Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 12

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Side 12
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík blés til harmonikuhátíðar að Borg í Grímsnesi í annað skipti um verslunarmannahelgina. Sumarið hafði verið ákaflega vætusamt suðvestan lands fram að þessu, en nú bar svo við að helgin virtist geta orðið þurr og jafnvel sólrík og ekki skemmdi fyrir að von var á norsku harmonikufélagi í heimsókn. Fólk tók því að streyma að strax á miðvikudeginum og mikill hugur í fólki, sem sumt var að koma beint af 1 í í V j I ý, í i j J i i í ; 1.M, Það er betra að kunna umferðareglurnar þegar þrengir að Laugardagur í sumarblíðu harmonikumótinu í Ýdölum í Aðaldal og hugði nú gott til glóðarinnar á Borg. Fimmtudagurinn rann svo upp og ekki bólaði á rigningu, sem þó hafði verið hótað. Enn fjölgaði og fór að heyrast harmonikuspil á stöku stað. A föstudaginn byrjaði allt vel, en þegar líða tók á daginn varð ljóst að himnarnir mígláku eins og oft áður í sumar. Um kvöldið rigndi sem aldrei fyrr og fór nú að fara um suma. Klukkan níu hófst svo dansleikurinn og Sigurður Alfonsson reið á vaðið ásamt aðstoðarmönnunum Fireini Vilhjálmssyni bassaleikara, Fróða Oddssyni gítarleikara og Eggerti Kristinssyni trommuleikara, en hann hefur ma. á ferilskránni að hafa stofnað Hljóma ásamt Gunnari Þórðarsyni. Eftur klukkutíma steig kvennasveit FHUR á svið, en hana skipuðu að þessu sinni þær Elísabet Einarsdóttir, nýkjörinn formaður félagsins, Ulfhildur Grímsdóttir og Gyða Guðmunds- dóttir. Hreinn fékk frí en Pétur Bjarnason tók við bassanum. Pétur þessi á heiðurinn af einu vinsælasta popplagi Islands nefnilega „Ég er frjáls“, en lag og texta samdi Pétur á einni kvöldstund meðan hann lék í Facon á Bíldudal, en það er nú önnur saga. Næstir á svið voru Norðmennirnir í Bodö trekk- spillklubb. Fór ekki milli mála að þar kunnu menn til verka. Um ellefu leytið stigu síðan þeir fóstbræður, Gunnar Kvaran og Einar Guðmundsson á sviðið, en þetta var frumraun þeirra á Borg, en þeir voru fastagestir á Varmalandi. Þátttaka í dansinum var með miklum ágætum, enda tónlistin við allra hæfi. Mætingin var fram úr vonum og setið þar sem sætt var. Þegar gestir röltu heim á leið rigndi sem fyrr en von á góðum nýjum degi. Um morguninn hafði svo stytt upp og Friðrik Steingrímsson orðaði það svo í morgunsárið, Eftir nœtur ógnar vætu, eygir glætu sála mín. Laugardagur Ijós ogfagur, léttir hag er sólin skín. Fyrst á dagskrá laugardagsins voru tónleikar Bodö klúbbsins, sem fjallað er um á öðrum stað í blaðinu. Eftir tónleikana var Norðmönnunum boðið til kaffidrykkju, en síðan fóru margir að líta á það nýjasta í harmonikum hjá Einari og Gunnari. Sveinn Sigurjónsson setti síðan í gang klukkan níu og var nú húsið orðið stappað. Með lagi tókst að koma um 40 manns fyrir á sviðinu fyrir aftan hljóðfæraleikarana. Norðmennirnir leystu síðan Svenna af og áttu ekki í erfiðleikum að halda gólfinu fullu. Næstir á svið voru síðan vinirnir frá Hvanneyri þeir Grétar Geirsson og Guðmundur Samúelsson. Þeim reyndist auðvelt að rifja upp það besta og fengu ágætis viðtökur. Það kom svo í hlut

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.