Harmonikublaðið - 01.09.2018, Síða 14

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Síða 14
HJARTARSON SÓTTUR HEIM Einn af fastagestum á dansleikjum harmonikuunnenda víða um land er hávaxinn eldri maður, sem helst fer ekki af dansgólfinu. Hann dansar jafnan við hávaxna eiginkonu sína og virðist mikið jafhræði með þeim hjónum. Emil Hjartarson hefur gjarnan tekið að sér á tyllidögum að segja sögur og er þá ærin ástæða til að leggja við hlustir. Mig langaði að fræðast öriítið meira um manninn og helst heyra söguna að baki honum. Eg mælti mér því mót við hann að heimili þeirra hjóna við Hátún í Reykjavík eitt ágústkvöld að áliðnum slætti, eins og sagði í textanum forðum. Heiðurshjónin Emil Hjartarson ogAnna Jóhannsdóttir Ljósmynd: Siggi Harðar Hvar og Kvenær er Emil Hjartarson fæddur? Eg fæddist 23. apríl árið 1936 á Flateyri við Onundarfjörð og átti þar heima fram á fullorðinsár. Var mikið um tónlist á æskuheimilinu? Ég held að segja megi að mikið hafi verið um tónlist á mínu æskuheimili. Móðir mín, Ragna Sveinsdóttir, hafði lokið prófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem hún var meðal annars nemandi Páls Isólfssonar og vei þeim sem ralaði óvirðulega um Pál í hennar eyru. Mamma var organisti við Flateyrarkirkju og kenndi söng í grunn- skólanum. Við bjuggum í tveggja hæða húsi sem gekk undir nafninu Kennarahúsið. A neðri hæðinni bjuggu afi og amma. Amma lék á orgel og var söngstjóri kirkjukórsins og fleiri söngflokka. Æfingar fóru gjarnan fram heima og var þá sungið á báðum hæðum. Lærðir þú á hljóðfæri? Mamma kenndi mér að spila á píanó og sannleikurinn er nú sá að ég hef aðallega spilað á hið lárétta hljómborð á píanói eða orgeli. Eg var í skólahljómsveit á menntaskólaárunum á Akureyri. Við spiluðum á böllum í skólanum og einstaka sinnum utan skólans. Svo spilaði ég dálítið á böllum heim á Flateyri. Það var nú lítils háttar. Eg var organisti í Flateyrarkirkju í nokkur ár. Ég hef lítið spilað á harmoniku, kann einföldustu „vinnukonugrip" á það göfuga hljóðfæri, Spilamennskan hefur að mestu 14 verið bundin sumarbúðaspili eða spileríi undir söng. Ég hafði aðgang að harmoniku í grunnskólanum þar sem ég kenndi og þá var harmonikan oft dregin upp þegar ég og nemendur mínir gerðum okkur dagamun. Einn veturinn var síðasta kennslustund vikunnar helguð harmonikuspili og söng. Starfaðir þú með Harmonikufélagi Vestfjarða? Ég eignaðist ekki harmoniku fyrr en gamlir nemendur gáfu mér nikku þegar ég varð sjötugur. Þar af leiðandi starfaði ég aldrei með Harmonikufélagi Vestfjarða. Eg er semsagt ekki harmonikuleikari heldur harmoniku- eigandi en aðallega hamonikuunnandi.

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.