fólk að koma sér fyrir í Fannahlíð strax á fimmtudeginum. Föstudagurinn heilsaði með bros á brá og útlitið virtist gott. Um kvöldmatarleytið var orðið vel messufært á svæðinu þó einhvern tímann hafi sést fleiri. Heimamenn settu í gang klukkan níu, þegar Geir og Gestur hófu leikinn, undirleikarar voru þau Jónas Pétur Guðmundsson á bassa, Lárus Skúlason á gítar og Sigríður (Sirrý) Indriðadóttir á trommur. Þegar þeim fannst nóg komið tók Erlingur Helgason við ásamt fyrrgreindum með- leikurum. Svenni lauk síðan ballinu um miðnættið og fólk gekk til náða. Laugardagurinn hófst með staðgóðum morgunverði og var nú blásið til tónleika. Geir, Gestur og Guðmundur Helgi Jensson stigu nú á svið og léku ljúfa tónlist í dágóða stund áður en aðalnúmerið, þau Vigdís Jónsdóttir og Halli Reynis hófu sína kynningu á nýútkomnum hljómdiski. Var það undurfallegt á að hlýða og hin besta skemmtun. Nú tók við spil á svæðinu, en sólin braust fram úr skýjum um kaffileytið. Grillilmur barst fljótlega um svæðið og eftir matinn hófst seinni dansleikurinn. Þar hófu leik þeir Geir, Gestur og Guðmundur Helgi Jensson á nikkur, en Lárus Skúla, Jónas Pétur og Eggert Kristinsson sáu um taktinn. Eðvarð Árnason tók við af þeim ásamt Halldóri Svanssyni gítarleikara. Næstur var Svenni ásamt aðstoðarmönnum og hann lék þar til Selfyssingarnir Doddi rafvirki og Birgir Hartmanns tóku við. Öllum þessum harmonikuleikurum tókst að halda gólfinu heitu og það breyttist ekkert þegar þeir Svenni og Friðjón vindbelgur léku síðasta hálftímann. Það var ánægður hópur sem yfirgaf ballið aðeins til að taka þátt í meira fjöri á svæðinu, Vigdís og Halli Reynis við diskasölu í Fannahlíð því nú sýndi veðrið sínar bestu hliðar. Var leikið og sungið í dágóða stund í sumar- nóttinni. Sunnudagurinn var yndislegur, sól og blíða og fljótlega fóru að heyrast harmonikutónar á svæðinu. Smám saman fór fólk að tygja sig heimleiðis með orðunum sjáumst að ári. Vonandi verður þeim að ósk sinni, því orð eru jú til alls fyrst. Friðjón Hallgrímsson Myndir: Siggi Harðar I sól ogsumaryl undir Akrajjalli

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.