Harmonikublaðið - 01.09.2018, Page 8

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Page 8
Fyrsta harmonikumót sumarins, útileguhátíð Selfyssinga og Rangæinga fór fram á Borg í Grímsnesi helgina 8. - 10. júní. Þrátt fyrir heldur neikvæða veðurspá fór fólk að drífa að, að morgni föstudagsins og um kvöldmatarleytið var orðin dágóður slæðingur af fólki, sem undi sér vel þrátt fyrir rigningardropa og undirbjó sig fyrir væntanlegan dansleik. Harmoniku- unnendur hafa svo sem aldrei hræðst vætuna. Dansleikurinn hófst með leik félaga úr fólkinu og tókst að manna tónleikana á síðustu stundu. Klukkan tvö steig á svið Tryggvi Sveinbjörnsson, Rangæingur og gítarleikari. Hann lék fjögur lög úr söngbókThe Shadows og eitt frumsamið og hlaut að launum dynjandi lófaklapp enda frábært atriði. Fannst mörgum sem Hank Marvin væri sjálfur mættur, slík var spilamennskan. Þá kom sér fyrir hljómsveit Rangæinga og Selfyssinga, undir stjórn Grétars Geirssonar. Léku þeir Tjúttað og djœvað afhjartans lyst áðurnefndum harmonikufélögum á Suðurlandi, sem nú koma fram sameinuð. Eftir klukkutímaleik tóku Birgir Hart- mannsson (Biggi) og Þórður Þorsteinsson (Doddi) við og héldu fólki við efnið, þar til Vindbelgirnir, Hilmar og Friðjón, leystu þá af hólmi og léku til miðnættis. Agætis mæting var á dansleikinn og umtalsvert fleira en á síðasta ári. Laugardagurinn heilsaði með rigningu en mikil bót var að logn var á og í raun ágætisveður. Tónleikar voru á dagskrá eftir hádegi. Mikil forföll urðu hjá tónleika- góða blöndu af tónlist íslenskra meistara og þá ekki síst Rangæinga, enda margir af þeim slóðum orðlagðir lagasmiðir. Grétar Geirsson hefur mörgum nemendunum kennt á harmoniku og nú varð hann eftir á sviðinu ásamt gömlum nemanda, sem reyndar var hættur en byrjaði aftur eftir margra ára hlé. Eyrún Aníta Gylfadóttir heitir þessi unga kona sem lék ýmist ein eða með meistara sínum næsta stundarfjórðunginn, þar til rveir gamlir skólabræður af Hvanneyri, Grétar Geirsson og Guðmundur Samúelsson tóku við og heilluðu salinn til loka tónleikanna, sem voru hinir skemmtilegustu þó illa horfði um morguninn. Eftir kvöldverð hófst svo dansleikur klukkan níu, þegar áðurnefndir Grétar og Guðmundur stigu á svið og léku til tíu, þegar Sveinn Sigurjónsson tók við og lauk leik rúmum klukkutíma síðar. Þá gengu til leiksins Doddi, Grétar Geirsson og Sigurður Guðjónsson og léku til miðnættis. Það var síðan Hildur Petra Friðriksdóttir sem lauk Það er orðið langt síðan þeir léku saman jyrst á Hvanneyri. Guðmundur Samúelsson og Grétar Geirsson hafa bara batnað síðan ballinu sem var hið skemmtilegasta og góð þátttaka í dansinum. Ágætis aðsókn var að harmonikuhátíðinni þrátt fyrir heldur erfitt veðurfar. Ástæða er til að hvetja þá félaga í þessum tveir harmonikufélögum sem nú starfa saman að halda áfram á sömu braut. Friðjón Hallgrímsson Myndir: Guðmundur Theodórsson Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsæít ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 cg 844 0172. Netfang: assigu@internet.is Veffang: www.nedsti.is Skoðið timaritis og flettið harmonikublöðum frá 1986

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.