Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Side 12

Víkurfréttir - 07.10.2020, Side 12
Nú þegar tveimur umferðum í Lengju- deildinni er ólokið er Keflavík í kjörað- stöðu til að komast í efstu deild að nýju. Keflvíkingar eru efstir í deildinni en bæði Fram og Leiknir Reykjavík koma fast á hæla þeirra, aðeins einu stigi á eftir. Kefla- vík á að auki leik inni gegn Grindavík sem verður leikinn í næstu viku. Víkurfréttir tóku tal af Eysteini Húna Haukssyni til að ræða lokaumferðirnar. „Þetta er alltaf að sýna sig, eins og í síðasta leik hjá okkur, að þetta er mjög tæpt. Þetta er tími sem reynir á taugar, skipulag og aga. Bæði við og Fram unnum lið sem eru í botnbar- áttunni með einu marki og þurftum að hafa töluvert fyrir því,“ segir Eysteinn. „Reyndar ef við skoðum Leiknisleikinn í rólegheitum þá vorum við vaðandi í færum, fengum níu færi fyrir utan markið á fyrsta hálftímanum – á sama tíma voru þeir ekki að skapa neitt.“ Spila fótbolta sem fólk vill horfa á „Við áttum á þessum tíma þrjú skot í slánna og ég veit ekki hvað – en það þarf að klára þetta, þú ert aldrei öruggur nema þú komir þér í almennilega stöðu og þótt við höfum verið að spila vel þá vantaði að reka endahnútinn á þetta. Við þurfum að nýta færin.“ Keflavík hefur leikið skemmti- legan sóknarbolta í ár og hefur þegar skorað 57 mörk á tímabilinu. Til gamans má geta þess að samkvæmt gögnum á heimasíðu Knattspyrnu- sambands Íslands hefur aðeins einu liði tekist að skora fleiri mörk á einu tímabili. Það var árið 2007, þegar liðum var fjölgað í deildinni, að Fjölnir skoraði 61 mark. Þrátt fyrir alla þessa markaskorun endaði Fjölnir í þriðja sæti. „Allir leikirnir sem við eigum eftir verða erfiðir, leikir Keflavíkur og Grindavíkur eru alltaf eins og bik- arúrslitaleikir og þá er ekkert gefið eftir sama hver staða liðanna er. Við þurfum bara að undirbúa okkur vel og vera með liðsheildina klára, vinna okkar vinnu og mæta með topp- frammistöðu. Frans [Elvarsson] meiddist í síð- asta leik og við erum að setja upp hvernig við leysum það, þá er spurn- ingarmerki með Kian [Williams] og Ingimundur [Aron Guðnason] er í banni. Þetta er smá púsl en nú búum við vel að því að vera með stóran og sterkan hóp þar sem allir hafa hlut- verki að gegna, við erum búnir að nota 27 leikmenn í ár – næstum því þrjú lið. Við höfum skorað að meðal- tali þrjú mörk í leik og viljum spila fótbolta sem fólk vill horfa á. Þess vegna spilum við sókndjarfan leik og leggjum áherslu á að allir séu í toppstandi, það er okkar verkefni núna að fá Keflvíkinga til að verða ástfangna af fótbolta aftur – og það er það sem við ætlum okkur,“ sagði Eysteinn að lokum. Bætir Gibbs markametið? Ástralinn Joey Gibbs hefur slegið í gegn í framlínu Keflvíkinga í ár. Hann hefur skorað 21 mark þegar þrír leikir eru eftir af mótinu og er ekki langt frá því að ná marka- metinu í næstefstu deild. Fyrir tveimur árum skoraði Viktor Jónsson 22 mörk fyrir Þrótt Reykjavík en það þarf að fara aftur til ársins 1976 til að finna marka- metið. Það met á Örn Óskarsson sem lék með ÍBV, hann skoraði 25 mörk. „Okkar hlutverk er að láta Keflvíkinga verða ástfangna af fótbolta“ – segir Eysteinn Húni Hauksson, annar tveggja þjálfara Keflvíkinga. Keflvíkingar leiða Lengjudeildina: Samstarf þeirra Eysteins og Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar hefur skilað góðum árangri. Þeir voru m.a. valdir þjálfarar annars þriðjungs Lengjudeildarinnar af vefmiðlinum Fótbolti.net. Þróttarar höndluðu ekki spennuna Spennustigið hefur verið hátt í Vogunum undanfarið en knatt- spyrnulið Þróttar var búið að vinna sig upp í annað sæti 2. deildar og er mögulega á leið í næstefstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þróttur hefur leikið afburðaskemmtilegan fótbolta í sumar og komið ánægjulega á óvart, verið svokallað spútniklið deildarinnar. Þróttarar fóru til Ólafsfjarðar um síðustu helgi þar sem þeir mættu liði KF. Þróttur komst yfir á 60. mínútu með marki Alexander Helgasonar en KF jafnaði stuttu síðar og þar við sat, 