Harmonikublaðið - 01.09.2018, Page 16

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Page 16
Lærðir þú að dansa? Eg á henni Onnu margt að þakka, til dæmis að hafa hvatt mig til að staulast út á dansgólfið. Ég var satt að segja ekki mikill dansmaður en nú sækjum við dansleiki, meðal annars þá sem eru á vegum harmonikufélaga í Reykjavík. Við höfum sótt námskeið og svo er hún góður dansari og hefur kennt mér nóg til að vera nokkurn veginn sjálfbjarga. Hver er þín sýn á framtíð harmonikunnar og dansins á Islandi? Af kynnum mínu af starfsemi harmonikufélaganna, sýnist mér ljóst að vegur þessa ágæta hljóðfæris fer vaxandi. Menn eru hættir að tala um harmonikuna með lítilsvirðingu. Við eigum núna bæði eldri og yngri harmonikuleikara sem hafa sýnt að þetta hljóðfæri á ótal möguleika til túlkunar. Þessir snillingar leika hvers konar tónlist, sígild verk og dægurflugur og allt þar á milli. Harmonikuleikarar koma víða við sögu og mætti segja meira frá því. Nú er varla haldin útihátíð í Reykjavík án þess að harmonikan komi við sögu í dagskránni, boðið upp á harmonikudansleiki og svo spila harmonikuleikarar á völdum stöðum gestum til ánægju. Harmonikuleikarar hafa verið duglegir að heimsækja dvalarheimili og hjúkrunarheimili - spila þar fyrir vistfólk og halda ball við hæfi þess. Eg veit að þær stundir eru mikils metnar. Harmonikuleikarar hafa spilað íyrir dansi í félagsmiðstöð í Reykjavík einu sinni í viku í 15 ár og eru enn að. Harmonikuleikarar í Reykjavík hafa líka heimsótt leikskóla. Og spilað fyrir börnin og starfsfólkið. Mér er kunnugt um að þeir þykja aufúsugestir og hlakkað til heimsóknanna. Emil tekur lagið með nemendum í Varmárskóla Sjálfur þakka ég fyrir ótal margar ánægjustundir í félagsskap við harmonikuleikara og tónlistina þeirra. Það er orðið áliðið kvölds þegar ég kveð þau hjónin. Leið mín liggur fram hjá Brautarholti 20, þar sem Þórskaffi var eitt sinn til húsa, einn vinsælasti dansstaður borgarinnar á sinni tíð. Nú er hún Snorrabúð stekkur, eins og sagt er. Einhvern tímann hafa þau Emil og Anna trúlega fengið sér snúning í Þórskaffi, en það er nú allt önnur saga. Friðjón Hallgrímsson 16 Emil Hjartarson les fólki pistilinn á þorrablóti FHUR Ljósmynd: Siggi Harðar Hjónin dansa skottís í Fannahlíð í sumar Ljósmynd: Siggi Harðar

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.