Harmonikublaðið - 01.09.2018, Síða 19
Hildur Petra og Vigdís og varð ekki skotaskuld
að halda fólki við efnið. Hildur Petra lauk
ballinu ásamt þeim er séð höfðu um
undirleikinn, þeim Pálmari Björns, Þorvaldi
Einarssyni og Jóhanni Möller. Einhver hafði
á orði í Ydölum á föstudagskvöldið að honum
þætti full mikið um valsa hjá hijómsveitinni
sem þá var á sviðinu. Þá orti Friðrik Stein-
grímsson;
Þegar kemur allt til alls
og ómar nikku snilli.
Þá skal dansa vals og vals
og valsa inn á milli.
A laugardeginum voru síðan tónleikar. Þar
komu fyrst fram Hildur Petra og Vigdís. Halli
Reynis og Vigdís léku síðan nokkur lög af diski
sem þau gáfu út nú í sumar. Agnes Harpa
Jósavinsdóttir og Elsa Auður Sigfúsdóttir léku
nokkra snotra dúetta. Þá lék Hafliði Olafsson
frumsamin lög. Aðalsteinn Isfjörð og Einar
Guðmundsson léku nokkur lög ásamt
hljómsveit skipaðri þeim Pálma Björnssyni á
gítar, Magnúsi Kristinssyni á trommur og
Eiríki Bóassyni á bassa. Að lokum tók svo
Einar Guðmundsson nikkuna til kostanna og
lék nokkur vel valin lög. Tónleikarnir voru
tvískiptir og í hléinu var í boði að fá sér
kaffisopa og vöfflur og mæltist þessi nýbreytni
vel fyrir. Samkvæmt venju var svo sameiginlegt
grill um kvöldið og síðar var dregið út
happdrætti þar sem í boði voru 50 vinningar
af ýmsu tagi. Dansleikur kvöldsins hófst svo
klukkan tíu og stóð til tvö. Þá riðu á vaðið
þau Rúnar Hannesar og Katrín Sigurðardóttir
ásamt hljómsveit, en síðan komu þeir Jón
Sigfússon og Gylfi Björnsson. Næstir á svið
voru þeir Aðalsteinn Isfjörð og Einar
Guðmundsson ásamt hljómsveit og síðan lauk
Valberg Kristjánsson þessu fjölmennasta balli
sumarsins. Þar með lauk formlegri dagskrá
þessarar harmonikuhelgar í Ýdölum. Þátttaka
var snöggtum betri í ár en í fyrra og viljum
við þakka öllum sem mættu fyrir helgina.
Sérstakar þakkir til hljóðfæraleikara fyrir
framlag þeirra til vel heppnaðrar harmon-
ikuhátíðar.
Jóhann Möller
Myndir: Siggi Harðar
Eftir að ákveðið var að Harmonikufélagið í
Bodö kæmi til að taka þátt í „Nú er lag á Borg
2018“ kom fljótlega í ljós áhugi þeirra á að
halda aukatónleika í kirkju. Sú kirkja sem helst
kom til greina var Reykholtskirkja í Borgarfirði,
en útsýnisferð þangað var að sjálfsögðu á
Bodö trekkspiLlklubb á sviðinu á Borg
áætluninni. Þegar í ljós kom að hún var laus
var þessu slegið föstu og þar hélt hljómsveitin
sína fyrstu tónleika í ferðinni fimmtudaginn
2. ágúst. Um áttatíu manns sóttu tónleikana
og nutu góðrar tónlistar í frábærum tónleikasal.
Tónleikarnir hófust á hinum einstaklega
fallega Sólskinsvalsi eftir Svíann Karl Grönstedt
(1912-1983), þar sem sólin skín afhverri nótu.
Því var fylgt eftir með hinu glæsilega Air and
Tune eftir Hollendinginn Jacob de Haan (f.
1959). Það er við hæfi að leika sálma í kirkjum
og nú hljómaði norski sálmurinn Jesus du som
styrer alt i alle og var hljómsveitinni þakkað
með lófataki. Einn af kunnari harmoniku-
leikurum Norðmanna er Asmund Björken
(1933-2018). Sletvikvalsinn úr smiðju hans
var næstur, sérlega ljóðrænn og fallegur vals,
sem hefur allt sem góður vals þarf. Þessu var
fylgt eftir með norska sálminum Det er navnet
ditt jeg roper og þar á eftir hlýddu gestir á
Varglött, eftir Ole Rörvik. Næst fengu gestir
að heyra Fangakórinn úr óperunni Nabucco
eftir Giuseppe Verdi. Tónverk sem getur fengið
steina til að gráta, slík er fegurðin. Áheyrendur
sátu sem í leiðslu. Utsetningin er eftir
stjórnandann Oddbjorn K.Nikolaisen, sem í
sumar forfallaðist á síðustu stundu, en annar
úr hljómsveitinni Geir Jostein Sandmo tók að
sér stjórnina í Islandsförinni. Þá var komið að
vinsælum sænskum slagara eftir Harry
Blomquist. Vinsældir lagsins eru skiljanlegar
þegar hlustað er á það, en Svíar og Norðmenn
syngja það gjarnan þegar þeir finna á sér. Næst
á skránni var sálmurinn Du som styrer straum
og vind, sem fluttur var af virðingu og
glæsileik. Þá var komið að öðru sænsku lagi,
eftir fiðluleikarann Leif Göras (f. 1946). Sá
er ma. þekktur fyrir að leika í hljómsveit
Benny Andersons. Annas vise hefur náð
geysimiklum vinsældum á stuttum tíma enda
um óvenjulega fallegt tónverk að ræða. Nú
leið að lokum tónleikanna og Melodi beguine
eftir norska munnhörpuleikárann Sigmund
Groven (f.1946) fékk yndislega meðferð hjá
Bodö klúbbnum. Tónleikunum lauk svo með
norðurnorskum sumarvalsi eftir Erling
Jonslov, en hann mun vera frá Bodösvæðinu.
Þar með lauk þessum fyrstu tónleikum
Harmonikufélagsins í Bodö á Islandi og
tónleikagestir yfirgáfu Reykholtskirkju léttir
í sinni með bros á brá og tónasætsúpu í
eyrunum. Ekki er vafamál að hljómsveitin er
með þeim allra bestu sem hér hafa komið.
Helst minnist ég í því sambandi hljómsveitar
Harmonikufélagsins í Oslo á tónleikum í
Neskirkju fyrir ríflega áratug eða svo. Næsta
laugardag voru síðan aðrir tónleikar að Borg
í Grímsnesi. Þar var sálmunum skipt út fyrir
örlítið veraldlegri tónlist án þess að draga úr
glæsileik og gæðum. Þar hlýddu tæplega 200
manns á tónleika hljómsveitarinnar.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Reynir Elíesersson
19