Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 11

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 11
Skagfirðingar héldu sína harmonikuhátíð á Steinsstöðum um Jónsmessuna. Síðastliðið sumar féll hátíðin niður þar eð heimamenn í Skagafirði vildu ekki trufla landsmótið á Isafirði. Það mátti sjá um miðja vikuna að eitthvað stóð til, því gestir voru farnir að koma sér fyrir í skagfirskri blíðu strax á miðvikudeginum. Nokkrir urðu til að nota tækifærið og horfa á leik Islands og Nígeríu á HM milli þrjú og fimm. Ekki urðu úrslitin okkur að skapi, eða eins og Friðrik Steingrímsson orðaði svo faglega; / úrslitin nú löng er leið, landann petta amar. Nú fer ekki nokkur skreið, til Nígeríu framar. Föstudagsballið byrjaði klukkan níu, þegar Geirmundur Valtýsson og Jói Færeyingur settu í gang og var ekki að spyrja að þátttöku í dansinum. Þeir félagar léku allt kvöldið utan klukkutíma sem þeir Jón Gíslason og Aðalsteinn Isfjörð hlupu undir bagga. Þegar dansinum lauk um miðnættið hófst frjálsleg spilamennska á svæðinu og létt yfir fólki. Laugardagurinn rann upp eins og flestir höfðu reiknað með og ekki spillti veðrið. Mátti fljótlega heyra harmonikutóna á svæðinu, sem lífguðu upp á tilveruna. Tónleikar með kvöldvöku ívafi hófust klukkan tvö og var sitt af hverju í boði. Jón og Alli tóku lagið áður en Björg Baldursdóttir frá Vigur kvað rímur við raust. Ákaflega þjóðlegt og skemmtilegt Fyrst á réttunni, svo á röngunni tjú tjú trallala atriði. Þá sté í pontu Bjarni Pétur Maronsson úr Varma- hlíð, sem fór með gaman- mál. Tókst honum vel upp, en því miður fór stór hluti hans máls fyrir ofan garð og neðan, vegna magnarakerfis sem ekki virtist stillt við hæfi. Næstur á svið var Guðmundur Smári Guð- mundsson, ungur harmon- ikuleikari úr heimabyggð, sem lék nokkur lög. Meðan á þessu stóð fór fram happ- drættismiðasala Harmon- ikuunnenda í Skagafirði, en dráttur skyldi fara fram á ballinu um kvöldið. Geirmundur lék undir fjöldasöng í dágóða stund við góða undirtektir. Að þessu loknu hófst kaffisala Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps og voru þær veitingar vel þegnar enda glæsilegt veisluborð í boði. Var nú farið að líða að grilltíma, en þó dágóð stund fyrir spilamennsku á svæðinu, enda veðrið í miklu stuði eins og sagt er. Undir leik þeirra Jóns Gísla og Alla Isfjörð varð Friðriki að orði; Opnast sálar unaðs kimi, annar birtist töfraheimur. Ekki vantar ftngrafimi, hjá félögunum þessum tveimur. Þegar fólk hafði nærst um kvöldið og leikið nokkur lög við uppvaskið, mátti sjá strauminn stefna á ballið. Þar biðu tilbúnir í slaginn, Geirmundur og Jói Færeyingur. Var ekki minni þátttaka en kvöldið áður. Eins og áður hófu þeir leikinn, Geirmundur og Jói Færeyingur. Eftir klukkutíma tóku þeir bræður í Miðhúsum Jón og Stefán Gíslasynir við ásamt Rúnari Péturssyni trommara, auk Guðrúnar Helgu Jónsdóttur söngkonu. Fljótlega var farið að draga í happdrættinu og hljóp á snærið hjá mörgum, meðan aðrir sátu eftir með öngulinn í rassinum. Besta skemmtun var af þessu og þegar þeir bræður hófu aftur leikinn var vel mætt á dansgólfið. Það var ánægður hópur sem hélt heim á leið eftir ballið að ganga tvö og flestir kváðust mundu mæta að ári. Friðjón HaUgrímson Myndir: Siggi Harðar Lagið tekið eftir ball á Jónsmessunótt Valsinn stiginn á Steinsstöðum Kunnugleg andlit á harmonikumótunum Þessir gleðigjafar missa ekki af mörgum mótum 11

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.