Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Side 9

Víkurfréttir - 07.10.2020, Side 9
– Ferðu hratt yfir? Nei, alls ekki. Ferðirnar eru nokkurs konar hugleiðsla, úrvinnsla verkefna lífsins sem maður fæst við hverju sinni. Ef veður gott, náttúrufegurð mikil þá er hægara farið yfir. – Hvernig er best að byrja? Sennilega að skoða gönguhópana á Facebook. Vesen og Vergangur eru með reglulegar göngur alla þriðju- daga og sunnudaga, einnig eru þar lokaðir hópar. Einar Skúlason er alveg dásamlegur félagi og gott að vera í þeim hópi. Gönguhópur Suð- urnesja, þar hafa orðið til undirhópar sem stunda reglulegar göngur. Einnig gott að finna ágætt æfingarfjall, t.d. Þorbjörn, hann er mjög aðgengi- legur, þrunginn sögu og fjölbreyttur, stunda æfingar þar. WAPP-appið er líka með fullt af gönguleiðum með leiðbeiningum, svo er Wikiloc óþrjót- andi brunnur gönguleiða. – Hversu oft ferðu á fjöll? Ætla það sé ekki einu sinni til tvisvar í viku að jafnaði. – Áhugaverðasta göngu- svæðið á Suðurnesjum? Þessi er erfið. Þjóðleiðirnar yfir há- veturinn, t.d. Þórustaðarstígur og Skógfellsstígur, um vorin er svæðið í kringum Sogin, t.d. Trölladyngjan, Fíflavallarfjall og Grænadyngja í uppáhaldi, mögnuð litadýrð, yfir há- sumarið er gott að vesenast í Fagra- dalsfjallgarðinum og Keili en nú þegar haustar þá eru það þessi dal- verpi, Nátthagi, Maradalur (stundum nefndur Dauðadalur) og Stóri Leir- dalur, það er einhver dulúð við þessa staði sem eru umluktir algjörri kyrrð. – Hvert hefur þú ekki komið en langar að ganga um? Hraundrangi í Öxnadal er klárlega sá tindur sem ég á eftir en er mest spenntur fyrir að fara. Austurland er svo allt í vinnslu, uppáhaldsfjöllin mín eru þar. Frá göngu um Skógfellsstíg með Gönguhópi Suðurnesja í vor. Mynd: Styrmir Jónsson Agnar og Anton Berg Sævarsson, frændi hans, á fjalli á Austfjörðum. Mynd tekin ofan af Merkitindi og sést niður í Breiðdalsvík. vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.