Víkurfréttir - 07.10.2020, Qupperneq 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Prentun:
Landsprent
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís
Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
Rekstrarafkoma af samstæðu
Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta
(EBIT) á fyrri helmingi ársins 2020
var neikvæð um 5,3 milljarða króna
samanborið við neikvæða rekstr-
arafkomu upp á 942 milljónir króna
árið á undan.
Áhrif kórónuveirunnar voru
veruleg á rekstur félagsins á fyrri
helmingi ársins og nam samdráttur
í tekjum frá sama tímabili í fyrra um
9,6 milljörðum króna eða 53%. Ef
horft er eingöngu til annars ársfjórð-
ungs nam tekjusamdráttur milli ára
um 77% fyrir samstæðu Isavia en
97% ef horft er til reksturs móður-
félagsins sem sinnir rekstri Kefla-
víkurflugvallar. Félagið hefur gripið
til verulegra hagræðingaaðgerða
til að mæta tekjusamdrættinum
en áhrifa þeirra mun gæta á síðari
hluta ársins. Engu að síður lækkaði
rekstrarkostnaður um 12,4% milli
fyrri helmings árs 2019 og 2020
sem má að stærstum hluta rekja til
aðgerða sem félagið greip til í kjölfar
falls Wow air í lok fyrsta ársfjórð-
ungs á síðasta ári og áhrifa af kyrr-
setningu Boeing 737-MAX flugvéla
Icelandair.
Heildarafkoma tímabilsins var
neikvæð um 7,6 milljarða króna
samanborið við neikvæða afkomu
um 2,5 milljarða króna fyrir sama
tímabil í fyrra en inn í þeirri afkomu
var niðurfærsla upp á um 1,9 milljarð
króna vegna falls Wow air.
„Áhrif kórónuveirunnar á rekstur
flugvalla og flugleiðsöguþjónustu
hafa verið veruleg og ber afkoman
hjá samstæðu Isavia þess merki,“
segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
Isavia. „Við höfum gripið til umfangs-
mikilla aðgerða til að mæta þessum
áhrifum og höfum m.a. því miður
neyðst til þess að segja upp fjölda
starfsmanna hjá móðurfélaginu og
í Fríhöfninni ásamt því að skerða
starfshlutföll starfsmanna hjá sam-
stæðunni. Við búum okkur undir að
flugumferð fari jafnvel ekki af stað á
ný fyrr en í lok fyrsta ársfjórðungs
næsta árs. Þannig lítur þetta út í dag.
Afkomuspá okkar gerir nú ráð fyrir
að heildarafkoma samstæðu Isavia
verði neikvæð um 13-14 milljarða
króna á árinu 2020 og að áhrif
kórónuveirunnar geti því numið um
15-16 milljörðum króna á heildaraf-
komuna. Aftur á móti er sjóðstaða
félagsins sterk og við ráðum við að
vera tekjulaus á Keflavíkurflugvelli
fram á næsta vor án þess að sækja
viðbótar fjármögnun. Við gerum þó
ráð fyrir í okkar áætlunum að sækja
nýtt fjármagn inn í félagið til að geta
viðhaldið okkar umsvifum til næstu
ára.“
Þrátt fyrir gríðarmikil áhrif kórón-
uveirunnar á rekstur Isavia og ferða-
þjónustunnar í heild þá telur félagið
að mikil tækifæri séu til staðar fyrir
Ísland og innlenda ferðaþjónustu
þegar flug hefst á ný: „Við sáum í
sumar að það er mjög mikill áhugi
hjá ferðamönnum að heimsækja
Ísland og þá kom það okkur í raun-
inni á óvart hversu hratt flugfélög
fjölguðu ferðum þegar byrjað var að
skima fyrir veirunni á Keflavíkur-
flugvelli í júní,“ segir Sveinbjörn.
„Ferðamenn munu að okkar mati
sækja heim áfangastaði sem bjóða
upp víðáttu og hreinleika, þannig að
við teljum að Ísland verði eftirsóttur
áfangastaður þegar flug hefst á ný.
Við sjáum líka mikil tækifæri til að
styrkja samkeppnisstöðu Keflavíkur-
flugvallar sem tengiflugvallar milli
Evrópu og Norður-Ameríku. Þá má
ekki gleyma því að það flugfélag sem
hefur nýtt flugvöllinn sem tengiflug-
völl tryggði sér nýverið mikilvæga
fjármögnun. Þó að staðan núna sé
afar krefjandi megum við ekki missa
sjónar á þeim miklu möguleikum
sem við höfum til framtíðar,” segir
Sveinbjörn.
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ís-
land hefst á næstu dögum með komu flugsveitar
bandaríska flughersins. Allt að 250 liðsmenn
flughersins taka þátt í verkefninu auk starfs-
manna frá stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í
Uedem í Þýskalandi (Combined Air Operations
Center) og eistneska flughernum. Flugsveitin
kemur til landsins frá Bretlandi með allt að
fjórtán F15 orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflug-
völlum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu
9. til 16. október ef veður leyfir.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama
hætti og áður auk þess sem hún verður í samræmi
við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.
Fyrstu liðsmenn sveitarinnar komu til landsins
í síðustu viku. Strangari ráðstafanir eru gerðar
vegna komu sveitarinnar en almennt gildir
um ferðamenn sem koma til landsins því auk
landamæraskimana fara allir í tveggja vikna
vinnusóttkví (B-sóttkví) að lokinni fyrstu skimun.
Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð
fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok mánaðarins.
Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verk-
efnisins í samvinnu við Isavia.
Loftrýmisgæsla Bandaríkjamanna að hefjast
7,6 milljarða tap á rekstri
isavia fyrstu sex mánuðina
Öll blöðin frá 1980 og til dagsins í dag á timarit.is
Bæjarráð Reykjanesbæjar
hefur samþykkt að leggja til
við bæjarstjórn að Reykja-
nesbær taki lán hjá Lánasjóði
sveitarfélaga að fjárhæð 8,4
milljarðar króna til allt að
40 ára til að fjármagna upp-
greiðslu láns Reykjanesbæjar
hjá Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins. Tekjur Reykjanes-
bæjar eru til tryggingar á
láninu en bæjarstjóra hefur
verið falið að vinna áfram í
málinu.
Taka 8,4 milljarða
króna að láni
Bæjarráð Sveitarfélagsins
Voga hefur samþykkt að bjóða
ferðaþjónustufyrirtækinu
Vogasjóferðum ehf. gjaldfrest
á hafnargjöldum félagsins, á
sambærilegan hátt og veittur
hefur verið gjaldfrestur á fast-
eignagjöldum lögaðila í ferða-
þjónustu. Gjaldfresturinn er
veittur til sex mánaða.
Vogasjóferðir ehf. höfðu sent
bæjaryfirvöldum erindi með
beiðni um niðurfellingu hafn-
argjalda Særósar GK, sem er
ferðaþjónustuskip sem gert er
út frá höfninni í Vogum.
Bjóða frestun
á greiðslu gjalda
2 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár