Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 13
„Ég er bara í toppmálum og er hrikalega sáttur með borgina og liðið sem ég er í. Við erum búnir að bæta við okkur mörgum leikmönnum síðan í fyrra og ætlum okkur stóra hluti,“ segir Jón Axel Guðmundsson, körfuboltakappi úr Grindavík, en hann gekk til liðs við þýska úr- valsdeildarliðið Fraport Skyliner í Frankfurt í sumar og mun leika með liðinu í Bundesligunni. – Hvað geturðu sagt okkur um borgina og hvenær fórstu? „Ég flaug út í lok ágúst til Frankfurt. Ég fíla þetta alveg í botn, hef búið í smábæ allt mitt líf þannig að það er gott að geta keyrt niður í miðbæ, farið á kaffihús, rölt aðeins um og verslað sér einhverjar flíkur. Borgin er risastór þannig séð, ég bý í einhverju „molli“ hérna sem er svona tíu mínútur frá miðbænum. Svo er á hérna þar sem margir koma og liggja á handklæði í góðu veðri. Þar sem hér er engin sjór er áin notuð eins og baðströnd, meiriháttar skemmtilegt.“ – Hvernig líst þér á liðið, aðstæður og keppni framundan? „Mér líst mjög vel á allt hérna, flottar aðstæður sama hvert litið er. Við erum með mikið af vopnum í liðinu og fullt af gæjum sem geta skorað þannig það verður spennandi að sjá hvernig okkur mun ganga. Mér gekk mjög vel í æfingaleik um síðustu helgi sem við unnum (skoraði 27 stig, átti fjórar stoðsendingar og hirti fjögur fráköst).“ – Hvernig kom það til að þú settir NBA-drauminn aðeins í pásu og endaðir í Þýskalandi? „Ég setti eiginlega ekki NBA- drauminn á pásu. Það var meira svona Covid-19 sem sá um það. Það vita allir hversu slæmt Covid er í heiminum og hvað þá í Ameríkunni, þannig að þeir í NBA vita ekkert hvernig næsta tímabil verður. Til dæmis var leikmannavalið (draftið) í júní fært yfir í október en núna er búið að færa það ennþá aftar og á að vera í lok nóvember. Ég er hins vegar ennþá að tala við lið sem eru í NBA-deildinni, er til dæmis að tala við Golden State Warriors núna í næstu viku. Er bara reyna selja þetta svona sem „draft og stash“ eins og það kallast. Eitthvað lið „draftar“ mig og mun þá eiga réttinn á mér og svo getur það notað mig eftir þetta ár. Það eru mörg lið að skoða það og finnst gott að maður fái eitt ár í Evrópu þar sem ég fæ að spila mikið og læra allt það helsta. Koma svo sterkur inn á næsta ári. Þetta mun koma frekar í ljós á næstunni. Nú er bara að bíða og vona það besta og að einhver muni kalla nafnið mitt.“ – Svo er yngri bróðir þinn, Ingvi Þór, líka kominn til Þýskalands. Þú hlýtur að hafa fagnað því. „Já, ég er hrikalega stoltur af honum að hafa ákveðið þetta. Maður þarf bara stíga upp listann og vinna sig á hæsta stall eins og við sjáum með Martin Hermannsson. Hann byrjaði í næstefstu deild í Frakklandi og er núna kominn í eitt besta lið í heimi. Maður verður að byrja einhvers staðar og keyra atvinnumannaferilinn í gang. Það skemmir ekki að það eru ekki nema fjórir tímar í lest á milli okkar þannig ættum að geta hist eitthvað.“ – Hvernig er staðan á Covid-19 þarna úti? „Heyrðu, ég veit ekki mikið um hvernig staðan er, þannig lagað. Held hún sé bara fín í borginni minni en veit að allir þurfa vera með grímur inni við á almenningsstöðum en mega taka hana af úti við. Við leikmenn megum ekki ferðast með lestum og strætisvögnum og eigum eingöngu að ferðast í bíl til að minnka áhættuna á að smitast. Svo erum við settir í Covid-próf alla mánudaga.“ – Hvernig fór sumarið með þig á Ís- landi, varstu kannski bara að æfa á fullu? „Sumarið fór mjög vel með mig. Þetta var fyrsta sumarið þar sem ég var heima í meira en tvær vikur síðustu fjögur árin og eyddi miklum tíma með fjölskyldu og vinum. Ég spilaði mikið golf með fjölskyldunni og félögum mínum og naut þess að vera á Íslandi. Svo var ég að æfa á hverjum einasti degi heima til að vera alltaf tilbúinn að fara út.“ – Tókstu golfsettið með. Þú ættir að geta leikið eitthvað golf þarna er það ekki? „Að sjálfsögðu greip ég kylfurnar með mér. Planið er að taka upp golfhanskann þegar atvinnu- mennskan er búin. Er búinn að spila fjóra, fimm hringi hérna. Maður vælir alltaf yfir kuldanum heima en hérna er maður farinn að væla yfir hitanum en það hefur verið mjög heitt. Það eru margir gríðarlega flottir vellir hérna í Frankfurt og maður nýtir veðrið og frídagana mikið til að fara í golf.“ JÓN AXEL í toppmálum í Frankfurt Jón Axel Guðmundsson hefur undanfarin fjögur ár leikið fyrir Davidson Wildcats í bandaríska háskólaboltanum. Árið 2019 var Jón Axel valinn leikmaður ársins í Atlantic 10. Jón Axel átti frá- bæran feril með Davidson-liðinu og til stóð að hann færi í nýliðaval NBA í haust en ekkert varð af því, mestmegnið út af Covid-19. Samningur Jóns Axels við Skyliners gildir út komandi leik- tímabil, 2020–2021. Lið Fraport Skyliners endaði í sjöunda til átt- unda sæti í þýsku Bundesligunni síðasta ár en liðið varð þýskur meistari árið 2004 og vann þar að auki FIBA Europe Cup árið 2016. Jón Axel er 23 ára gam all bakvörður og lék með Grindavík þar til að hann hélt til náms vest- an hafs. Hann hef ur leikið ellefu A-lands leiki fyr ir Íslands hönd. Jón Axel var stiga- hæstur í æfingaleik með liði sínu nýlega þar sem hann skoraði 27 stig og var besti maður liðsins í leiknum. Keppnistíðin hefst síðar í október. Grindvíski körfuboltakappinn Guðmundur Bragason, faðir Jóns Axels, var einn af bestu körfuboltamönnum landsins, hann var m.a. í liði Grindavíkur þegar liðið varð Íslandsmeistari 2003 og á einnig marga landsleiki að baki. Páll Ketilsson pket@vf.is vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.