Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 07.10.2020, Qupperneq 1
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að leggja til að komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur. Fyrirhugað er að ráðstafa allt að 300 millj. kr. til kaupa á þjónustu hjá mennta- netinu sem hluti af átakinu Nám er tækifæri. Þá hefur verið ákveðið að styrkja þær námsleiðir sem í boði eru hjá Keili gegn því að sveitar- félögin á Suðurnesjum komi jafn- framt inn með fjármuni á móti. Stjórnvöld hafa að undanförnu átt samtöl við forsvarsmenn sveitar- félaga, landshlutasamtök sveitar- félaga á Suðurnesjum, menntastofn- anir og atvinnurekendur á svæðinu með það að markmiði að koma fram með aðgerðir sem taki mið af stöðu vinnumarkaðarins en atvinnuleysi á svæðinu fór hæst í kringum 25% eftir að faraldurinn hófst en var í september í kringum 17%. „Við erum með augun á Suður- nesjum núna. Það er engin spurning. Við áttum mjög góðan fund með bæjarstjórum sveitarfélaganna ný- lega þar sem farið var yfir ýmsa möguleika og verkefni og það má segja að þetta menntaúrræði sé það fyrsta sem kemur úr því. Einnig að styrkja rekstur Keilis sérstaklega en þar koma sveitarfélögin einnig með í það. Við vitum hvernig ástandið er á svæðinu í atvinnumálum og erum að skoða fleiri úrræði í þeim efnum, m.a. hugmyndir sem hafa komið frá heimamönnum. Þar má nefna hafnamál, samgöngumál, frumkvöla- starfsemi og fleira,“ segir Katrín Jak- obsdóttir, forsætisráðherra í samtali við Víkurfréttir. Katrín segir að það sé einnig horft til þess hvernig hægt sé að auka fjárfestingu einkaaðila sam- hliða því að tryggja félagslegs og menntaúræði, nýsköpun, ný tæki- færi og hraða verkefnum. „Við erum líka að hvetja til einkafjárfestingar í grænni umbreytingu með möguleika á ívilnunum í slíkum verkefnum, þar sem horft er til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þar eru mörg ónýtt tækifæri, til dæmis í grænmetisframleiðslu. Við erum bara að framleiða lítið af því sem við borðum,“ sagði forsætisráðherra. Menntamálaráðherra mun stýra þessu nýja menntaneti í samvinnu við heimamenn en forsætisráðherra sagði að svona verkefni hafi verið gert víðar með góðum árangri. Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Combo tilboð 218 kr/combo GOTT VERÐ alla daga Kókómjólk 1/4 ltr og kleinuhringur DOMINOS.IS | DOMINO’S APPPIZZUR MÁNAÐARINS1. 79 0 KR . 1. 79 0 KR . 24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Sport Agnar 4 síðna blaðauki! fer á fjöll Stoppaður með stolið vegabréf Á LEIÐ TIL MANCHESTER 300 milljónir króna í mennta- net á Suðurnesjum frá ríkinu „Erum með augun á Suðurnesjum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.JÓN AXEL Í TOPPMÁLUM Hlaðnar silfri upp í efstu deild! Kvennalið Keflavíkur hefur tryggt sér sæti í Pepsi Max- deild kvenna að ári. Þær eru silfurhafar Lengjudeildarinnar. Sjá nánar íblaðauka um íþróttir með Víkurfréttum í dag. MiðvikUdAgUr 7. OkTÓbEr 2020 // 38. TbL. // 41. Árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.