Víkurfréttir - 16.09.2020, Blaðsíða 14
„Mér finnst það fara mjög vel saman að vera prestur og skrifa glæpasögur. Ég les til dæmis
mikið krimmabækur og er aðdáandi þeirra. Ég tala við alls konar fólk í mínu starfi og þetta
rennur skemmtilega saman. Í síðustu tveimur bókum mínum er prestur í lykilhlutverki þannig
að ég get sagt að það sé mjótt á milli krimmans og prestsins,“ segir séra Fritz Már Jörgens-
son, prestur í Keflavíkurkirkju og rithöfundur, en hann var að gefa út sjöttu bókina sína sem
heitir Drottningin.
Fritz hefur verið nokkuð öflugur
rithöfundur á undanförnum árum
og Drottningin er sjötta bókin hans.
Allar bækur prestsins eru krimmar
og sögusvið Drottningarinnar er
m.a. á Suðurnesjum, í Reykjanesbæ,
Vogum og í Höfnum en einnig á
höfuðborgarsvæðinu og austur undir
Eyjafjöllum.
Erfitt með að hætta
– En hvernig fæðist
bók hjá presti?
„Það kemur hugmynd og svo byrja ég
að skrifa og geri eitthvað á hverjum
degi. Þegar ég skrifa á ég stundum
erfitt með að hætta þegar það er
mikil spenna í gangi. Mig langar svo
mikið að vita hvað gerist næst. Ég
er með stóru myndina í kollinum en
það sem gerist á milli gerist bara í
skrifunum.“
Fritz segist skrifa þetta inn í kilju-
formið og stefnir ekki sérstaklega á
jólabókavertíð í sínum skrifum. „Ég
er kiljumaður en hef svo sem gert
hitt líka, í fyrstu bókum mínum. Ég
vil ekki hafa mínar bækur of langar
og svo er kiljan svo hentug. Ég gaf
út næstsíðustu bók um mitt sumar
í fyrra og það kom vel út og núna er
þessi að koma út um haust. Hefði
átt að koma út í sumar en af ýmsum
ástæðum sem óþarfi er að nefna þá
frestaðist það um nokkrar vikur.
Ekki stórmál samt og Drottningin
fékk góðar mótttökur og skaust strax
ofarlega á sölulista bókabúða.“
Hljóð og rafbækur
Presturinn segist aðspurður vera
mikill Storytel-maður og bækurnar
hans hafa komið þar út. „Mér finnst
það stórkostleg viðbót við pappírs-
bókina. Við erum að stíga inn í sam-
tímann og það er frábært að geta
verið úti að ganga eða hlaupa og
hlustað á hljóðbók í eyrunum eða
verið á biðstofunni einhvers staðar
að lesa bókina í rafrænni útgáfu í
símanum. Svo eru einhverjir sem
eiga erfitt með að lesa og því er gott
að hlusta. Stafrænn heimur er alltaf
að stækka.“
– Þjóðkirkjan hefur átt undir
högg að sækja, hvernig upplifir
þú það í starfinu sem prestur?
„Ég held að fólk sé oft að mótmæla
einhverju ótengt því sem við prest-
arnir erum að gera dags daglega. Við
sem erum að vinna í heimasókn-
unum finnum ekki eins fyrir þessu
og eigum mjög gott og traust sam-
band við fólkið í nærsamfélaginu.
Það er vel sótt hjá okkur. Ég held
að þetta sé tvennt ólíkt en auðvitað
þurfum við að leggja okkur fram við
það að vera í þessu opinbera rými,
t.d. á samfélagsmiðlum og í staf-
rænu umhverfi. Þjóðkirkjan hefur
samt bætt sig á þessu sviði og það
hefur komið vel fram á veirutímum.
Það er búið að streyma mörgum
jarðarförum og messum þannig að
fólk hefur getað nálgast þetta allt í
opinbera rýminu. Það hefur tekist
að víkka út starf Þjóðkirkjunnar á
tímum Covid-19.
