Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 7
Aðalskoðun hefur flutt starfsemi
skoðunarstöðvar sinnar í Reykja-
nesbæ í nýtt húsnæði að Njarðar-
braut 11a. Með nýrri skoðunarstöð
verður afkastagetan tvöfölduð.
Í nýju skoðunarstöðinni verða
tvær skoðunarlínur í stað einnar
sem var á gamla staðnum. Fyrsta
hálfa mánuðinn verður þó eingöngu
önnur línan starfrækt því búnaður úr
gömlu stöðinni verður uppfærður og
honum komið fyrir í nýja húsnæðinu.
Pálmi Hannesson er stöðvarstjóri
Aðalskoðunar í Reykjanesbæ. Hann
var að vonum kátur með breyting-
arnar og nýja húsnæðið. Öll vinnuað-
staða í skoðunarsalnum er til mikilla
bóta. Önnur skoðunarlínan er með
gryfju og þar verður hægt að taka
inn stærri ökutæki og eftirvagna en
áður. Þannig er t.a.m. auðveldara
núna að koma stærri húsbílum inn
í skoðunarstöðina og sama á við um
stærri og breiðari hjólhýsi. Skoð-
unarstöð Aðalskoðunar í Reykja-
nesbæ getur tekið við ökutækjum
upp á 7,5 tonna heildarþunga. Eins
og fyrr segir er önnur skoðunarlínan
með gryfju en hin línan verður með
lyftubúnaði úr gömlu skoðunar-
stöðinni sem verður endurnýjaður
og uppfærður.
Aðstaða í skoðunarsalnum er ekki
bara betri því móttaka viðskiptavina
er einnig rúmbetri og þar verður
hægt að afgreiða fleiri á sama tíma.
Þá er öll starfsmannaaðstaða betri á
nýja staðnum.
Í skoðunarstöðinni í Reykjanesbæ
er hægt að skoða alla fólksbíla upp
að 3.500 kg., farþegabíla frá 3.500
kg. að 7.500 kg. auk ferðavagna og
mótorhjóla.
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Opið
mán –fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Notaðu
N1 kortið
Alla leið
á öruggari
dekkjum
Pantaðu tíma
í dekkjaskipti
á n1.is
ALLA LEIÐ
Michelin X-ICE Snow
Nýjasti meðlimurinn í vetrardekkjalínu
Michelin Aukið grip hvort sem í hálku,
snjó eða slabbi
Endingargott grip út líftímann
Einstakir akstureiginleikar og þægindi
við erfiðustu aðstæður
Allir bestu eiginleikarnir –
Michelin Total Performance
Michelin X-ICE North 4
Besta hemlun í hálku, hvort sem
dekkin eru ný eða ekin 10.000 km
Betri aksturseiginleikar m.v.
helstu samkeppnisaðila
Hámarks grip með sérhönnuðu
mynstri fyrir hverja stærð
Einstök ending
Michelin Alpin 6
Nýr mynsturskurður sem opnast
eftir því sem dekkið slitnar
Endingargott grip út líftímann
Lagskipt gúmmíblanda sem veitir
hámarks grip
Nýtt
Tvöfalda afkastagetu í nýrri skoðunar-
stöð Aðalskoðunar í Reykjanesbæ
Ný skoðunarstöð Aðalskoðunar við Njarðarbraut 11 a í Reykjanesbæ. Pálmi Hannesson stöðvarstjóri Aðalskoðunar í Reykjanesbæ.
Móttaka og biðsvæði
viðskiptavina er
mun rúmbetra en á
gamla staðnum.
vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 7