1:1 jafntefli og mikilvæg stig töpuð því á sama tíma vann helsti keppinautur Þróttar, Selfoss, sinn leik og komst tveimur stigum upp fyrir Þrótt þegar tvær umferðir eru eftir. Nú eru Þróttarar komnir í þá stöðu að þeir þurfa að vinna báða sína leiki og treysta á að Selfoss misstígi sig á lokametrunum. Njarðvíkingar í fjórða sæti Eftir sigur á Kára um síðustu helgi eru Njarðvíkingar þremur stigum á eftir Selfossi og Þrótti í toppbaráttunni. Það verður að teljast ólík- legur möguleiki að þeir nái að komast upp fyrir bæði liðin í lokaum- ferðunum en miði er möguleiki. Fari svo ólíklega að bæði lið misstígi sig á lokametrunum gæti Njarðvík komist upp. Víðismenn bitu frá sér Víðir sigraði Kára 3:1 á þriðjudag í leik úr sautjándu umferð en hafði verið frestað. Víðismenn eru að berjast fyrir tilveru sinni í 2. deild eftir tap fyrir Völsungi á heimavelli sínum á laugardag. Það var sannkallaður sex stiga leikur því fyrir leikinn voru Víðismenn í fallsæti, einu stigi á eftir Völsungi, og með sigri hefðu þeir haft sætaskipti við Húsvíkingana. Það voru leikmenn Völsungs sem höfðu betur í þessum mikil- væga leik en eftir sigur á Kára glæðast vonir Víðis um að halda sér í deildinni lífi. Nú munar aðeins einu stigi á Víði og Völ- sungi þegar tvær umferðir eru eftir. Víðir á eftir að leika gegn liðunum sem eru að berjast um sæti í Lengjudeildinni, Selfossi og Þrótti, á sama tíma og Völsungur á eftir að leika gegn botnliði Dal- víkur/Reynis og Kára. REYNISMENN KOMNIR UPP Reynismenn hafa tryggt sér far- seðilinn í 2. deild á næsta ári þegar tvær umferðir eru eftir. Þeir höfðu þegar tryggt sér sætið þegar liðið steinlá 5:1 fyrir Sindra á Hornafirði um helgina. Reynismönnum til afsökunar þá voru aðstæður á Hornafirði varla boðlegar. Fyrir leik var búið að tilkynna þeim að leik- urinn yrði færðu á annan völl en þegar Reynir mætti til Hafnar voru heimamenn búnir að skipta um skoðun og ákveða að leika á heimavelli sínum þótt hann væri eins og sundlaug að sjá. Í síðustu viku sigraði Reynir lið Álftaness á Blue-vellinum 3:1 til að tryggja sér sæti í 2. deild. Eftir markalausan fyrri hálf- leik gerðu heimamenn út af við leikinn á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks með mörkum Benedikts Jónssonar (48’), Guð- mundar Gunnars Gíslasonar (51’) og Fufura Barros (54’). Eftir leikinn sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Reynis, í samtali við Víkurfréttir að mark- miðið fyrir tímabilið hefði verið að komast upp um deild. „Núna er bara næsta markmið að vinna deildina, við erum í harðri baráttu við KV um það,“ sagði Haraldur. Reynir missti KV fjórum stigum fram úr sér með tapinu gegn Sindra. Reynismenn þurfa að sigra báða sína leiki sem eru eftir og treysta á að KV tapi stigum í síðustu umferðum 3. deildar. Benedikt Jónsson að koma Reyni yfir gegn Álftanesi. Vonbrigðatímabil Grindvíkinga Grindvíkingar eygðu örlitla von um að vinna sér sæti í efstu deild karla að nýju fyrir leiki síðustu umferðar. Grindavík tapaði hins vegar fyrir Aftureldingu á laugardag og með því heltust þeir endan- lega úr lestinni og þurfa því að bíða næsta tímabils með að vinna sig upp um deild. Afturelding komst þremur mörkum yfir í leiknum en Grindavík tókst að minnka muninn í 3:2 með tveimur mörkum frá Guðmundi Magnús- syni. Lengra komust Grind- víkingar þó ekki og því er útséð um að þeim takist að standa við markmið sín um að endurheimta sæti í Pepsi Max-deildinni. Mikil vonbrigði fyrir Grindavík sem var með eindæmum óheppið í sumar og missti leiki of oft niður í jafn- tefli eða jafnvel tap. Grindavíkurkonur stefna upp Stelpurnar í kvennaliði Grindavíkur stefna ótrauðar upp í Lengju- deildina á næsta ári eftir góðan 4:0 sigur á Fram á þriðjudag. Grindvíkingar eru nú aðeins tveimur stigum á eftir HK sem er á toppi 2. deildar kvenna. HK hefur lokið leik en Grindavík á eftir að leika gegn Hamri frá Hveragerði í síðast leik sínum. Vinni þær hann eru þær deildarmeistarar 2. deildar kvenna í ár. 12 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.