Fermingar sem áttu að vera í
vor voru með aðeins öðrum hætti
núna síðsumars en það gekk vel. Við
þurftum að breyta einhverju minni
háttar, t.d. slepptum við altarisgöng-
unni. Þetta gekk afar vel og var alveg
jafn gefandi og skemmtilegt. Það er
gaman að horfa yfir þennan fallega
hóp ungmenna sem var fermdur
núna. Við þurfum svo sannarlega
ekki að kvíða framtíðinni. Nú er
kominn nýr hópur sem er að hefja
fermingarundirbúning og það verður
spennandi að fara í hann með þeim.“
Doktor Fritz
Séra Fritz hefur verið duglegur að
bæta við sig menntun og þekkingu
og hann er að ljúka doktorsnámi í
guðfræði.
„Ég var að skila doktorritgerð
núna í ágúst og hún heitir „Gjörið
það sem ...“ og er vísun í gullnu
regluna, kirkjan á milli tveggja heima,
og er rannsókn á stöðu kirkjunnar
í rafrænum heimi. Hluti af rann-
sókninni er fyrirbæri sem heitir
netkirkja og hefur slóðina netkirkja.
is en ég og konan mín settum upp
kirkju á netinu til að kanna hvort
hún gæti lifað af, bara þar. Ég fylgist
með stöðu hennar talnalega og
greini, m.a. með viðtölum við presta,
hvernig þeir eru að nálgast þennan
rafræna heim. Ég skoða þetta allt út
frá hruninu, hvernig kirkja var að
tala inn í siðrofið sem var þar. Þetta
er búið að vera mjög skemmtilegur
tími í sex ár.
– Ertu bjartsýnn á framtíð
Þjóðkirkjunnar?
„Já, ég held að kirkjan muni eins og
alltaf áður standa uppi. Sóknirnar
eru svo víða að gera góða hluti. Þjóð-
kirkjan er eins og þjóðin, ólík eins og
hún er fjölbreytt. Við bjóðum upp á
svo marga ólíka þætti. Ég hef engar
áhyggjur af kirkjunni, engar,“ segir
séra Fritz.
Drottningin
hans Fritz
Séra Fritz Már Jörgensson,
prestur í Keflavíkurkirkju,
skrifar glæpasögur á milli
guðsþjónusta og jarðarfara
Um Drottninguna
Á tjaldstæði austur undir Eyja-
fjöllum hverfur barn af sérlega
óhugnanlegum morðvettvangi.
Lögreglumennirnir Jónas og
Addi eru kallaðir til. Rannsókn
lögreglunnar er umfangsmikil. Í
ljós kemur að við er að eiga öfl
sem svífast einskis, jafnvel þótt
börn eigi í hlut. Æsispennandi
glæpasaga um svik, morð og
valdatafl í ofbeldisfullum veru-
leika á Íslandi.
Nafn bókarinnar Drottningin
er dregið af húsbíl sem kemur
mjög við sögu í bókinni.
Inngangur bókarinnar gerist
árið 1975 þegar hræðilegur
harmleikur, sem rústar lífi
lítillar fjölskyldu, á sér stað í
splunkunýjum húsbíl fjölskyld-
unnar.
Síðan hefst bókin í samtím-
anum og í fyrstu köflum bókar-
innar segir frá fólki úr Keflavík
sem keypt hefur gamlan húsbíl
á góðu verði og gert hann upp.
Nefnir hann Drottninguna og er
á leið í stutt frí með barnabarni
sínu í nýuppgerðum húsbíl þar
sem óvæntir atburðir munu eiga
sér stað.
Alvarlegir glæpir eru framdir
og Jónas rannsóknarlögreglu-
maður og samstarfsmaður hans
Addi hefja rannsókn mála.
Söguvettvangur er Suður-
nesin, Reykjavík og Fljótshlíðin.Páll Ketilsson
pket@vf.is
„Þegar ég skrifa á ég stundum erfitt
með að hætta þegar það er mikil
spenna í gangi. Mig langar svo
mikið að vita hvað gerist
næst. Ég er með stóru
myndina í kollinum en
það sem gerist á milli
gerist bara í skrifunum.“
Fritz og Erla Guðmundsdóttir
á góðri stundu í fermingu
í Keflavíkurkirkju
síðasta sunnudag.
14 // vÍKURFRÉTTIR á sUðURNEsJUM Í 40 áR