Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 16

Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 16
Appelsínugular vegan sápur og snúðar með appelsínugulu kremi standa Suðurnesja- mönnum til boða í árlegu átaki Soroptimistaklúbbs Keflavíkur frá 25. nóvember. Átakið er alþjóðlegt og heitir „Roðagyllum heiminn“. Konurnar í klúbbnum hófu undirbúning í vikunni þegar þær fóru í sápugerð undir handleiðslu Ólafs Árna Halldórssonar í Sápunni en hann leggur fram vinnu sína, uppskriftir, tæki og tól til framleiðslu á sápunum. Í fyrra tók Soroptimistaklúbbur Keflavíkur í fyrsta sinn þátt í roða- gyllingu heimsins, sem er alþjóð- legt átaka gegn kynbundnu of- beldi og mörg mannúðarsamtök um allan heim taka þátt í. Átakið hefst 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, staðfestur í mannréttindayfirlýsingunni. Átakið nær hámarki sínu mánudaginn 10. desember, á alþjóða mannrétt- indadaginn. Appelsínugulur er litur átaksins „Í fyrra fengum við fyrirtæki og stof- anir í lið með okkur en forsvarsmenn margra þeirra tóku vel í beiðni okkar um að lýsa byggingar, húsnæði eða umhverfi upp með appelsínugulum lit, sem er litur átaksins. Liturinn táknar bjartari framtíð, lausa við of- beldi gegn konum og börnum,“ segir Svanhildur Eiríksdóttir, formaður soroptimistaklúbbsins. Stofnanir og fyrirtæki í appelsínugulu „Í ár munum við aftur biðja fyrir- tæki og stofnanir að lýsa upp og fáum vonandi enn fleiri til að taka þátt núna. Þá hefur Sigurjón Héðinsson bakari tekið jákvætt í beiðni klúbbsins að selja snúða með appelsínugulu kremi þessa sextán daga meðan átakið stendur yfir og láta ágóðann af sölunni renna til Velferðarsjóðs Suðurnesja. Það er mikilvægara sem aldrei fyrr að auka innstreymi í hjálparsjóði, þar sem streymið hefur verið að minnka vegna samdráttar allsstaðar í þjóð- félaginu. Við ætlum að kalla snúðana Mannúðarsnúða.“ Karlarnir hjálpa konunum Fjáröflun klúbbsins verður sala á appelsínugulri vegan-sápu sem Ólafur Árni Haraldsson í Sápunni aðstoðar Soroptimistakonur með að gera svo þær geti selt hana til Suður- nesjamanna. „Þetta er alveg frábært. Pabbi einnar systur í klúbbnum út- vegar okkur húsnæði svo það er óhætt að segja að karlar styðji sér- staklega vel við átakið, sem okkur finnst skemmtilegt. Sápuna munum við selja á vettvangi Soroptimista en sjáum við aðrar smugur munum við að sjálfsögðu nýta okkur það,“ segir Svanhildur. Soroptimistaklúbbur Keflavíkur er stærsti klúbbur landsins Soroptimistaklúbbur Keflavíkur er stærsti klúbburinn innan Sorop- timistasambands Íslands. Hann var stofanaður 5. júní 1975 og telur 42 systur. Klúbburinn hefur á undanförnum árum styrkt Vel- ferðarsjóð Suðurnesja, Björgina og Frú Ragnheiði, ásamt styrkjum til einstaklinga. Allar tekjur klúbbsins koma frá árgjöldum systra og fjáröflunum og er fjármagnið nýtt til að styrkja konur og stúlkur þó samfélagið allt njóti vissulega góðs af stuðningi Soroptimista. Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna sem hafa það að markmiði að stuðla að jákvæðri heimsmynd, þar sem samtaka- máttur kvenna nær fram því besta sem völ er á. Samtökin vinna að bættri stöðu kvenna, að mann- réttindum öllum til handa sem og jafnrétti, framförum og friði með alþjóðlegri vináttu og skilningi að leiðarljósi. Samtök Soroptimista eru starfsgreinasamtök og er leitast við að hafa fulltrúa sem flestra starfs- stétta til að fá sem breiðastan hóp. Appelsínugular vegan-sápur og snúðar í átaki Soroptimistakvenna Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta Svanhildur Eiríksdóttir, formaður vandar sig í sápugerðinni. Soroptimistakonur verða líka í sviðljósi Suðurnesjamagasíns. Sjónvarpsinnslagið er aðgengilegt í rafrænni útgáfu. Páll Ketilsson pket@vf.is 16 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.