Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 1
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í síðustu viku að leggja til
að komið yrði á fót menntaneti
á Suðurnesjum í samstarfi við
menntastofnanir á svæðinu til að
efla náms- og starfsúrræði fyrir
atvinnuleitendur. Fyrirhugað er
að ráðstafa allt að 300 millj. kr.
til kaupa á þjónustu hjá mennta-
netinu sem hluti af átakinu Nám er
tækifæri. Þá hefur verið ákveðið að
styrkja þær námsleiðir sem í boði
eru hjá Keili gegn því að sveitar-
félögin á Suðurnesjum komi jafn-
framt inn með fjármuni á móti.
Stjórnvöld hafa að undanförnu
átt samtöl við forsvarsmenn sveitar-
félaga, landshlutasamtök sveitar-
félaga á Suðurnesjum, menntastofn-
anir og atvinnurekendur á svæðinu
með það að markmiði að koma fram
með aðgerðir sem taki mið af stöðu
vinnumarkaðarins en atvinnuleysi
á svæðinu fór hæst í kringum 25%
eftir að faraldurinn hófst en var í
september í kringum 17%.
„Við erum með augun á Suður-
nesjum núna. Það er engin spurning.
Við áttum mjög góðan fund með
bæjarstjórum sveitarfélaganna ný-
lega þar sem farið var yfir ýmsa
möguleika og verkefni og það má
segja að þetta menntaúrræði sé það
fyrsta sem kemur úr því. Einnig að
styrkja rekstur Keilis sérstaklega en
þar koma sveitarfélögin einnig með
í það. Við vitum hvernig ástandið er
á svæðinu í atvinnumálum og erum
að skoða fleiri úrræði í þeim efnum,
m.a. hugmyndir sem hafa komið
frá heimamönnum. Þar má nefna
hafnamál, samgöngumál, frumkvöla-
starfsemi og fleira,“ segir Katrín Jak-
obsdóttir, forsætisráðherra í samtali
við Víkurfréttir.
Katrín segir að það sé einnig
horft til þess hvernig hægt sé að
auka fjárfestingu einkaaðila sam-
hliða því að tryggja félagslegs og
menntaúræði, nýsköpun, ný tæki-
færi og hraða verkefnum. „Við erum
líka að hvetja til einkafjárfestingar í
grænni umbreytingu með möguleika
á ívilnunum í slíkum verkefnum,
þar sem horft er til þess að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. Þar
eru mörg ónýtt tækifæri, til dæmis
í grænmetisframleiðslu. Við erum
bara að framleiða lítið af því sem
við borðum,“ sagði forsætisráðherra.
Menntamálaráðherra mun stýra
þessu nýja menntaneti í samvinnu
við heimamenn en forsætisráðherra
sagði að svona verkefni hafi verið
gert víðar með góðum árangri.
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Combo
tilboð
218
kr/combo
GOTT VERÐ alla daga
Kókómjólk 1/4 ltr og kleinuhringur
DOMINOS.IS | DOMINO’S APPPIZZUR MÁNAÐARINS1.
79
0
KR
.
1.
79
0
KR
.
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Sport
Agnar
4 síðna
blaðauki!
fer á fjöll
Stoppaður
með stolið
vegabréf
Á LEIÐ TIL MANCHESTER
300 milljónir króna í mennta-
net á Suðurnesjum frá ríkinu
„Erum með augun á Suðurnesjum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.JÓN
AXEL
Í TOPPMÁLUM
Hlaðnar silfri upp í efstu deild!
Kvennalið Keflavíkur hefur tryggt sér sæti í Pepsi Max-
deild kvenna að ári. Þær eru silfurhafar Lengjudeildarinnar.
Sjá nánar íblaðauka um íþróttir með Víkurfréttum í dag.
MiðvikUdAgUr 7. OkTÓbEr 2020 // 38. TbL. // 41. Árg.