Harmonikublaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 6
Guðmundur Kjartan Kjerúlf, Arni Sigurbjarnarson, Hugrún Birgisdóttir, Almar Örn Jónsson, Karítas Embla Kristinsdóttir, Magnús Karl Kjerúlfog Hermann Veigar Ragnarsson
Harmonikufélag Þingeyinga hélt upp á Dag
harmonikunnar að venju, með tónleikum á
Breiðumýri sem hófust klukkan 14:00.
Formaðurinn Jón Helgi Jóhannsson setti
samkomuna og bauð gesti velkomna. Fyrst á
svið var Aslaug Anna Arnadóttir, nemandi í
Þingeyjarskóla, sem lék á harmoniku ásamt
Guðna Bragasyni kennara sínum. Þá spiluðu
Aldís Osk Knútsdóttir á harmoniku, Kristján
Benediktsson á bassa, Viktor Breki Kjartansson
á trommur og Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson
á gítar. Öll nemendur Guðna og Péturs
Ingólfssonar í Þingeyjarskóla. Þá var komið
að nemendum Arna Sigurbjarnarsonar í
Tónlistarskóla Húsavíkur. Fyrst spiluðu Helgi
Jóel Jónasson og Hilmar Bjarki Reynisson á
harmonikur ásamt Arna. Þá kom að eldri
nemendum Árna. Það voru Magnús Kari
Kjerúlf á harmoniku, Karitas Embla
Kristinsdóttir á harmoniku, Almar Örn
Jónasson á harmoniku, Hermann Veigar
Ragnarsson á harmoniku og bassa, Hugrún
Birgisdóttir á píanó og Guðmundur Kjartan
Kjerúlf á þverflautu. Spiluðu þau stundum
ein eða með Arna og öðrum í hópnum. Allir
þessir nemendur stóðu sig frábærlega og voru
kennurum sínum til sóma. Þá kom að okkar
félögum og fýrstur var Aðalsteinn ísfjörð, síðan
Asgeir Stefánsson. Rúnar Hannesson og
Katrín Sigurðardóttir spiluðu svo saman og
Jón Sigurjónsson lauk tónleikunum. Þá var
öllum boðið í veisluhlaðborð og fóru svo
saddir og sælir heim, nema félagsmenn sem
tóku lagið, þ.e. þeir sem það kunna. Aðrir
gengu frá á borðum og svo var tekin hópmynd
sem verður notuð í afmælisblað félagsins sem
varð 40 ára 4. maí sl. Verður það tilbúið fýrir
næstu árshátíð í haust.
Texti og myndir: Sigurður Olafsson
Karítas Embla Kristinsdóttir, 12 ára stoltur
harmonikuleikari
Jón Aðalsteinn Snœbjörnsson, Viktor Breki Kjartansson, Aldís Ósk Knútsdóttir, Kristján Benediktsson
6